Fréttasafn eftir mánuðum//
Opið bréf til hjúkrunarfræðinga
Fyrir hönd stjórnar og samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vil ég þakka ykkur fyrir góða þátttöku í atkvæðagreiðslum um þá kjarasamninga sem þegar hafa verið undirritaðir og samþykktir á þessu sumri.
Samkomulag Fíh og Reykjalundar einróma samþykkt
Samkomulag Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar frá 23. júlí sl. var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Alls voru 36 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 20 eða 55,6%. Samkomulagið var einróma samþykkt á kjörfundi nú síðdegis.
Kjarasamningur Fíh við ríkið samþykktur með 91% atkvæða
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 9. júlí sl. var samþykktur með 91% greiddra atkvæða.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur einróma
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjavíkurborgar frá 21. júlí sl. var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Alls var 31 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 14 eða 45,2%. Samningurinn var einróma samþykktur á kjörfundi nú síðdegis.
Kjarasamningur við Reykjalund undirritaður
Í dag undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi félagsins við Reykjalund.
Hjúkrunarfræðingar - greiðið atkvæði - náum 60% þátttöku
Nú kl. 15:00, þriðjudaginn 22. júlí, höfðu 1069 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar rúmlega 51% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði. Nú fer hver að verða síðastur að greiða atkvæði því atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 11:59 á morgun.
Hjúkrunarfræðingar - hafið skoðun á eigin kjörum - greiðið atkvæði í dag
Í morgun, þriðjudaginn 22. júlí, höfðu 982 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar rúmlega 47% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði.
Samkomulag við Reykjavíkurborg undirritað
Í dag undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.
Hjúkrunarfræðingar - greiðið atkvæði um kjarasamninginn
Í morgun, mánudaginn 21. júlí, höfðu 743 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar 36% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði. Stjórn og kjörnefnd Fíh skorar á þá félagsmenn sem fengið hafa veflykil í pósti að nýta atkvæðisréttinn og greiða atkvæði sem fyrst.
14 sótt um forstjórastarf á Landspítala
Fjórtán einstaklingar sóttu um starf forstjóra Landspítala en umsóknarfrestur rann út 15. júlí. Nýr forstjóri tekur við starfinu 1. september 2008.
Kennitölur og atkvæðagreiðsla
Þau mistök urðu við útprentun bréfa til þeirra félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem nú greiða atkvæði um kjarasamning félagsins við ríkið, að kennitölur og nöfn félagsmanna passa ekki saman. Fullt samræmi er hins vegar á milli nafns hvers félagsmanns og þess veflykils sem hún/hann fékk úthlutað í útsendu bréfi. Kjörnefnd Fíh hefur úrskurðað að þessi villa hafi ekki áhrif á atkvæðagreiðsluna, þar sem veflykillinn tengist nafni viðkomandi en ekki kennitölu. Um leið og félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni eru þeir beðnir afsökunar á þessum mistökum.
Hefur þú áhuga á að læra eitthvað nýtt og hitta hjúkrunarfræðinga allsstaðar að úr heiminum
Þú hefur nú frábært tækifæri til að taka þátt í ráðstefnu International Council of Nursing (ICN) í Durban í SuðurAfríku sumarið 2009, hitta hjúkrunarfræðinga allsstaðar að úr heiminum, mynda tengslanet og skiptast á hugmyndum og vitneskju. Hjúkrunarfræðingar ættu að hvetja starfsfélaga sína til þátttöku því ráðstefnan er sérlega góður hugmyndabrunnur fyrir daglegt starf þeirra.
Helstu áhrif nýs kjarasamnings
Með þeirri kerfisbreytingu sem gerð var í þessum nýja samningi hækka dagvinnulaun reynds hjúkrunarfræðings í kr. 327.339- eða um tæp 14%. Ný útskrifaðir hjúkrunarfræðingar hækka í dagvinnulaunum um rúm 15%.
Kjarasamningur undirritaður og yfirvinnubanni aflýst
Nýr kjarasamningur Fíh við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var undirritaður rétt fyrir kl. 22 í kvöld.
Fundi frestað til morguns
Samninganefndir Fíh og ríkisins hafa fundað stíft frá því snemma í gærdag. Fundi hefur verið nú verið frestað til klukkan 11 á morgun.
Unnið að endurnýjun kjarasamnings við Reykjavíkurborg
Viðræður samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar Reykjavíkurborgar eru nú hafnar. Hafa aðildar fundað í þrígang og Fíh lagt fram áherslur sínar í samningunum.
Fjölmenni á fundum um boðað yfirvinnubann
Formaður félagsins og verkefnastjóri kjara- og réttindamála funduðu með á fjórða hundrað hjúkrunarfræðingum víða um land í liðinni viku. Fundarefnið var kjaraviðræður félagsins við samninganefnd ríkisins og boðað yfirvinnubann.
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður til 1. september n.k.
Grafalvarlegt ástand skapast á fyrstu klukkustundum yfirvinnubanns - Fjölmennur fundur á Grand Hótel
Fjöldi hjúkrunarfræðinga kom saman á fundi á Grand Hóteli í Reykjavík í kvöld til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við samninganefnd ríkisins, og boðað yfirvinnubann. Formaður og verkefnastjóri kjara- og réttindamála félagsins, ásamt fulltrúum úr samninganefnd félagsins, kynntu gang kjaraviðræðnanna og þau lög og reglur sem gilda í boðuðu yfirvinnubanni. Miklar umræður urðu á fundinum. Einstök samkennd og baráttukraftur ríkti og hjúkrunarfræðingar gáfu tóninn með miklu hvatningaklappi
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
