Fréttasafn eftir mánuðum//

27.04.2011  //

Styrkir til fagdeilda

Í dag voru afgreiddir styrkir til 19 fagdeilda og Öldungadeildar félagsins.

26.04.2011  //

Ályktun stjórnar Fíh um stöðu kjaraviðræðna við ríkið

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti á fundi sínum í dag ályktun um gang kjaraviðræðna við ríkið. Ályktunin fer hér á eftir:

26.04.2011  //

Öldrunarráð óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem þykja hafa unnið einstakt starf tengt málefnum aldraðra.

20.04.2011  //

Sólfríður Guðmundsdóttir þakkar félagsmönnum stuðninginn

Ágætu félagsmenn, um leið og ég þakka þann stuðning sem framboð mitt til formanns hlaut, vil ég óska Elsu til hamingju með kosninguna og vona að henni og félaginu vegni vel á komandi árum. .

20.04.2011  //

Formaður þakkar félagsmönnum traust þeirra

Ég þakka af alhug það traust sem þið hafið sýnt mér með því að kjósa mig til áframhaldandi formennsku í félaginu okkar starfstímabilið 2011-2013. Ég met stuðning ykkar mikils. Ég heiti ykkur því að leggja mig alla fram við að vinna sem best að hag hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinnar.

20.04.2011  //

Elsa B. Friðfinnsdóttir kjörin formaður Fíh kjörtímabilið 2011-2013

Kjörnefnd Fíh hefur að aflokinni talningu kynnt frambjóðendum niðurstöðu atkvæðagreiðslu í formannskjöri félagsins fyrir kjörtímabilið 2011-2013. Alls greiddu 50,61% atkvæðisbærra félagsmanna atkvæði. Elsa B. Friðfinnsdóttir hlaut 1.098 atkvæði eða 60,53% atkvæða en Sólfríður Guðmundsdóttir 702 atkvæði eða 38,70 % atkvæða.

16.04.2011  //

Formaður Fíh aðal ræðumaður á ráðstefnu ICN

Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh, verður einn aðal ræðumanna á alþjóðaráðstefnu Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga (ICN) sem haldin verður á Möltu dagana 5. – 7. maí.

15.04.2011  //

Nýr starfsmaður á skrifstofu Fíh

Guðrún Andrea Guðmundsdóttir hóf í dag störf á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Guðrún tekur við starfi fulltrúa af Soffíu Sigurðardóttur sem senn lætur af störfum vegna aldurs. Guðrún er boðin velkomin til starfa fyrir félagið og félagsmenn.

15.04.2011  //

Tímarit hjúkrunarfræðinga komið út

Nýtt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið út. Hægt er að skoða það á vefnum auk þess sem flestir hafa nú þegar fengið það heimsent.

14.04.2011  //

Atkvæðagreiðslu vegna formannskjörs er lokið

Hafi félagsmaður kosið skriflega þarf atkvæði hans að hafa borist kjörnefnd póststimplað í síðasta lagi þann 14. apríl 2011. Atkvæðisseðlar sem berast kjörnefnd eftir 18. apríl 2011 teljast ógildir óháð dagsetningu póststimpils. Kjörnefnd tilkynnir úrslit kosninganna þegar þau liggja fyrir, þó ekki fyrr en í fyrsta lagi 20.apríl 2011.

12.04.2011  //

Almenn ungbarnabólusetning gegn pneumókokkum hófst hér á landi 11. apríl

Samkvæmt dreifibréfi Landlæknisembættisins Nr. 2/2011 hófst bólusetning með bóluefninu Synflorix þar til niðurstaða útboðs liggur fyrir síðar á þessu ári.

12.04.2011  //

Golfmót hjúkrunarfræðinga 3. júní

Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið 3. júní á Strandarvelli.

11.04.2011  //

Tæp 24% atkvæðisbærra félagsmanna hafa greitt atkvæði um kjör formanns rafrænt

Á hádegi í dag þegar enn eru eftir 3 sólarhringar þangað til kosningu um formann félagsins lýkur hafa 834 félagsmenn skilað atkvæði sínu rafrænt. Kosningu lýkur á hádegi þann 14. apríl og eru félagsmenn hvattir til að greiða atkvæði.

04.04.2011  //

Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 19. maí næstkomandi. Þar verður kosið í stjórn og nefndir samkvæmt lögum félagsins

02.04.2011  //

Aprílgabb um EFN

Frétt okkar í gær um EFN flytjist til Íslands var auðvitað gabb. Leiðréttist það hér með.

01.04.2011  //

Ísland ný heimkynni EFN

Ákveðið var á fundi Evrópusamtaka hjúkrunarfræðinga, EFN, í Reykjavík í dag að höfuðstöðvar EFN flytjist til Reykjavíkur.

01.04.2011  //

Vefkynningar frambjóðenda til formanns komnar á vef kjörnefndar

Frambjóðendur hafa hvor um sig skilað kjörnefnd kynningarmyndböndum sem sett hafa verið á vefsvæði nefndarinnar til að félagsmenn geti kynnt sér stefnu þeirra.