Fréttasafn eftir mánuðum//
Frestur til að skila inn útdráttum vegna ráðstefnunnar Hjúkrun 2007 framlengdur
Vegna mikilli fyrirspurna um fresti til að skila inn útdráttum hefur undibúningsnefnd ráðstefnunnar Hjúkrun 2007 ákveðið að framlengja frestinn til 10. júlí 2007
Nýtt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið út á vefsvæði félagsins
Meðal efnis að þessu sinni er greinar um hvernig bregðast skuli við hjartastoppi, öryggi sjúklinga í tæknivæddri heilbrigðisþjónustu og umhyggja og tækni. Kynning er á fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga, sagt frá fulltrúaþingi 2007 og tvær ritrýndar greinar fjalla um tengsl langvinnra verkja og aðlögunar og ánægju foreldra með þjónustu á barnadeildum Barnaspítala Hringsins.
Frábært framtak BAS-stelpnanna varð að mörg þúsund manna átaki
BAS-stelpurnar Bríet, Anna og Soffía náðu eyrum og augum landsmanna svo um munaði og fengu þúsundir manna með sér út á götur á Akureyri, í Reykjavík og á Selfossi til að ganga gegn umferðarslysum
Sendiherra Svía hjá Sameinuðu þjóðunum, Anders Lindén, mun í dag flytja ræðu í nafni allra Norðurlandanna
"We believe that there is broad support for moving the issue of gender equality and empowerment of women without further delay". Félög hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum krossa fingurna og vonast til að jafnréttisumræðan verði giftusamleg og gefi ávöxt.
Skorað á íslensk stjórnvöld á alþjóðadegi flóttamanna
Alþjóðadagur flóttamanna er í dag, 20. júní og af því tilefni skorar Mannréttindaskrifstofa Íslands á íslensk stjórnvöld að gerast aðili að samningum Sameinuðu þjóðanna um ríkisfangslausa, samningi um að draga úr ríkisfangsleysi og samningi um réttarstöðu fólks án ríkisfangs.
Barnaspítali Hringsins fær 50 milljón króna afmælisgjöf
Í tilefni af afmæli Barnaspítala Hringsins ákváðu Hringskonur að færa Barnaspítala Hringsins að gjöf 50 milljónir króna. Upphæð þessi verður notuð til þess að efla ennfremur tækjabúnað Barnaspítala Hringsins til þess að bæta þjónustu hans og til að auka öryggi sjúklinga.
Félag hjúkrunarfræðinga í Danmörku ætlar að krefjast 40% launahækkunar í kjarasamningum í haust
Sjúkrahús á fjölda staða í Danmörku loka vegna þess að þau geta ekki fengið til sín hjúkrunarfræðinga. Dansk sygeplejeråd vill fjölga höndum í faginu með því að krefjast launahækkana sem nema 40% á fjórum árum . Við hættum að bera okkur saman við lögreglumenn og aðrar opinberar stéttir með jafnlanga menntun og munum þess í stað bera okkur saman við almenna markaðinn. Hjúkrunarfræðingar eru eftirsótt vara og eftrispurn eykur verðmæti vöru.
Barnaspítali Hringsins 50 ára í dag
Barnadeild Landspítla var opnuð þann 19. júní 1957. Dagsins verður m.a. minnst með afmælisútihátíð fyrir börn frá klukkan 12 til kl 15 í dag
Þunglyndi og kvíði sækir á aldraða sem bíða eftir hvíldarinnlögn á Landakotsspítala.
Nánustu ættingjar eru sumir hverjir orðnir örmagna og finnst þeir vera fangar á eigin heimili. Engin endurhæfing eða þjálfun stendur til boða meðan á innlögn stendur. Þetta er meðal þess sem kom fram í könnun sem tveir nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar, Steinunn Arna Þorsteinsdóttir og Díana Dröfn Heiðarsdóttir, gerðu í vor.
Konur hylltar með bleikri vefsíðu Fíh í dag
19. júní árið 1915 fengu konur kosningarétt. Til að minnast þess áfanga hafa nokkrir hópar skipulagt atburði í dag undir heitinu Málum bæinn bleikan. Að þessari dagskrá standa: Bríet, Kvenréttindafélag Íslands, Stígamót, Femínistafélag Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvenfélagasamband Íslands, Samtök um Kvennaathvarf, Kvennasögusafn, Stúdentaráð Háskóla Íslands, Kvennakirkjan, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræði (RIKK) og UNIFEM
Alþjóðleg vöntun á hjúkrunarfræðingum rædd í Yokohama í Japan
3000 hjúkrunarfræðingar allstaðar að úr heiminum hittust í 3 daga í Japan til að ræða viðbrögð við hamförum, vinnuumhverfi hjúkrunarfræðinga og alþjóðlega vöntun á hjúkrunarfræðingum.
Keisaraynjan í Japan sendir íslenskum hjúkrunarfræðingum sem og íslendingum öllum kveðjur
Jón Aðalbjörn, fulltrúi Fíh á fulltrúaþingi ICN í maílok s.l. hitti Michiko Keisaraynjuna í Japan, og átti við hana stutt samtal . Keisaraynjan þekkti vel til Íslands og hafði sérstakar mætur á Vigdísi Finnbogadóttur
Miðstjórn BHM varar við afnámi auglýsingaskyldu
Miðstjórn Bandalags háskólamanna samþykkti á fundi sínum miðvikudaginn 6. júní ályktun þar sem varað er eindregið við hugmyndum um afnám auglýsingaskyldu starfa innan Stjórnarráðs Íslands. Ályktunin vísar til frumvarps til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, en í þriðju grein frumvarpsins er lagt til að ekki þurfi að auglýsa starf ef starfsmanni innan stjórnarráðsins er boðið það.
Seðlabankastjórar hækka um 16,7% í launum og verða með um 1.400.000 kr í mánaðarlaun
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru bankastjóralaunin hækkuð með vísan í launaþróun hjá íslensku viðskiptabönkunum og harðnandi samkeppni um starfsmenn. Af þeim sökum hafi bankastjórarnir nýlega hækkað laun nokkurra háttsettra undirmanna. Þá hafi verið komin upp sú staða að laun þessa hóps væru orðin nokkuð nærri bankastjóralaununum. Það hafi síðan leitt til þess að bankaráðið ákvað að hækka laun bankastjóranna sjálfra
Skjólstæðingum LSH hefur fjölgað um 3% á árinu
Í stjórnunarupplýsingum Landspítala háskólasjúkrahús kemur fram að alls leituðu 48.027 manns til LSH á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við 46.647 á sama tímabili á síðasta ári. Þetta 3% aukning milli ára.
Alheimssamtök hjúkrunarfræðinga (ICN) stofna samtök um viðbrögð við hamförum.
Fyrstu alþjóðlegu samtök hjúkrunarfræðinga um viðbrögð við hamförum voru stofnuð þann 31. maí síðastliðin á fulltrúaþingi ICN í Japan. Markmið samtakanna er að koma til móts við samfélög sem verða fyrir hamförum með því að mæta heilbriðgðisþörfum þessara samfélaga.
Opnunartími skrifstofu í sumar
Skrifstofa Fíh er opin í júní, júlí og ágúst frá kl. 9-16 alla virka daga .
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
