Fréttasafn eftir mánuðum//

31.05.2007  //

Fótboltamenn í Bretlandi gefa eins dags laun til hjúkrunarfræðinga

Kona í Bretlandi fékk fótboltamenn þar til þess að gefa eins dags laun til hjúkrunarfræðinga. Þessir fjármunir leggjast í sjóð sem er í vörslu Royal College of Nursing og hjúkrunarfræðingar geta sótt í hann. Þegar hafa safnast 750.000 pund eða 91.500.000 íslenskar krónur. Hjúkrunarfræðingar í Bretlandi eru ekki allir sáttir við þessa herferð.

31.05.2007  //

Karlar vilja verða smiðir og lögfræðingar en konur hjúkrunarfræðingar eða læknar

Karlar vilja verða smiðir og lögfræðingar en konur hjúkrunarfræðingar eða læknar Ungir íslenskir karlar hafa helst áhuga á að verða smiðir og lögfræðingar en ungar konur hafa mestan áhuga á starfi hjúkrunarfræðinga eða lækna. Þetta kemur m.a. fram í könnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Jafnréttisráð um viðhorf ungmenna á aldrinum 18-23 ára til starfa og launa. Í 8 tilfellum af 10 reikna karlar með hærri launum fyrir starf en konur.

30.05.2007  //

International Council of Nursing leitar eftir nýjum framkvæmdastjóra

Á Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga er nú auglýsing um stöðu Chief Executive Officer hjá ICN í Genf. Staðan losnar þar semJudith Oulton hefur sagt starfi sínu lausu eftir 11 ára starf fyrir samtökin

27.05.2007  //

Fulltrúaráð þjóðanna (CNR) setur fund sinn í Yokohama í Japan

Fulltrúar frá 123 félögum hjúkrunarfræðinga, sem eiga það sameiginlegt að vera aðilar að ICN hittast nú á 3 daga fundi fulltrúaráðs þjóðanna í Yokohama í Japan. Fulltrúi Fíh situr fundinn.

25.05.2007  //

Fær dæmdar miskabætur vegna flutnings milli deilda á sjúkrahúsi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu, sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss, hálfa milljón króna í miskabætur vegna þess að hún var flutt milli deilda gegn vilja sínum.

24.05.2007  //

Heimasíða um sjúklingaöryggi opnuð

Emelíusjóðurinn hefur opnað heimasíðu um sjúklingaöryggi. Markmið sjóðsins er að fræða almenning um sjúklingaöryggi, rétt sinn og að auka umræðu í samfélaginu um hvernig má efla sjúklingaöryggi.

23.05.2007  //

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á skrifstofu félagsins

Um er að ræða 80% starfshlutfall sem ráðið verður í tímabundið til eins árs. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni lúta að erlendum samskiptum og tengslum við erlendra hjúkrunarfræðinga hér á landi og íslenskra hjúkrunarfræðinga erlendis, auk faglegra verkefna sem varða hjúkrun

22.05.2007  //

Guðlaugur Þór verður heilbrigðisráðherra

Guðlaugur Þór Þórðarson tekur við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og er hann eini nýi ráðherrann í hópi sjálfstæðismanna. Sturla Böðvarsson verður ekki ráðherra í nýrri ríkisstjórn en tekur við embætti forseta Alþingis. Annars eru ráðherrar þeir sömu og í síðustu ríkisstjórn

22.05.2007  //

Nýr fræðsluvefur um vefjagigt, www.vefjagigt.is, verður opnaður á morgun.

Vefjagigt hrjáir 0,5 - 4% þjóðfélagsþegna, þannig að gera má ráð fyrir að allt að 12 þúsund Íslendingar séu haldnir þessum sjúkdómi á hverjum tíma. Enn stærri hópur einstaklinga glímir við langvinna útbreidda verki, sem eiga sér ekki þekktar orsakir, en uppfyllir ekki greiningarviðmið vefjagigtar.

22.05.2007  //

Hjúkrunarfræðingar á FSA kröfðust tafarlausrar leiðréttingar launa.

Í áskoruninni segjast hjúkrunarfræðingar á FSA ekki sætta sig lengur við að vera "langt undir launum" sem greidd eru á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi (LSH). "Við óskum eftir því að staðið verði við loforð um sambærileg laun hjúkrunarfræðinga á FSA og LSH," segir þar. "Við vitum að verið er að fara eftir kjarasamningi, þetta er ekki spurning um það, heldur viljum við fá sambærileg laun og verið er að greiða á LSH," sagði Þóra Ester við þetta tækifæri.

21.05.2007  //

Golfmót hjúkrunarfræðinga

Nú fer að koma að fyrra golfmóti hjúkrunarfræðinga árið 2007. Það verður haldið föstudaginn 1. júní kl. 13:00 á Golfvelli Öndverðaness í Grímsnesi. Keppt verður í 2 flokkum og hæsta forgjöf er 42.

21.05.2007  //

Þrír hjúkrunarfræðingar útskrifast með doktorsgráðu

Þær Helga Lára Helgadóttir, lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, Þóra Jenný Gunnarsdóttir, lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Helga Sif Friðjónsdóttir hafa útskrifast með doktorsgráðu. Þær munu flytja opinn fyrirlestur í haust í tengslum við 10 ára afmæli Rsh.

17.05.2007  //

Hjúkrunarfræðingar: Við höfum fengið nóg - Hjúkrunarfræðingarnir á stærstu sjúkrastofnun Danmerkur, Region Hovedstaden, eru reiðir og örvæntingarfullir.

Vinnuaðstæður þeirra eru ömurlegar og það kemur niður á sjúklingunum. Hjúkrunarfræðingar í Region Hovedstaden í Danmörku reyna nú að ná sambandi við stjórnmálamenn.

17.05.2007  //

Irish Nurses Organisation (INO) og Psychiatric Nurses Association (PNO) boða algjört yfirvinnubann frá og með föstudeginum 18. maí 2007

Stjórn/Stjórnarnefnd INO/PNA ákváðu í dag að fyrirskipa félögum sínum að vinna aðeins samningsbundna vinnu frá og með næsta föstudegi þann 18. maí 2007. Frá þeim degi munu félagsmenn fá afdráttarlausa fyrirskipun um að vinna ekki yfirvinnu eða taka aukavaktir í gegn um starfsmannaleigur.

09.05.2007  //

Lausar vikur í orlofshús í sumar

Sumarúthlutun er nú lokið. Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshúsin er til 14. maí n.k. Þó nokkrir félagsmenn hafa ekki getað nýtt sér úthlutun sína og eru þær vikur ásamt þeim vikum sem ekki gengu út í úthlutun, settar beint inn á Orlofsvefinn. Hægt er að skoða það sem er laust á Orlofsvefnum inn í sjálfsafgreiðslu, og þar inni á stikunni er flettigluggi sem á stendur lausar vikur, aftan við hvert hús kemur panta Hér gildir reglan: Fyrstur pantar, fyrstur fær.

08.05.2007  //

Tillaga stjórnar vegna aðildar Fíh að Bandalagi háskólamanna samþykkt.

Tillagan felur í sér að stjórn er falið að beita sér fyrir boðun aukaaðalfundar BHM í september þar sem þar sem verði teknar til umræðu og umræðu tillögur um breytingu á eðli og starfsemi BHM

08.05.2007  //

Kosning um meðstjórnanda: Í framboði voru Cecilie Björgvinsdóttir, Hrund Helgadóttir og Sigríður Halldórsdóttir

Kjörnefnd hefur talið atkvæði og er niðurstaða talningarinnar að Cecilie Björgvinsdóttir og Hrund Helgadóttir eru réttkjörnar varamenn í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

08.05.2007  //

Elsa B. Friðfinnsdóttir endurkjörin formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Engins mótframboð bárust til kjörnefndar. Elsa lýsir síðustu 4 árum í starfi sem skemmtilegum og segist hafa öðlast einstaka reynslu.

07.05.2007  //

Fulltrúaþing samþykkir að gera Guðrún Guðnadóttur, hjúkrunarfræðing að heiðursfélaga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Stjórn lagði til við fulltrúaþing að Guðrún Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur verði gerð heiðursfélagi fyrir störf sín í þágu við hjúkrunarfræðinga. Í greinargerð með tillögunni kenur fram að Guðrún sat bæði í stjórn deildar geðhjúkrunarfræðinga og stjórn deildar hjúkrunarforstjóra og hjúkrunarframkvæmdastjóra í Hjúkrunarfélagi Íslands. Hún var í áraraðir í ritnefnd tímaritsins og hefur nú setið í stjórn öldungadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í 11 ár.

07.05.2007  //

Fulltrúaþing sett

Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður félagsins setti þingið og Sif Friðleifsdóttir Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ávarpaði þingið. Í setningarræðu sinni fór Elsa yfir þá miklu gerjun sem hún greinir í hjúkrunarsamfélaginu, það vanmat sem er á menntun starfi og ábyrgð hjúkrunarfræðinga og endurspeglast í launum, ástand heilbrigðiskerfisins og öryggi sjúklinga. Hún lagði áherslu á að hjúkrunarfræðingar bjarga lífum en að slíkt sjáist ekki sem fyrirsögn á síðum blaðanna....... Skoða setningarræðu formanns.

07.05.2007  //

Fulltrúaþing Fíh hefst kl. 11.40 með afhendingu gagna. Sjálft þingið verður sett kl 12.40

Fulltrúar hjúkrunarfræðinga af öllu landinu hittast á fulltrúaþingi á Grand Hóteli í Reyjavík í dag. Í framhaldi af þinghaldinu í dag verður haldin hátíðardagskrá í tilefni alþjóðadags hjúkrunarfræðinga.

04.05.2007  //

Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga árið 2007

Gott starfsumhverfi: Fyrirmyndar vinnustaðir = góð hjúkrun Í tilefni dagsins býður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga upp á dagskrá á Grand hóteli, Sigtúni 38, 7. maí 2007 klukkan 16:30 - 18:00. Dagskráin er helguð starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga með áherslu á tækni í heilbrigðisþjónustu.

03.05.2007  //

Skrifstofa félagsins veðrður lokuð frá hádegi 7. maí og allan daginn 8. maí vegna Fulltrúaþings

Vegna Fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem haldið er á Grand Hótel daganna 7. og 8. maí 2007 verður skrifstofan lokuð þann tíma sem þingið er. Hægt verður að ná í Soffíu í síma 896 4868 og Steinunni í síma 861 2959.

03.05.2007  //

Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2007.

Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2007. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 330 orlofsstyrkir og 145 vikur í orlofshús. Alls bárust 927 umsóknir. Synjun fengu 472 félagsmenn.

03.05.2007  //