Fréttasafn eftir mánuðum//

31.05.2012  //

Ný uppfærsla á orlofsvefnum

til að auðvelda félagsmönnum aðgengi að orlofsvef Fíh hefur vefurinn fengið nýtt viðmót.

30.05.2012  //

Starfsmenntunarsjóður úthlutaði 27 milljónum á árinu 2011

Starfsmenntunarsjóður hefur styrkt félagsmenn með um 27 milljónir á árinu 2011 og 11 milljónir það sem af er árinu 2012.

29.05.2012  //

Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur hlýtur viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands

Öldrunarráð Íslands veitti í dag dr Ingibjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræðingi viðurkenningu fyrir einstakt framlag í þágu aldraðra. Ingibjörg hefur unnið að rannsóknum á sviði öldrunarhjúkrunar og þverfaglegum rannsóknum á sviði öldrunarfræða og auk þess tekið þátt í starfi stýrinefndar um rannsóknir á mælitækjum RAI-staðla á vegum heilbrigðisráðuneytisins (nú velferðarráðuneyti) frá árinu 1993.

29.05.2012  //

Ályktun aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2012

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldinn 24. maí 2012, ályktaði um áhrif og hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðiskerfinu á Íslandi

29.05.2012  //

Fréttir frá aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Aðalfundur Fíh var haldinn 24. maí 2012. Rúmlega 100 atkvæðisbærir félagsmenn sóttu fundinn.

24.05.2012  //

Aðalfundur Fíh 2012 - enginn pappír er notaður á fundinum

Aðalfundur félagsins var settur kl 09.00 undir yfirskrift gilda félagsins: Þekking - færni - umhyggja. Fundurinn er í fyrsta sinn algjörlega pappírslaus ef frá er talið boðunarbréf sem sent var öllum félagsmönnum. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh lýsti í setningaræðu sinni stöðu hjúkrunarfræðinga í öðrum evrópulöndum og sagði íslenskum hjúkrunarfræðingum skylt að fylgjast með stöðu kollega sinna erlendis. Íslenskir hjúkrunarfræðingar standa frammi fyrir erfiðum verkefnum og mestum áhyggjum veldur að afleiðingar niðurskurðar og breyting á samsetningu mannaflans kemur ekki fram fyrr en misserum eða árum eftir að breytingar voru gerðar.

24.05.2012  //

Diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um diplómanám í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu næsta háskólaár er 5. júní n.k.

22.05.2012  //

Ársfundur LSR og LH

Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins.

16.05.2012  //

Bókin Family Nursing in Action til sölu á skrifstofu Fíh á sérstöku tilboðsverði kr. 4000

Í nýjasta hefti tímaritsins Journal of Family Nursing, kemur fram að bókin sé sérlega áhugaverð fyrir alþjóða hjúkrunarsamfélagið og hafi mikið notagildi fyrir kennslu í grunn-og framhaldsnámi í hjúkrunarfræði. Ritstjórar bókarinnar eru Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Helga Jónsdóttir.

16.05.2012  //

25 ára afmælisráðstefna heilbrigðisvísindasviðs og Háskólans á Akureyri

Heilbrigðisvísindasvið og Háskólinn á Akureyri bjóða til afmælisráðstefnu

14.05.2012  //

Breytingar á úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóða Fíh

Vegna mikillar aukningar umsókna um styrki úr styrktar- og sjúkrasjóðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) samþykkti stjórn Fíh á fundi sínum 7. maí, að breyta úthlutunarreglum sjóðanna.

10.05.2012  //

Málþing Fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga

Fagdeildin heldur málþing sitt í húsnæði Fíh þann 13. maí

04.05.2012  //

Hátíðardagskrá í tilefni Alþjóðadags hjúkrunarfræðinga

HAGNÝTING RANNSÓKNA Í HJÚKRUN: Gagnreynd þekking í verki

04.05.2012  //

Vika hjúkrunar 2012 á Landspítala

Áhugaverð erindi opin öllum á Viku hjúkrunar hjá Landspítala

04.05.2012  //

9 miljónum króna úthlutað til rannsókna hjúkrunarfræðinga

25 rannsóknarverkefni hjúkrunarfræðinga hlutu styrk úr Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

03.05.2012  //

Lög um heilbrigðisstarfmenn samþykkt á Alþingi

Lög um heilbrigðisstarfmenn voru samþykkt á Alþingi í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem sett eru heildarlög um alla heilbrigðisstarfsmenn hér á landi, en löggiltar heilbrigðisstéttir eru nú 33. Við gildistöku laganna falla úr gildi sérlög um heilbrigðisstéttir þar á meðal hjúkrunarlög.