Fréttasafn eftir mánuðum//

31.01.2011  //

Heilsunámskeiðið á Akureyri uppbókað

Lokað hefur verið fyrir skráningu á heilsunámskeiðið á Akureyri þar sem námskeiðið er nú fullbókað. Þeir hjúkrunarfræðingar sem voru búnir að skrá sig en áttu eftir að staðfesta þátttökuna með greiðslu námskeiðsgjaldsins eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Aðalbjörgu J. Finnbogadóttur í síma 5406403.

18.01.2011  //

Samkomulag um varðveislu hjúkrunarminja

Þann 10. janúar síðastliðinn var undirritað samkomulag milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Lækningaminjasafns Íslands um varðveislu hjúkrunarminja og samstarf um miðlun á sögu hjúkrunar.

17.01.2011  //

Næringin í sögunni - Líflegt námskeið þar sem skapandi skrif og sagnamennska eru í aðalhlutverki

Félag íslenskra hjúkrunarfræðingar heldur námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja auka hæfni sína í skapandi skrifum og sagnamennsku. Námskeiðinu er ætlað meðal annars að þjálfa hjúkrunarfræðinga í því að segja og skrifa sögur úr lífi sínu og starfi á skemmtilegan og lifandi hátt

12.01.2011  //

Heilsunámskeið á Akureyri og Egilsstöðum

Fyrirhugað er að halda á Akureyri og Egilsstöðum heilsueflandi námskeið sem byggist á námskeiðinu 8 vikur fyrir vellíðan. Sólfríður Guðmundsdóttir sér um námskeiðin. Skráning er hafin.

07.01.2011  //

Endurmenntun býður upp á námskeið í hagnýtri norsku og sænsku fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Námskeiðin eru hugsuð fyrir fólk í heilbrigðisstéttum sem vegna atvinnu sinnar og/eða fyrirhugaðs náms þurfa að nota sænsku eða norsku í starfi og námi.

06.01.2011  //

Háskóli Íslands 100 ára

Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands býður Heilbrigðisvísindasvið upp á sex hádegisfyrirlestrar á mánudögum og miðvikudögum í janúar, kl. 12:10-12:50.

04.01.2011  //

Fréttir af kjaramálum

Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fundaði í dag með Samninganefnd ríkisins og lagði þar fram markmið félagsins í yfirstandandi kjaraviðræðum. Næsti fundur aðila er áætlaður 20. janúar.