Fréttasafn eftir mánuðum//
Heilbrigðisráðherra segir ekki um sömu kjarasaminga að ræða í svörum sínum til fréttamanns Blaðsins
"Hjúkrunarfræðingar vinna þarft og mikilvægt starf og það er bara skiljanlegt að þær hafi skoðanir á sínum kjörum og beri sig saman við aðra," segir Guðlaugur Þór. Spurður að því hvort hjúkrunarfræðingar geti búist við álagsgreiðslum á næstunni segir hann: ",Starfsmannamál hjá heilbrigðisþjónustunni eru stórt mál og eilífðarmál og er mál allrar ríkisstjórnarinnar. En þess ber að geta að ekki er um að ræða sömu kjarasamninga. Sömuleiðis er þetta gert í gegnum stofnanir."
Hvaða störf eru verðmætust?
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Fíh skrifar: Þegar fólk er spurt að því hvað sé dýrmætast í lífinu er svarið gjarnan "heilsan". Þó sívaxandi fjöldi landsmanna reyni að temja sér holla lífshætti þurfa þó allir að þiggja heilbrigðisþjónustu einhvern tímann á æfinni. Hún getur verið í formi fræðslu, stuðnings, greiningar, meðferðar, endurhæfingar eða aðhlynningar við lífslok
Auka aðalfundur Fíh samþykkir tillögu stjórnar um áframhaldandi aðild að BHM.
Á fundinum var greinargerð stjórnar kynnt, farið yfir þá stefnumótunarvinnu sem átt hefur sér stað innan BHM og hagsmuni félagsmanna vegna lífeyrissjóðsaðildar í A deild LSR
Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar ákvörðun dómsmálaráðherra
jafnframt harmar fundurinn að heilbrigðisráðherra hafi ekki nýtt sér þessi samningsbundnu úrræði gagnvart hjúkrunarfræðingum.
Auka aðalfundur FÍH á fimmtudaginn
Auka aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn á Hótel Loftleiðum næstkomandi fimmtudag 27. september og hefst fundurinn kl. 15:00.
Landspítali hefur sagt upp samningum við Inpro og Alhjúkrun
Í samtali Stöðvar 2 við Önnu Stefánsdóttur hjúkrunarforstjóra Landspítala kemur fram að Spítalinn vill fá meira fyrir þá peninga sem hann greiðir fyrirtækjunum Inpro og Alhjúkrun og leitar eftir hjúkrunarfræðingum til starfa erlendis frá sem vilja ráða sig í fastar stöður.
Stöðugildum á Landspítala hefur fækkað um 6,3% á 6 árum
Í fréttatilkynningu frá stofnuninni kemur fram að íbúum á höfuðborgarsvæðinu hefur á sama tíma fjölgað sem samsvarar heildaríbúafjölda á Akureyri í árslok 2006
Fimmtudagspistlar víkja fyrir blaðagreinum
Breytingar verða í vetur á opinberum skrifum Elsu B. Friðfinnsdóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Morgunverðarfundir og kjaramál
Eins og fram hefur komið á vefsvæði félagsins gerði stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) nýlega samning við ráðgjafafyrirtækið Global Consulting Group um aðstoð við að auka samheldni hjúkrunarfræðinga og til að virkja hugmyndir þeirra inn í starf félagsins.
Nýr og endurbættur vefur Doktor.is var opnaður í dag
Vefurinn hefur fengið nýtt útlit og skipulag hans hefur verið einfaldað til að auðvelda aðgengi að þeim fjölbreyttu upplýsingum sem vefurinn hefur að geyma. Meðal nýjunga á vefnum má nefna nýja lyfjahandbók með margvíslegum upplýsingum um öll lyf sem skráð eru á Íslandi. Einnig býðst fagfólki í heilbrigðisgeiranum að skrá grunnupplýsingar um starfsemi sína í þjónustuskrá
Grethe Christensen frá DSR kjörin nýr forseti Evrópusamtaka hjúkrunarfélaga
Grethe Christensen var kjörin nýr forseti á haustfundi Evrópusamtaka hjúkrunarfélaga, sem haldinn var í Brussel 13. og 14. september s.l. Á fundinum samþykktu aðildarfélögin tímamóta stefnyfirlýsingu, sem m.a. felur í sér að það er yfirlýst stefna samtakanna að hjúkrunarfræðingar ættu að hafa lokið Bs námi og að forstöðumenn stofnana eða deilda sem mennti hjúkrunarfræðinga skuli í það minnsta hafa meistaragráðu.
Morgunverðarfundir með félagsmönnum
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) gerði nýlega samning við ráðgjafafyrirtækið Global Consulting Group um aðstoð við að auka samheldni hjúkrunarfræðinga og til að virkja hugmyndir þeirra inn í starf félagsins. Ákveðið hefur verið að koma á nokkurs konar Ráðgjafanefnd félagsmanna.
Íslenskir námsmenn fá aðgang að bókum á vefnum
Skrifað verður í dag undir samning milli Eddu útgáfu og Kaupþings um aðagng að vefnum vefbækur.is fyrir allt íslenska skólakerfið. Aðgangurinn mun nýtast um 80 þúsund nemendum og þar með öllum nemum í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands
Aðalbjörg komin aftur til starfa á skrifstofu Fíh
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, hjúkrunarfræðingur er komin aftur til starfa á skrifstofu félagsins eftir veikindaleyfi. Aðalbjörg er boðin velkomin til starfa að nýju.
Norðausturlandsdeild Fíh og Læknafélag Akureyrar boða til haustþings um sýkingar og sýkingavarnir
Á haustþinginu verða haldnir fjölmargir fyrirlestrar um efnið sem allir eiga erindi til heilbrigðisstarfsmanna.
Spjallrás hjúkrunarfræðinga lifnar við á haustdögum
Á spjallsvæði www.hjukrun.is hafa síðustu daga vaknað spjallþræðir um þrenn málefni: gerð stofnanasamninga fyrir öldrunarstofnanir, ný heilbrigðislög og árvekni hjúkrunarfræðinga á Selfossi
Hjúkrunarfræðingar á Selfossi hafa miklar áhyggjur af unglingum sem sniffa bensín kveikjaragas og önnur leysiefni
Í frétt RUV þann 28. ágúst sl. vekja hjúkrunarfræðingar athygli á málinu og benda foresldrum á að tala við börnin sín, gera þeim grein fyrir hættunni og kynna sér upplýsingar um slíka misnotkunn á vefnum.
Nýr ráðuneytisstjóri í Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
Berglind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin í stöðu ráðuneytisstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis frá og með 1. september. Berglind hefur undanfarið gegnt stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, en var áður einn fjögurra aðstoðarforstjóra OECD, Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar í París. Þar áður gegndi Berglind embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins.
Ný lög um heilbrigðisþjónustu og Landlækni tóku gildi á miðnætti
Með lögunum ganga í gildi ýmsar breytingar á stjórnun og skipulagi þjónustunnar. Hjúkrunarfræðingar horfa m.a. til breytinga á lagaumgjörð er varðar sjálfstæðan rekstur.
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
