Fréttasafn eftir mánuðum//
www.8.is brást við áskorun Fíh
Í áskorun Fíh til félagsmanna sinna var þess farið á leit við þá að þeir sendu tölvupóst til vefsíðufyrirtækisins Allra átta og mótmæltu auglýsingu fyrirtækisins. Með texta auglýsingarinnar var birt mynd af léttklæddri konu í búningi sem augljóslega á að vísa til hjúkrunarfræðinga. Myndin er klassísk tilvísun í klám.
Árangurslausum fundi lokið - Fjöldi hjúkrunarfræðinga hættur að taka aukavaktir
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins sem fram fór hjá ríkissáttasemjara lauk 20 mínútum eftir að hann hófst. Fundurinn var algjörlega árangurslaus. Mikill hiti virðist kominn í hjúkrunarfræðinga og skrifstofu Fíh berast stöðugt fleiri fréttir af hjúkrunarfræðingum sem hafa valið að hætta að taka aukavaktir þar til samningar nást.
Fundur trúnaðarmanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ályktar og hvetur stjórn til að hefja undirbúning aðgerða
Á fundi trúnaðarmanna Fíh, sem haldinn var í dag kl 14.30 ályktuðu trúnaðarmenn um stöðu samningaviðræðna, lýstu yfir stuðning við samninganefnd félagsins og hvöttu stjórn til að hefja undirbúning að formlegri yfirvinnustöðvun og tímabundnum vinnustöðvunum.
Verkfalli lokið í Svíþjóð - Lægstu laun 261.200 krónur
Vardforbundet og sveitafélögin hafa náð samkomulagi og verkfallsaðgerðir hafa verið stöðvaðar. Boðað var til sameiginlegs fréttamannafundar í gærkvöldi þar sem aðilar tilkynntu að samningar hefðu náðst og að allur ágreiningur sé leystur.
Samninganefnd ríkisins hafnar vel ígrunduðu og ábyrgu gagntilboði Fíh - samningaviðræður í hnút
Á fundi með SNR hjá ríkissáttasemjara í dag var rætt vel ígrundað og ábyrgt gagntilboð Fíh við tilboði SNR. SNR hafnaði gagntilboðinu. Samninganefnd Fíh ályktaði að afloknum fundi með SNR
Samninganefnd Fíh hafnar tilboði samninganefndar ríkisins.
Eins og fram kom í hádegisfréttum í dag bauð samninganefnd ríkisins (SNR) Fíh sambærilegan samning og BSRB, Starfsgreinasambandið og SNR f.h fjármálaráðherra undirrituðu í gær. Í tilboðinu var gert ráð fyrir framlengingu gildandi samnings til 31. mars 2009, en frá 1. maí 2008 kæmi til krónutöluhækkun að upphæð kr 20.300. Auk þess býður fjármálaráðherra hækkun persónuuppbótar um 2.300 krónur, fjölgun launaðra fjarvistardaga vegna veikinda barna um 2 daga á ári auk hækkunar framlags í fjölskyldu- og styrktarsjóð. Fíh hafnaði þessu tilboði SNR.
Samkomulag undirritað milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu gerðu með sér samkomulag í dag sem kveður á um 3% launahækkun frá 1. maí 2008. Samkomulag þetta er hugsað sem "innborgun" á komandi kjarasamning sem aðilar stefna á að gera í kjölfar kjarasamnings Fíh við fjármálaráðherra
Verkfall hafið í Noregi - Hjúkrunarfræðingar á Íslandi hvattir til að sækja ekki um starf
Verkfall um 3.500 hjúkrunarfræðinga, kennara og leikskólakennara skall á í Noregi í morgun. Verkfallið hófst formlega á laugardaginn en áhrifa gætir fyrst í dag þegar skólavikan hefst. Þúsundir skólabarna um allan Noreg verða fyrir áhrifum verkfallsins. Deilt er um laun en Unio, Bandalag samtaka fagfólks, fer fram á sjö prósenta launahækkun.
BSRB samdi á miðnætti.
Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí síðastliðinn við samninganefnd ríkisins um miðnættið. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun frá 1. maí. Einnig var samið um að greiðsla ríkisins í styrkarsjóði BSRB hækki um 0,2%. Hún fer úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót, eftir því sem fram kemur á vef BSRB
Aðalfundur Fíh sendir frá sér 3 ályktanir um Landspítala
Í ályktununum er tekið á væntanlegu breyttu rekstrarformi, stjórnun og nýbyggingu. Hjúkrunarfræðingar lýsa yfir fullum vilja til þátttöku og samráðs í því breytingaferli sem framundan er en vara jafnframt við því að of hratt sé farið í breytingar.
Aðalfundur ályktar harðlega gegn ráðningum læknanema í stöður hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir áhyggjum af mönnun heilbrigðisstofnana á komandi sumri. Borið hefur á því síðastliðin ár, að læknanemar séu ráðnir í störf hjúkrunarfræðinga. Aðalfundur Fíh mótmælir harðlega að slík ábyrgð sé lögð á herðar þeirra sem ekki hafa menntun í hjúkrunarfræði. Slíkt hefur afgerandi áhrif á öryggi sjúklinga og er brot á lögum
Ný lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga - Öll eldri lög félagsins felld úr gildi að ári.
Umræðum aðalfundar um frumvarp stjórnar til laga Fíh er lokið. Smávægilegar breytingar urðu á texta laganna í meðförum fundarins, sem samþykkti frumvarpið með breytingum.
Aðalfundur samþykkir tillögu stjórnar um félagsgjöld
Félagsgjöld verða áfram 1,5% af dagvinnulaunum en hámarksgreiðsla á ári verður þó ekki hærri en 60.000 kr. Gjöld fagaðila og aukaaðila hækka.
Aðalfundur Fíh samþykkir að gera Sólveigu Guðlaugsdóttur geðhjúkrunarfræðing á BUGL að heiðursfélaga
Sólveig Guðlaugsdóttir geðhjúkrunarfræðingur á BUGL lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1974. Hún lauk síðan framhaldsnámi í geðhjúkrun frá Nýja Hjúkrunarskólanum árið 1977. Á árunum 1987-1990 stundaði Sólveig nám í fjölskyldumeðferð og er viðurkenndur fjölskyldumeðferðaraðili. Sólveig hefur verið afar ötul í símenntun og árið 2oo3 lauk hún MS prófi í geðhjúkrun þá 67 ára að aldri. Lokaverkefni hennar fjallaði um reynslu mæðra með börn með einhverfu
Heilbrigðisráðherra ræðir tækifæri í íslenskri heilbrigðisþjónustu við hjúkrunarfræðinga á aðalfundi Fíh
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segir að engar breytingar verði gerðar á heilbrigðisþjónustunni án samráðs við hjúkrunarfræðinga. Í ræðu sinni fór Guðlaugur Þór yfir þau verkefni sem framundan eru. Hann ítrekaði að ekki standi til að gera breytingar sem feli í sér ójafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu
Aðalfundur settur í fyrsta sinn
Elsa B. Friðfinnsdóttir setti í morgun 1. aðalfund félagsins. Á fundinum verða teknar til umfjöllunar og afgreiðslu ný lög félagsins. Elsa segir megin tilganginn með lögunum vera að gera félagið skilvirkara og gera það öflugri málsvara fyrir skjólstæðinga hjúkrunarfræðinga
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið á Akranesi föstudaginn 30.maí n.k. Keppt verður í 2 flokkum: A flokkur; þeir sem eru með forgjöf 0-28 B flokkur; þeir sem eru með forgjöf 29-42 Vegleg verðlaun verða í boði Vistor
Verkfallsviðvörun í Noregi - 3000 starfsmenn fara í verkfall 23. maí náist samningar ekki við sveitafélögin í Noregi
Unio hefur sent frá sér viðvörun um að 3000 starfsmenn í 4 sveitafélögum muni fara í verkfall á föstudaginn 23. maí . Verkfallið nær til hjúkrunarfræðinga, kennara, forskólakennara, rannsakenda, sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa og skrifstofufólks
Sænskir hjúkrunarfæðingar enn í verkfalli.
Fulltrúar Vårdforbundet sátu fund hjá sáttasemjara á föstudag. Næsti fundur þeirra er boðaður í dag kl 15.00 Þagnarskylda ríkir um samningastarfið hjá sáttasemjara.
Verkfall hjúkrunarfræðinga í Danmörku hefur staðið í meira en mánuð. Rapp og rokk skapar góð samskipti.
Samhugur hjúkrunarfræðinganna aldrei meiri. Tónlist og söngvar um verkfallið heyrast reglulega þar sem hjúkrunarfræðingarnir hittast.
Framhaldsaðalfundi BHM lauk í dag. Ný stjórn tekin til starfa.
Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari, var í dag kjörin formaður Bandalags háskólamanna á framhaldsaðalfundi bandalagsins og Páll Halldórsson, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, var kjörinn varaformaður. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga átti ekki fulltrúa í framboði til stjórnar.
Aðalfundur BHM sendi frá sér harðorða ályktun og lýsir ábyrgð á hendur fjármálaráðherra
Aðalfundur BHM lýsir yfir áhyggjum vegna þeirrar pattstöðu sem samningaviðræður við ríkið eru komnar í. Það er óásættanlegt að samninganefndir aðildarfélaga bandalagsins mæti á fund eftir fund með samninganefnd ríkisins án þess að nokkrar eiginlegar viðræður eigi sér stað. Þessi kyrrstaða í samningamálunum er alfarið á ábyrgð fjármálaráðherra.
Úthlutun úr Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Í dag fór fram úthlutun styrkja úr B-hluta Vísindasjóðs Fíh. Veittir voru 23 styrkir til rannsóknaverkefna sem hjúkrunarfræðingar eru að vinna að.
Á vefsvæði Keilis er sagt að markmiðið sé að bjóða upp á hjúkrunarfræði til Bs gráðu.
Samkvæmt upplýsingum á vefsvæði Keilis www.keilir.net liggur ekki fyrir hvort og hvenær boðið verður upp á nám í hjúkrunarfræði en frá því er sagt að það verði kynnt vel þegar af því verður
Gagnrýna auglýsingar sem birst hafa um nám í hjúkrunarfræði á vegum Keilis
Forstöðumenn hjúkrunarfræðináms við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands gagnrýna auglýsingar sem birst hafa um nám í hjúkrunarfræði á vegum Keilis. Þeir tveir háskólar sem hafa leyfi frá menntamálaráðuneytinu til að mennta hjúkrunarfræðinga segja að engir formlegir samningar hafa átt sér stað milli skólanna og Keilis.
Fjórða verkfallsboðunin send út i Svíþjóð
Vårdforbundet hefur ákveðið að boða verkfall á 5 háskólasjúkrahúsum. Verkfallið nær til rúmlega 4000 starfsmanna og hefst 29. maí n.k. Þegar verkfallið hefst munu alls 10.000 félagsmenn í Vårdforbundet vera í verkfalli.
Samningar nást ekki í Danmörku - verkfall heldur áfram
Laus fyrir klukkan 20 á Þriðjudag stöðvuðust samningaviðræður milli Heilbrigðisbandalagsins og Danske Regioner. Þetta þýðir að félagar í Heilbrigðisbandalaginu halda áfram í verkfalli.
Sameiginlegt útboð lyfja fyrir sjúkrahús landsins
Öll sjúkrahús landsins munu sameinast um útboð á lyfjum í framtíðinni. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra en hann mun í dag kynna ýmsar nýjungar tengdar lyfjamálum. Einnig verður leitað samstarfs við öldrunarstofnanir í lyfjaútboðum.
Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Á aðalfundinum sem haldinn verður þann 15. maí í sal Fíh, verða flutt erindi um Ráðstefnu AACN í Chicago og um orkublund.
Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshús/orlofsíbúðir er lokið.
Lausr vikur í orlofshús ogórlofsíbúðir í sumar.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga
Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga, ICN, hefur ákveðið að Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga í ár verði helgaður mikilvægi hjúkrunarfræðinga í heilsuvernd og heilsugæslu sérhverrar þjóðar. Yfirskrift dagsins er: Heilsuvernd í höndum hjúkrunarfræðinga.
Kjarasamningar við fjármálaráðherra 2008
Samningasaðilar hittust á hittust og fóru yfir stöðu mála með ríkissáttasemjara í dag kl 13.00 Næsti fundur aðila hefur verið ákveðinn n.k. fimmtudag.
Verkefnastjóri kjara- og réttindamála uggandi vegna vaxandi þreytu á meðal hjúkrunarfræðinga
Skv. Cecilie B. H. Björgvinsdóttur verkefnastjóra kjara- og réttindamála hjá Fíh hafa hjúkrunarfræðingar leitað talsvert til félagsins að undanförnu til þess að kanna hvað hafa beri í huga þegar/ef skipt er um starf. Helstu ástæður sem félagsmenn gefa fyrir fyrirhuguðum breytingum á starfsvettvangi er langvarandi og viðvarandi álag í starfi sökum mannekklu.
100 ára
100 ára er í dag Ragna Nordal hjúkrunarkona. Ragna lauk hjúkrunarnámi 34 ára gömul og vann hún m.a. á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Heilsuhælinu í Hveragerði og á Kleppsspítala. Hún er næstelsta hjúkrunarkonan á lífi á Íslandi og dvelur nú á Hrafnistu. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar henni til hamingju með daginn.
Gengið gegn slysum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í göngunni gegn slysum á fimmtudaginn 8. maí n.k. kl. 16:30. Gengið er frá Landspítala Hringbraut (Eiríksgötu megin) Skrifstofa félagsins verður lokuð frá kl. 16:00.
Hjúkrunarfræðingar í Danmörku
Hjúkrunarfræðingar sem starfs hjá ellefu sveitafélögum í Danmörku og fulltrúar vinnuveitenda þeirra munu eiga samningafund í dag. Hjúkrunarfræðingarnir eru eini hópurinn sem enn er í verkfalli í Danmörku eftir að önnur fagfélög féllust á samning stéttarfélagsins FOA um 12,8% launahækkun
Læknanemar ráðnir í störf hjúkrunarfræðinga
Árlega berast tilkynningar og kvartanir til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um ráðningu læknanema í stöður hjúkrunarfræðinga, sérstaklega á öldrunarstofnunum. Félagið hefur brugðist við þessum athugasemdum með því að senda á hverju vori, bréf til allra hjúkrunarforstjóra þar sem lögverndun starfa hjúkrunarfræðinga er ítrekuð
Fundur trúnaðarmanna haldinn 30.apríl hvetur hjúkrunarfræðinga til að fylgja reglum um hvíldartímtilskipun
Á fundinum kom fram að túnaðarmenn Fíh hvetja hjúkrunarfræðinga til að eyða tíma með fjölskyldu sinni, fremur en að taka yfirvinnu sem brjóti í bág við vinnutímatilskipun Evrópuþingsins.
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
