Fréttasafn eftir mánuðum//

29.08.2008  //

Kynning á kjarasamningi við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu

Samkomulagið verður kynnt á fundi í húsnæði Fíh að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík miðvikudaginn 3. september kl. 16:00. Boðið verður upp á fjarfund til þeirra hjúkrunarfræðinga sem starfa á einhverri ofantaldra stofnana sem eru utan höfuðborgarsvæðisins.

29.08.2008  //

Námskeið í boði hjá BHM eru ókeypis fyrir félagsmenn Fíh

Fræðslunefnd BHM býður félagsmönnum upp á fjölbreytta fræðsludagskrá í vetur. Í september verður boðið upp á fyrirlestra sem tengjast jafnrétti kynjanna, námskeið um örugga framkomu og fjölmiðla og síðast en ekki síst námskeið í að semja um hærri laun. Flestir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Námskeið og fyrirlestrar eru félagsmönnum aðildarfélaga BHM að kostnaðarlausu.

29.08.2008  //

"Að vinna með fólk og með fólki er mest gefandi af öllu" segir Hulda Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem ráðin hefur verið forstjóri Landspítala

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-háskólasjúkrahússins í Ósló, hefur verið ráðinn nýr forstjóri Landspítalans. Alls sóttu fjórtán einstaklingar um starf forstjóra, átta konur og sex karlar. Hulda tekur til starfa 1. september 2008.

29.08.2008  //

Sjálfstæður rekstur hjúkrunarfræðinga

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og heilbrigðisráðuneytið vinna nú að gerð rammasamnings um sjálfstæðan rekstur hjúkrunarfræðinga.

28.08.2008  //

Hlaupið til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH

Starfsfólk gjörgæsludeildar LSH hljóp til styrktar skjólstæðingum deildarinnar.

27.08.2008  //

Samgönguráðuneytið úrskurðar uppsögn hjúkrunarfræðings hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands ólögmæta

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands (HV) sagði í nóvember 2007 hjúkrunarfræðingi upp störfum. Ástæða uppsagnar var sögð af rekstrarlegum toga. Þann 30. júlí s.l. úrskurðaði ráðuneytið uppsögnina ólögmæta.

26.08.2008  //

Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna kjaradeilu ljósmæðra

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir kröfur Ljósmæðrafélags Íslands um aukið verðmat á háskólanámi.

26.08.2008  //

Hjúkrunarfræðingar í forystu í Reykjavíkurmaraþoni

Tveir hjúkrunarfræðingar voru meðal efstu kvennanna í Reykjavíkurmaraþoni 23. ágúst sl. Björg Árnadóttir var í fjórða sæti og fyrsta íslenska konan til að ljúka keppni. Í áttunda sæti og 3. íslenska konan í mark var Sigrún Barkardóttir. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar þær Björgu og Sigrúnu til hamingju með árangurinn.

25.08.2008  //

Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) undirritaður

Fíh undirritaði kjarasamning við SFH rétt í þessu. Kjarasamningurinn er sambærilegur kjarasamningi félgasins við ríkið.

21.08.2008  //

ICN kynnir útgáfu 1.1. af Alþjóðlegum stöðlum fyrir hjúkrun - International Classification for Nursing Practice (ICNP®)

Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga hleypti í dag af stokkunum útgáfu 1.1. af Alþjóðlegum stöðlum fyrir hjúkrun - International Classification for Nursing Practice (ICNP®) og gerði þá rafrænt aðgengilega um allan heim. ICNP er samræmt hjúkrunartungumálakerfi sem gefur kost á þróun og samsvörun staðbundinna skilgreininga og fagorða.

19.08.2008  //

Haustþing Læknafélags Akureyrar og Norðausturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Haustþing Læknafélags Akureyrar og Norðausturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldið að Hólum, Menntaskólanum á Akureyri laugardaginn 4.október 2008. Haustþingið ber yfirskriftina "Bráðaþjónusta á landsbyggðinni"

18.08.2008  //

Golfmót Hjúkrunarfræðinga

Síðara golfmóti hjúkrunarfræðinga 2008 verður haldið föstudaginn 29. ágúst kl. 13:00 á golfvellinum Seltjarnanesi og verður ræst út af ölllum teigum samtímis. Það verður keppt í 2 flokkum og er hæsta forgjöf 40.

13.08.2008  //

Endurmenntun býður upp á nám í hugrænni atferlismeðferð: eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám fyrir háskólamenntað starfsfólk heilbrigðiskerfisins

Umsóknarfrestur er til 18. ágúst. Eins árs námið er fyrst og fremst hagnýtt nám og er ætlað fyrir ýmsar háskólamenntaðar fagstéttir sem geta nýtt aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í sínu starfi, s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, kennara, þroskaþjálfa og náms- og starfsráðgjafa. Boðið verður upp á tvær leiðir í eins árs náminu, eina fyrir fagfólk á heilbrigðissviði og aðra fyrir fagfólk á menntasviði.

01.08.2008  //

Yfir 80.000 síðuflettingar á www.hjukrun.is í Júlímánuði

Aldrei fyrr hafa jafn margir skoðað vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga en nú í Júlímánuði 2008. Alls voru gerðar 81.453 síðuflettingar á vefsvæðinu þennan mánuð sem er um 100% aukning frá meðalmánuði.