Fréttasafn eftir mánuðum//
Yfirlýsing frá forstjóra LSH
Starfandi forstjórar Landspitala lýsa yfir að það vinnufyrirkomulag sem öðlast átti gildi 1. maí 2008 er ekki til umræðu lengur og núverandi vaktafyrirkomulag gildir til 1. maí 2009, nema um annað verði samið.
Samkomulag hefur náðst um að skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar dragi uppsagnir sínar til baka - von er á fréttatilkynningu frá forstjórum Landspítala
Á elleftu stundu hefur náðst samkomulag milli Landspítala og skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga sem höfðu sagt starfi sínu lausu. Fundi hjúkrunarfræðinganna sem lauk fyrir skömmu og fundarmenn á hinum samþykktu að draga uppsagnir sínar til baka. Von er á fréttatilkynningu frá forstjórum Landspítala.
Fundi lokið meðal hjúkrunarfræðinga - fulltrúar á fund ráðherra
Fundur er hafinn að nýju í heilbrigðisráðuneytinu. Á fundinum freista aðilar þess að leysa deilu milli Landspitala og skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga, sem að öðrum kosti láta af störfum um miðnætti.
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar funda í húsnæði Fíh
Um þessar mundir stendur yfir fundur skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga af Landspítala. Á fundinum er verið að fara yfir stöðuna og fulltrúar hjúkrunarfræðinganna, sem setið hafa fundi í heilbrigðisráðuneytinu eru að kynna efni þess fundar fyrir félögum sínum.
Þingmenn sammála um að nauðsynlegt sé að ná sáttum um lausn í þeirri stöðu sem ríkir á Landspitala
Í utandagskrárumræðu á alþingi í dag sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra að mikilvægt væri að lausn finnist á deilum hjúkrunarfræðinga og geislafræðinga við Landspítalann vegna fyrirhugaðra breytinga á vaktakerfi og að hann muni leggja sitt af mörkum
LSH lamast verði af uppsögnum
Læknaráð Landspítalans segir að starfsemi spítalans muni að stórum hluta lamast ef um 100 skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar og 40 geislafræðingar hætta störfum og ganga út á miðnætti.
Geislafræðingar fresta uppsögnum
Geislafræðingar hafa ákveðið að draga uppsagnir sínar tilbaka í einn mánuð. Þetta var niðurstaða fundar Björns Zoëga, starfandi forstóra Landspítala og Ernu Einarsdóttur, starfsmannastjóra, með geislafræðingum nú í hádeginu.
Utandagskrárumræða á Alþingi um málefni Landspítala - Búist við fjölda skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á þingpöllum
Miðvikudaginn 30.04.2008, kl. 15:00, fer fram umræða utan dagskrár um málefni Landspítala. Málshefjandi er SIv Friðleifsdóttir og til andsvara verður Heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson
Samningaviðræðum vísað til ríkissáttasemjara
Samningaviðræðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Í framhaldi af fundi samninganefndar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR) í gærmorgun sem lauk að ósk SNR, hefur SNR vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Í framhaldi af fundi samninganefndar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR) í gærmorgun sem lauk að ósk SNR, hefur SNR vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Ríkissáttasemjari hefur boðaða fulltrúa beggja aðila á sinn fund á föstudag.
Geislafræðingar hætta á Landspítala
40 geislafræðingar ætla að hætta störfum á Landspítalanum á miðnætti, samkvæmt grein www.mbl.is Í gær ákváðu einnig rúmlega hundrað skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðingar að standa við uppsagnir sínar.
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) lýsa yfir stuðningi við skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsiptala (LSH).
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsiptala (LSH). Í yfirlýsingunni lýsa þeir furðu á þeirri vanþekkingu sem það sýni að yfirmenn telja það raunhæfan möguleika að senda hóp hjúkrunarfræðinga til "skyndiþjálfunar" í umræddum störfum.
Landspítali vinnur að neyðaráætlun
Í viðtali við Morgunblaðið segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra að kappkostað verði að halda úti eins góðri þjónustu á Landsspítalanum og mögulegt er miðað við aðstæður
Yfirlýsing frá skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingum á Landspítalanum
Starfandi skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á LSH sjá sér ekki fært að verða við tilmælum stjórnenda LSH að fresta uppsögnum sem taka eiga gildi 1. maí.
Alvarleg staða í samningamálum - samkomulag um lengd samnings hefur ekki náðst
Alvarleg staða er nú komin upp í samningaviðræðum Samninganefnar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR). Fyrsti fundur samningsaðila var haldinn 18. mars s.l þar sem SFíh lagði áherslu á að gera skammtímasamning, enda gefi efnahagsástand ekki forsendur til annars.
Landspítali frestar gildistöku vaktakerfis
Landspítali hefur ákveðið að fresta breytingum á vaktafyrirkomulagi geislafræðinga og skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga, sem taka áttu gildi 1. n.k. til 1. október n.k. Vegna sjónarmiða sem fram hafa komið að starfsmenn fái lengri tíma til samráðs og til að koma að sínum sjónarmiðum hefur frestun þessi verið ákveðin. Jafnframt er höfð til hliðsjónar sú áskorun sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga setti fram um lengri tíma til að tryggja samsráðsferli milli stjórnenda og starfsmanna.
Hæsta verðbólga í 18 ár! - áhyggjuefni við gerð kjarasamninga
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl hækkaði um 3,4% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 4,2% frá mars. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Hefur verðbólgan ekki verið meiri í tæp 18 ár eða frá september árið 1990 er verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 12%.
Rétt rúm 95% segjast klárir í aðgerðir náist samningar ekki fyrir apríllok
Í vefspurningunni sem, nú hefur verið á vefsvæðinu í 14 daga, var spurt hvort þátttakandi sé klár í aðgerðir náist samkomulag um nýjan kjarasamning við Fjármálaráðherra ekki fyrir 30. apríl 2008. Rétt rúm 95% svöruðu spurningunni játandi
Verkfall hjúkrunarfræðinga í Svíþjóð harðnar - rúmlega 900 hjúkrunarfræðingar bætast við
Þegar eru rúmlega 2500 hjúkrunarfræðingar á útvöldum vinnustöðum í verkfalli í Svíþjóð en í dag og á morgun bætast rúmlega 900 hjúkrunarfræðingar við hópinn. Verkfallið mun stigmagnast næstu daga því þann 7. maí verða 7000 hjúkrunarfræðingar í aðgerðum.
80% styðja verkfallsaðgerðir í Danmörku - Hægt að stöðva verkfallið fyrir 126 íslenskar krónur á mánuði
Ef allir fullorðnir danir greiddu 126 krónum meira á mánuði, dygði það til að mæta kröfum þeirra sem eru nú í verkfalli um launahækkun. Ánægjulegt er að sjá að samkvæmt skoðanakönnun TV2 styðja 80% aðspurðra aðgerðirnar.
Fræðasvið HA fá viðurkenningu
Fræðasvið Háskólans á Akureyri fengu í gær viðurkenningu alþjóðlegrar sérfræðinefndar. Nefndin gefur kennslu og rannsóknum á sviðunum þremur, auðlinda-, félags- og heilbrigðisvísindum jákvæða umsögn. Þá fær starf kennara og framlag nemenda mjög góða dóma.
Verkfall hófst í Svíþjóð í dag
Hjúkrunarfræðingar í Svíþjóð hófu verkfall kl 12 í dag. Anna-Karin Eklund formaður Vårdforbundet segir í skrifum sínum til félagsmanna: "Við höfum nú náð þeim tímapunkti að þessi lífsnauðsynlegi faghópur gengur út og fer í verkfall. Það eru engin verðmæti falin í verkfalli, en þegar vinnuveitendurnir , sænsku bæjarfélögin og Landsþingið axla ekki ábyrgð sína vegna verðmætamats greinarinnar, tökum við þetta skref til að fá samning eins fljótt og mögulegt er"
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2008.
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2008. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 330 orlofsstyrkir og 171 vika í orlofshús. Alls bárust 986 umsóknir. Synjun fengu 519 félagsmenn.
29% hjúkrunarfræðinga, sem áttu að hefja verkfall í dag í Danmörku, geta ekki tekið þátt þar sem dagleg mönnun deilda nær ekki neyðarmönnun
Samkvæmt yfirliti sem Dansk Sygeplejeråd hefur gert, geta 7.902 hjúkrunarfræðingar á 448 af 1989 sjúkrahúsdeildum í Danmörku, ekki tekið þátt í verkfalli þrátt fyrir að verkfall hafi verið boðað á deildum þeirra.
Verkfall hefst í Danmörku 16. apríl
Um 40.000 danskir hjúkrunarfræðingar munu hefja verkfall þann 16. apríl n.k. þar sem sáttasemjari hefur gefist upp á að ná samkomulagi milli Heilbrigðisbandalagsins og vinnuveitenda.
Verkfallsaðgerðir í Danmörku geta kostað 30 - 61 milljarða í framleiðslutapi
Ef hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og leikskólakennarar í Danmörku leggja niður vinnu í næstu viku , getur það haft í för með sér framleiðslutap upp á ca. 30,8 milljarða og að það dregur úr hagvexti. Stærsta tapið verður þó á velferðarsviðinu, þegar aðgerðum er frestað og foreldrar þurfa að vera heima til að passa börnin sín.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn þriðjudaginn 8. apríl s.l.
Fíh hvetur íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Danmörku á meðan á aðgerðum danskra hjúkrunarfræðinga stendur
Dansk Sygeplejeråd hefur tilkynnt viðsemjendum sínum að gripið verði til aðgerða í ljósi þess að ekki hafi náðst saman um nýja samninga. Verkfallsaðgerðirnar ná yfir um 40.000 hjúkrunar- og geislafræðinga. Í ljósi samstarfs hjúkrunarfélaga á Norðurlöndum hvetur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga félagsmenn sína til að sýna samstöðu og sækja ekki um vinnu hjá dönskum vinnuveitendum sem falla undir verkfallsaðgerðirnar.
Vårdforbundet boðar aðgerðir í Svíþjóð frá og með 21. apríl kl 12.00. Fíh hvetur íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Svíþjóð á meðan á aðgerðum sænskra hjúkrunarfræðinga stendur
Sænskir hjúkrunarfræðingar sendu íþann 4. apríl frá sé verkfallsviðvörun þar sem fram kemur að níu deildir félagsins muni hefja verkfallsaðgerðir frá og með 21. apríl hafi ekki komið fram tilboð frá viðsemjendum sem sé ásættanlegt.
Norsk sykepleierforbund lagði fram meginþætti krafna í viðræðum við vinnuveitendur. Verkfallsaðgerðir geta hafist í lok maí náist samkomulag ekki.
Norsk sykepleierforbund hefur frest til 30. apríl til að ná samkomulagi við viðsemjendur sína. Náist það ekki verður deilunni vísað til ríkissáttasemjara. Verði þörf fyrir verkfallsaðgerðir munu þær hefjast frá lokum maímánaðar. Komi til aðgerða hvetur Fíh íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Noregi á meðan á aðgerðum norskra hjúkrunarfræðinga stendur
Málþing um tímaritið fellur niður
Málþing um Tímarit hjúkrunarfræðinga, sem halda átti 9. apríl, fellur niður af óviðráðanlegum órsökum.
Meiri vinna fyrir minni laun?
Capacent Gallup kynnti í dag nýja kjarakönnun sem unnin var fyrir BHM og leiðir samanburður við Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Samband starfsmanna fjármálafyrirtækja í ljós að félagsmenn BHM þiggja minnstu launin fyrir mestu vinnuna.
Afgreiðsla starfsleyfa til heilbrigðisstétta færð til landlæknis
Staðfesting á hjúkrunarleyfi á Íslandi. Frá og með 1. apríl 2008, tekur Landlæknisembættið við því hlutverki að veita heilbrigðisstéttum starfsleyfi, en það hefur til þessa verið á verksviði heilbrigðisráðuneytisins.
Landlæknir vekur athygli á lögumum um heilbrigðisþjónustu og landlækni í dreifibréfi nr 4/2008
Í dreifibréfinu, sem tekur á starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu kemur fram að óheimilt er að hefja slíka starfsemi fyrr en fyrir liggur staðfesting um að ákveðnar lágmarkskröfur séu uppfylltar
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
