Fréttasafn eftir mánuðum//
Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins er lokið. Fundurinn var árangurslaus. Næsti fundur er boðaður á næstkomandi mánudag. Fíh heldur fundi um stöðuna í samningamálum og um boðað yfirvinnubann sem hefst þann 10. júlí kl 16.00
Ljósmæður skrifuðu ekki undir samning BHM við ríkið
Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir í viðtali við Morgunblaðið að samninganefnd ríkisins hafi ekki komið að neinu leyti til móts við þær kröfur um launaleiðréttingu sem ljósmæður hafi farið fram á og verið studdar af öllum félögum BHM sem hafi átt samleið í samningaviðræðunum. Krafist sé sex ára háskólamenntunar hjá ljósmæðrum en aukamenntun hafi ekki verið metin heldur séu launin svipuð og hjá illa launaðri stétt með fjögurra ára háskólamenntun.
Heilbrigðisráðherra segir að yfirvinnubann hefði mjög slæm áhrif og væntanlega neikvæð á árangur við styttingu biðlista
Verði boðað yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga að veruleika má ljóst vera að öllum aðgerðum sem hugsanlega geta beðið verður frestað. Aðspurður af blaðamanni Morgnblaðsins segist Guðlaugur Þór vissulega hafa áhyggjur af því að yfirvinnubannið verði að veruleika.
Yfirlýsing frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins hittust á fundi í dag hjá ríkissáttasemjara. Fundurinn var árangurslaus. Í ljósi þessa hefur Fíh boðað til yfirvinnubanns hjúkrunarfræðinga sem starfa á samningi Fíh við fjármálaráðherra fh. ríkissjóðs frá kl. 16.00 fimmtudaginn 10. júlí 2008. Frá þeim tíma að telja og þar til samningar nást munu hjúkrunarfræðingar einungis skila vinnuskyldu sinni í samræmi við umsamið starfshlutfall, en er óheimilt að vinna alla yfirvinnu.
94,6% fylgjandi yfirvinnubanni
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um heimild til boðunar yfirvinnubanns frá og með 10 júlí nk. meðal hjúkrunarfræðinga sem starfa á ríkisstofnunum liggur nú fyrir Alls voru 2.068 á kjörskrá. 1.316 greiddu atkvæði eða alls 63,64% Af þeim sem greiddu atkvæði voru 94,6% fylgjandi boðun yfirvinnubanns en 5,4% andvígir. Samninganefnd Fíh hefur verið boðuð til fundar með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara á miðvikudag. Í framhaldi þess fundar mun Fíh gefa frá sér yfirlýsingu.
Atkvæðagreiðslu félagsmanna sem vinna hjá ríki lauk á miðnætti
Atkvæðagreiðslu um boðun yfirvinnubanns frá og með 10 júlí n.k. meðal hjúkrunarfræðinga sem starfa á ríkisstofnunum lauk á miðnætti. Starfsmenn Outcome sem hafði umsjón með atkvæðagreiðslunni vinna nú að úrvinnslu atkvæða. Stjórn Fíh mun hittast eftir hádegi í dag.
Yfirvinna orsök þunglyndis og kvíða?
Fólki sem vinnur yfirvinnu er hættara við þunglyndi og kvíða ef marka má niðurstöður norskrar rannsóknar.Það var hópur rannsóknarfólks við Háskólann í Björgvin í Noregi sem skoðaði rúmlega 10.000 manna hóp sem vann ýmist 40 tíma á viku og skemur eða 41 til 100 tíma.
Engar yfirlýsingar eftir fund BHM með ráðamönnum
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM), segir fund sem forsætisráðherra bauð fulltrúum BHM til með fjármála- og utanríkisráðherra í morgun að mörgu leyti hafa gengið mjög vel
Verkfalli lokið í Danmörku - Heilbrigðisbandalagið hefur samið um 13,3% hækkun eftir 8 vikna verkfall.
Stéttarfélög heilbrigðisstarfsfólks á vegum danskra sveitarfélaga sem mynda Heilbrigðisbandalagið(Sundhedskartellet) höfðu krafist 15% launahækkunar fyrir félagsmenn sína en samkomulag náðist um 13,3% launahækkun á næstu þremur árum.
Árangurslausum fundi samninganefnda Fíh og ríkisins hjá sáttasemjara lokið - Næsti fundur ekki fyrr en eftir 2 vikur
Fundi samninganefndanna sem haldinn var hjá sáttasemjara í morgun lauk án árangurs . Formsins vegna hefur næsti fundur verið boðaður eftir hálfan mánuð.
Opnað hefur verið fyrir rafræna atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann.
Hér að ofan geta þeir félagsmenn sem starfa á ríkisstofnunum greitt atkvæði um tillögu stjórnar um yfirvinnubann. Öllum félagsmönnum sem eru á kjörskrá hafa verið sendir veflyklar í pósti og ættu hann að berast þeim næstu daga. Atkvæðagreiðslu lýkur með lokun kjörsíðu þann 22. júní kl 23.59
Hjúkrunarfræðingar í Danmörku auka við aðgerðir sínar á mánudag
Á meðan félags-og heilbrigðisaðstoðarmenn (SOSU) og vaktmenn á sjúkrahúsum í Danmörku hafa endanlega afblásið aðgerðir sínar,tilkynntu hjúkrunarfræðingar að þeir muni frá og með mánudegi auka við aðgerðir sínar.
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður út júní mánuð
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður út júní mánuð vegna áherslu á gerð kjarasamninga. Félagsmenn eru beðnir um að senda erindi í tölvupósti á netfangið: cissy@hjukrun.is
Atkvæðagreiðsla um yfirvinnubann
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ákvað á fundi sínum fyrr í dag að efna til atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann frá og með 10. júlí 2008 á meðal þeirra félagsmanna sem starfa á ríkisstofnunum.
Árangurslausum samningafundi lokið
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins lauk fyrir skömmu í húsnæði ríkissáttasemjara án árangurs. Samninganefnd Fíh lagði á fundinum fram tilboð sem var hafnað af hálfu SNR, sem ítrekaði fyrra tilboð sitt. Næsti fundur hefur þó verið boðaður n.k. þriðjudag.
Verkfalli lokð í norskum sveitafélögum utan Osló
Verkfalli starfsmanna sveitafélaga í Noregi er lokið og vinna hefst að nýju frá kl 06.00 á morgun 5. júní. Þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst við sveitafélögin heldur verkfall Unios í Osló áfram þar sem engin samskipti hafa átt sér stað milli samningsaðila þar. Unio eykur við aðgerðir í Osló og um 1500 manns munu verða í verkfalli í sveitarfélaginu.
Opnunartími skrifstofu í sumar
Skrifstofa Fíh er opin milli kl 09 - 16.00 alla virka daga í júní, júlí og ágúst
Styrkir til framhaldsnáms og rannsókna - og vísindastarfa hjúkrunarfræðinga
Fíh auglýsir til umsóknar styrki úr minningasjóðum Hans Adolfs Hjartarsonar, Minningasjóði Kristínar Thoroddsen og úr Rannsókna og vísindasjóði hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur um styrkina er til 1. október 2008
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
