Fréttsafn eftir árum//
Elsa B. Friðfinnsdóttir kjörin í stjórn ICN
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh var kjörin í stjórn ICN (International Council of Nurses) á fundi samtakanna, sem nú er haldinn í Melbourne í Ástralíu. Í stjórn ICN sitja 15 fulltrúar, sem
Orlofshús/íbúðir í sumar
Lausar vikur á Siglufirði í júní og annað skemmtilegt í boði
Palestinian Nurses Association (PNA) samþykkt sem aðili að ICN með öllum greiddum atkvæðum
National Association of Nurses in Israel (NANI) var fyrst til að lýsa yfir eindregnum stuðningi við umsókn PNA um aðild að Alþjóðaráði hjúkrunarfræðinga (ICN) á fulltrúaþingi þess sem stendur yfir í Melbourne í Ástralíu. Öll aðildarfélög ICN sem sækja þingið studdu umsókn PNA.
Furulundur, Akureyri laus um næstu helgi
Íbúðin að Furulundi, Akureyri laus um Hvítasunnuhelgina vegna forfalla.
Óskilamunir á skrifstofunni
Saknar þú peysu, kápu, trefils eða húfu!!!
Vika hjúkrunar á Landspítala hefst á mánudaginn
Í boði verða áhugaverðir hádegisfyrirlestrar, málþing um nýjungar í hjúkrun á göngudeildum og kynning á starfsnámi til sérfræðings í hjúkrun.
Orlofshús - Lausar vikur
Ennþá lausar vikur í sumar í orlofshúsum félagsins víðs vegar um landið.
18 hjúkrunarfræðingar hlutu styrk úr B-hluta Vísindasjóðs 2013
21 umsókn barst sjóðnum, 18 styrkir voru veittir.
Stofnanasamningur undirritaður í Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Endurskoðaður stofnanasamningur hjúkrunarfræðinga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var undirritaður í dag. Samningurinn er á sambærilegum nótum og þeir stofnanasamningar sem þegar hafa verið undirritaðir.
Skráning hafin á aðalfund Fíh 31. maí
Til að öðlast atkvæðisrétt á fundinum þurfa félagsmenn að skrá sig á fundinn í síðasta lagi viku fyrir aðalfund
Ólafur G. Skúlason kjörinn formaður Fíh kjörtímabilið 2013-2015
Við endurtekna atkvæðagreiðslu vegna formannskjörs Fíh sem lauk kl 17:00 í dag var Ólafur G. Skúlason kjörinn formaður Fíh fyrir árin 2013-2015. Hann hlaut alls 1.097 atkvæði eða 48,4% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var 61,4%
Atkvæðagreiðslu vegna endurtekins fomannskjörs lýkur kl 17:00 mánudaginn 29. apríl 2013.
Hafir þú ekki móttekið veflykil en teljir þig eiga atkvæðisrétt skaltu hafa samaband við skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Starfsmaður stofnunar án tilskilins leyfis í stöðu hjúkrunarfræðings.
Félagið lítur það alvarlegum augum að starfsmaður viðkomandi stofnunar hafi starfað í stöðu hjúkrunarfræðings og af vinnuveitanda fengið afhent auðkenni stofnunarinnar þessu til staðfestingar án fyrirliggjandi leyfisbréfs útgefnu af Embætti landlæknis. Félagið hvetur alla vinnuveitendur til þess að ráða ekki til starfa hjúkrunarfræðinga nema leyfisbréf þeirra liggi fyrir við upphaf starfs.
Formaður á vaktinni "Ég hvet félagsmenn til að sýna samstöðu og virða skyldur og ákvarðanir stjórnar félagsins"
Í pistli sínum fjallar Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Fíh um þá stöðu sem skapast hefur vegna ógildingar og endurtekningar formannskjörs. Hún hvetur félagsmenn til að sýna samstöðu og virða skyldur og ákvarðanir stjórnar félagsins. Jafnframt hvetur hún félagsmenn til að greiða atkvæði í formannskjörinu og tryggja nýjum formanni glæsilega kosningu
Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga útnefnir heiðursfélaga
Á aðalfundi fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga 7. mars 2013 var sú ákvörðun stjórnarinnar, að gera Kristinu Auði Sophusdóttur að fyrsta heiðursfélaga fagdeildarinnar, kynnt.
Skattfrjálsar samgöngugreiðslur til starfsmanna
Athygli félagsmanna er vakin á því að síðla árs 2012 samþykkti Alþingi breytingu á skattalögum sem tók gildi 1. janúar sl.
Endurtekin kosning til formanns Fíh fer fram 19.-29. apríl 2013.
Frá kjörnefnd vegna endurtekins formannskjörs í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga kjörtímabilið 2013-2015.
Skipun kjörnefndar vegna endurtekningar formannskjörs
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) skipaði, á fundi sínum í gær, kjörnefnd til að undirbúa og annast framkvæmd endurtekinnar formannskosningar í félaginu.
Heilbrigðismál eru kosningamál - Frambjóðendum til Alþingis sendar spurningar
Eins og fram kom í frétt félagsins þann 5 febrúar hefur efstu mönnum á lista framboða verið sent bréf með 3 spurningum um heilbrigðismál sem félagið óskar svara við.
Frestun aðalfundar FÍH til 31. maí 2013
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) hefur samþykkt að fresta aðalfundi félagsins, sem vera átti 3. maí næstkomandi, til 31. maí 2013.
Niðurstaða kjörnefndar í kærumáli vegna formannskjörs
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) skilaði í dag afstöðu til kæru Vigdísar Hallgrímsdóttur vegna framkvæmdar formannskosninga í FÍH. Kjörnefnd telur „ekki hjá því komist að ógilda niðurstöður kosningarinnar og að kosning til formanns í félaginu fari fram að nýju“. Niðurstaða kjörnefndar er samhljóða áliti Ástráðs Haraldssonar, hæstaréttarlögmanns, en stjórn FÍH hafði leitað álits hans á meintum ágöllum í framkvæmd kosningarinnar.
Styrkur til fagaðila
Stuðningsfélagið Einstök börn veitir árlega einn styrk að upphæð allt að kr. 200.000,- til fagaðila vegna ferða á ráðstefnur eða námskeið erlendis um málefni sjaldgæfra sjúkdóma.
Frétt af formannskjöri
Eins og fram hefur komið hér á vefsvæði félagsins var framkvæmd formannskosningar hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga kærð til kjörnefndar félagsins. Kjörnefnd hyggst úrskurða í kærunni síðar í vikunni.
5. apríl rennur út frestur til að gera tillögu til lagabreyting og leggja til efni undir liðnum önnur mál á aðalfundi félagsins.
Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins minnst 4 vikum fyrir aðalfund. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Mál, sem ekki er tilgreint á útsendri dagskrá aðalfundar verður því aðeins tekið þar fyrir að meiri hluti atkvæðisbærra fundarmanna á fundinum samþykki það.
Endurskoðun stofnanasamninga á FSA, HVE og HH
Endurskoðun stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) er nú á lokastigi. Endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) er komin vel á veg. Þær fréttir berast nú til samstarfsnefnda stofnananna
Starfslokanámskeið
Hið árlega námskeið Fíh fyrir hjúkrunarfræðinga, sem eru að nálgast starfslok eða nýlega hættir störfum, verður haldið dagana 22. og 24. apríl 2013
Tilnefningar - Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2013
Öldrunarráð óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands. Öllum er heimilit að senda inn tilnefningar.
Álit og kæra vegna formannskosningar
Umbeðið álit hæstaréttarlögmanns um lögmæti formannskosningar sem fram fór 1.-11. mars síðastliðinn liggur nú fyrir. Álitið verður ekki gert opinbert að svo stöddu þar sem
Heilbrigðiskerfið á heljarþröm - Ítarleg umfjöllun Mannlífs
"Íslendingar hafa löngum verið stoltir af heilbrigðiskerfi sínu enda er það ein af grunnstoðum íslensks velferðarþjóðfélags. Vel menntað starfsfólk og gott aðgengi að þjónustunni eru meðal þeirra þátta sem hafa einkennt heilbrigðiskerfið". Þetta er inngangur að ítarlegri grein Ragnheiðar Linnet í Mannlífi um heilbrigðiskerfi landsmanna.
Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum sem kosið verður um á aðalfundi. Frestur framlengdur til 5. apríl.
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 3. maí næstkomandi. Þar verður kosið í stjórn og nefndir samkvæmt lögum félagsins. Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum í • Kjörnefnd • Ritnefnd • Siða- og sáttanefnd • Skoðunarmenn reikninga
Stjórn Fíh óskar eftir úrskurði um lögmæti formannskosningar
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) ákvað á fundi sínum í dag, 19. mars 2013, að óska eftir úrskurði hæstaréttarlögmanns um lögmæti formannskosningar sem fram fór 1.-11. mars síðastliðinn.
Landlæknisembættið hefur sent frá sér Leiðbeiningar Fagráðs Embættis landlæknis um sjúklingaöryggi
Í dreifibréfi nr 1/2013 kynnir Landlæknisembættið vefritið Eflum gæði og öryggi í íslenskri heilbrigðisþjónustu
Styrkir til rannsókna vegna eyrnasuðs (tinnitus)
Liljusjóðurinn Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju Guðrúnar Hannesdóttur auglýsir til umsóknar styrki til rannsóknar vegna eyrnasuðs (tinnitus).
Ólafur G. Skúlason kjörinn formaður Fíh kjörtímabilið 2013-2015 með eins atkvæðis mun
Kjörnefnd hefur lokið talningu atkvæða í formannskjöri fyrir kjörtímabilið 2013-2015 og kynnir því niðurstöður atkvæðagreiðslunnar strax. Ólafur G. Súlason hlaut 29,86% atkvæða eða alls 565 atkvæði það er einu fleira atkvæði en Vigdís Hallgrímsdóttir en hún hlaut 564 atkvæði eða 29,81%. Hér að neðan er yfirlit kjörnefndar um niðurstöður atkvæðagreiðslunnar í heild sinni.
Atkvæðagreiðslu í formannskjöri vegna kjörtímabilsins 2013-2015 er lokið
Hafi félagsmaður kosið skriflega þarf atkvæði hans að hafa borist kjörnefnd póststimplað í síðasta lagi þann 8. mars 2013. Atkvæðisseðlar sem berast kjörnefnd með pósti eftir þann 12. mars teljast ógildir óháð dagsetningu póststimpils. Kjörnefnd tilkynnir úrslit kosninganna þegar þau liggja fyrir, þó ekki fyrr en í fyrsta lagi 18.mars 2013.
Landlæknisembættið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Lýðheilsusjóði.
Lýðheilsusjóður starfar samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, og reglugerð um lýðheilsusjóð, nr. 1260/2011. Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu, bæði innan og utan embættisins, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum.
Sumarúthlutun á orlofsvefnum
11. mars nk. kl. 9:00 um morgunin opnar fyrir sumarúthlutun á orlofsvefnum
Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Fíh heiðrar frumkvöðlastarf hjúkrunarfræðinga í heilsuvernd
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Boðað er til aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga föstudaginn 3. maí á Grand hóteli í Reykjavík.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti 8. mars 2013
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh flytur erind á fundinum sem haldinn verður í Iðnó. Félagsmenn er hvattir til að mæta eigi þeir þess kost.
Styrkur til umsóknar úr Vísindasjóði Öldrunarfræðafélags Íslands
Vísindasjóði Öldrunarfræðafélags Íslands er ætlað að styrkja vísinda-og rannsóknarverkefni tengdum málefnum aldraðra. Umsókn er tilgreini lýsingu, markmið og stöðu rannsóknar, ásamt fjárhagsáætlum og hvaða hluta rannsóknar sótt er um
Hjúkrunarfræðingar kynna sér formannsefni og stefnumál þeirra
Kynningarmyndbönd frambjóðenda, myndbönd af framboðsfundi og viðtöl fréttamanns www.hjukrun.is við frambjóðendur hafa verið spiluð nærri 5 þúsund sinnum á einni viku.
Undirbúningur fyrir ráðstefnuna Nordic Lung Congress vel á veg kominn
Í frétt frá Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga er vísað á vef ráðstefnunnar þar sem hægt er að lesa um 25 málstofur hjúkrunarfræðinga, lækna og einnig blandaðar málstofur ásamt allri dagskrá ráðstefnunnar.
Atkvæðagreiðsla vegna formannskjörs er hafin
Kl 12.00 í dag hófst rafræn atkvæðagreiðsla vegna formannskjörs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kjörtímabilið 2013-2015. Á kjörskrá eru 3.686 félagsmenn og hafa öllum verið send kjörgögn með veflykli til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Met í notkun á www.hjukrun.is í febrúar. Yfir 100.000 uppflettingar gerðar.
Febrúarmánuður var metmánuður í sögu vefsíðu félagsins því í mánuðinum voru 24.088 innlit á síðuna og gerðarvoru 104.073 síðuuppflettingar. Í sl. 4 ár hafa árlegar síðuflettingar að jafnaði verið um hálf milljón.
Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum sem kosið verður um á aðalfundi
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 3. maí næstkomandi. Þar verður kosið í stjórn og nefndir samkvæmt lögum félagsins. Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum í kjörnefnd, ritnefnd, stjórn orlofssjóðs, siða- og sáttanefnd og skoðunarmenn reikninga.
Endurgreiðsla umframgreiddra félagsgjalda
Félagsmenn fengu í dag endurgreidd umframgreidd félagsgjöld ársins 2012. Samtals nemur endurgreiðslan um 4 milljónum.
Velferðarráðuneytið hefur gefið út kröfulýsingu fyrir öldrunarþjónustu
Í kröfulýsingunni koma fram lágmarkskröfur sem velferðarráðuneytið gerir til þeirra sem annast rekstur hjúkrunar- dvalar- og dagdvalarrýma og til þjónustunnar sem þeir skulu veita.
Verkefna- og rannsóknarstyrkir SUMS
Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir tvo styrki að verðgildi 200 þúsund krónur hvor. Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS.
Rúmlega 200 hjúkrunarfræðingar sóttu vel heppnaðan fund frambjóðenda
Frambjóðendur til formanns Fíh kynntu framboð sitt á fjölmennum fundi hjúkrunarfræðinga á Grand Hótel Reykjavík í gær. Unnið er að því að gera upptökur af fundinum aðgengilegar hér á vef félagsins svo þeir sem ekki gátu sótt fundinn geti kynnt sér frambjóðendur og framgöngu þeirra.
Gengið frá breytingum á gildistíma kjarasamninga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur gengið frá breytingum á gildistíma kjarasamninga við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fyrirhugað er að ganga frá sambærilegu samkomulagi við Reykjavíkurborg og Reykjalund í þessari viku.
Launatafla frá Fjárslýslu ríkisins hefur nú verið gefin út
Launatafla fyrir hjúkrunarfræðinga með gildistíma frá 1. mars 2013 hefur nú verið birt hér á vefsvæði félagsins.
Formaður á vaktinni: „farið í manninn en ekki boltann“
Formaður félagsins segist í pistli sínum fagna því mjög að hjúkrunarfræðingar tjái sig um kjör sín og heilbrigðismál almennt. Flestir þeirra sem skrifað hafa á netmiðlana hafa gert það af yfirvegun þó stutt sé í tilfinningahitann. Hluti þeirra sem skrifað hafa á baklandið hafa hins vegar ekki lagt neitt efnislegt í umræðuna um stofnanasamningana og kjaramálin, þeir hafa einungis „farið í manninn en ekki boltann“, svo notað sé líkingamál úr knattspyrnunni.
Nokkur sæti laus á námskeiðin sem hefjast 7. mars
Aðeins tvö sæti laus á námskeiðið Núvitund og nokkur á námskeiðið um sár og sárameðferð
Stofnanasamningur kynntur hjúkrunarfræðingum Landspítala
Samstarfsnefnd um stofnanasamning hjúkrunarfræðinga á Landspítala kynnti samninginn fyrir hjúkrunarfræðingum í Hringsal kl. 13:00 í dag, miðvikudaginn 13. febrúar og í Norður-suður sal í Fossvogi kl. 17:00.
Stuðningsyfirlýsing frá hjúkrunarfræðingum hjá Heimaþjónustu Reykjavíkur.
Við hjúkrunarfræðingar hjá Heimaþjónustu Reykjavíkur lýsum yfir eindregnum stuðningi við hjúkrunarfræðinga Landspítala Háskólasjúkrahúss og hvetjum til þess að strax verði gengið frá stofnanasamningi við þá. Jafna þarf launamun kynja og launamun milli stofnana ríkisins.
Stofnanasamningur á LSH undirritaður í kvöld
Samstarfsnefnd um stofnanasamning hjúkrunarfræðinga á Landspítala undirritaði endurskoðaðan stofnanasamning um kl. 23 í kvöld. Samningurinn verður kynntur fyrir hjúkrunarfræðingum í Hringsal kl. 13:00 á morgun, miðvikudaginn 13. febrúar og í Norður-suður sal í Fossvogi kl. 17:00.
Stuðningsyfirlýsing frá stjórn Svæðisdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) á Austurlandi
Svæðisdeild Fíh á Austurlandi lýsir yfir stuðningi sínum við hjúkrunarfræðinga Landsspítalans í stofanansamningsgerð þeirra. Svæðisdeildin fagnar því að samkvæmt samþykkt ríkstjórnar Íslands frá 22.janúar s.l. eigi að ráðast í jafnlaunaátak til að rétta hlut starfsstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta.
Hjúkrunar- og ljósmæðraráð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á landsbyggðinni fylgjast náið með stöðunni þar. Nú er ljóst er að sú barátta sem hjúkrunarfræðingar Landspítalans eiga í þessa stundina mun hafa áhrif á alla starfandi hjúkrunarfræðinga landsins.
Sigríður Snæbjörnsdóttir hefur dregið framboð sitt til baka
Kjörnefnd hefur móttekið tilkynningu frá Sigríði, sem hafði boðið sig fram til formanns Fíh, þar sem fram kemur að hún dragi framboð sitt til baka.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ítrekar ákvæði laga um þagnarskyldu
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ítrekar ákvæði laga um þagnarskyldu og minnir á 3. gr. siðareglna hjúkrunarfræðinga þar sem segir meðal annars:
Nýr formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur við 3. maí
Núverandi formaður getur ekki gefið kost á sér til endurkjörs samkvæmt lögum félagsins
Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga lýsir yfir eindregnum stuðningi við hjúkrunarfræðinga Landspítala
Fagdeildin hvetur til þess að strax verði gengið frá stofnanasamningi við hjúkrunarfræðinga Landspítala Háskólasjúkrahúss
Félag ráðgjafa og stuðningsfulltrúa lýsir yfir stuðningi við hjúkrunarfræðinga
Stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa sendi eftirarandi ályktun sem samþykkt var á fundi þeirra í lok janúar.
Baráttukveðjur til hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Stjórn Norðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir hjúkrunarfræðingum á Landsspítala háskólastjúkrahúsi baráttukveðjur og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Meðaldagvinnulaun almennra hjúkrunarfræðinga eru 353.708 krónur
Samkvæmt kjarakönnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frá nóvember 2012 eru meðaldagvinnulaun almennra hjúkrunarfræðinga 353.708 krónur fyrir fullt starf. Þegar þessi laun eru greind niður á aldurshópa, þá eru meðaldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga á aldrinum
Heilbrigðismál – kosningamál?
Í undanfara alþingiskosninga sem fara fram í lok apríl mun Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) leita svara frambjóðenda við nokkrum spurningum um heilbrigðismál. Til að auðvelda hjúkrunarfræðingum að afla vitneskju um það hvort og hverju einstakir frambjóðendur til Alþingis hyggjast beita sér fyrir til endurreisnar heilbrigðiskerfisins mun Fíh leggja fyrir þá spurningar og birta svör þeirra í miðlum félagsins þ.e. Tímariti hjúkrunarfræðinga og vef félagsins www.hjukrun.is
Nærri 600 hjúkrunarfræðingar á fundi
Nærri 600 hjúkrunarfræðingar, sem starfa á Landspítala (LSH), sóttu fund í kvöld þar sem fjallað var um tilboð um endurskoðun stofnanasamnings á LSH. Eftir kynningu fulltrúa hjúkrunarfræðinga í samstarfsnefndinni tóku
7 í framboði til formanns Fíh
Framboðsfresti vegna formannskjörs lauk 31. janúar s.l. og buðu 7 félagsmenn sig fram til formanns. Nýr formaður Fíh verður kosinn í byrjun mars og kjöri hans lýst á aðalfundi 3. maí 2013.
Stuðningsyfirlýsing
Hjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) fagna samþykkt ríkisstjórnar Íslands og lýsa yfir eindregnum stuðningi við hjúkrunarfræðinga Landspítala Háskólasjúkrahús
Yfirlýsing frá fulltrúum hjúkrunarfræðinga í samstarfsnefnd Landspítala
Í samningaviðræðum samstarfsnefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Landspítala hefur það verið sameiginlegur skilningur beggja aðila að þær upphæðir sem rætt hefur verið um við samningsborðið séu trúnaðarmál. Forstjóri Landspítala ákvað í gær að rjúfa þann trúnað með því að láta fjölmiðlum
Endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala
Samstarfsnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Landspítala hittist á fundi í morgun 31. janúar 2013 um stofnanasaming hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar veita ekki hópafslátt
Hlé hefur verið gert á viðræðum um endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala (LSH). Bjartsýni hefur ríkt undanfarna daga um að samningar næðust, einkanlega vegna minnisblaðs velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra frá því fyrir viku.
Gæludýr - Orlofshús
Í orlofshúsinu að Lokastíg 1, Grímsnesi hefur verið ákveðið að leyfa gæludýr
Gjafabréf Wow air 2013
Gjafabréf Wow air 2013 voru að koma til sölu á orlofsvefnum.
Miðar í rétta átt í endurskoðun stofnanasamnings á LSH
Fundi samninganefnda um endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala (LSH) lauk um kl. 22:00 í gærkvöldi. Fundurinn var árangursríkur og leggja báðir aðilar samningsins allt sitt í að klára hann sem fyrst. Samninganefndirnar
Árangur af fundum Fíh með ráðherrum og þingflokkum
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu fjármála- og efnahagsráðherra og velferðarráðherra um að grípa þegar til aðgerða til að minnka launamun kvenna- og karlahópa. Í minnisblaði með tillögunni er vísað til gagna sem sýna launamun milli stofnana heilbrigðisgeirans og annarra ríkisstofnana.
Starfsmenntunarsjóður úthlutaði 11 milljónum í desember
Stjórn starfsmenntunarsjóðs kom saman í desember og samþykkti um 400 styrkumsóknir. Samtals úthlutaði sjóðurinn um 11 milljónum króna í þetta sinn. Sjóðsstjórn ákvað einnig að hámarksstyrkurinn fyrir 2013 verði 50.000 kr.
Fundur í samstarfsnefnd LSH
Viðræðum vegna endurskoðunar stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala var haldið áfram á fundi í dag. Áfram verður unnið að málinu samkvæmt verkáætlun.
Guð blessi Landspítalann
Pistill Elsu B. Friðfinnsdóttur formanns Fíh hefur skýra tilvísun í ræðu f.v. forsætisráðherra sem bað Guð að blessa Ísland þegar fjármálakerfi þess var að hruni komið. Í pistlinum bendir Elsa á að mörgum þykir eins og Landspítalinn sé að hruni kominn.
Afbókanir á orlofsíbúðum/húsum - breytingar á reglum um endurgreiðslu
Breytingar á reglum um endurgreiðslu vegna afbókana leigukosta orlofssjóðs voru samþykktar á fundi stjórnar sjóðsins í desmeber 2012. Markmiðið með breytingunum er að tryggja að hús orlofssjóðs standi ekki tóm heldur nýtist öðrum félagsmönnum og að sjóðurinn beri ekki kostnað af því að félagsmenn breyti áætlunum sínum með skömmum fyrirvara.
Gjafabréf Icelandair 2013 komin á vefinn
Gjafabréf Icelandair 2013 voru að koma til sölu á vef orlofssjóðs.
Yfirlýsing frá fundi trúnaðarmanna hjúkrunarfræðinga á LSH
Trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga á Landspítala (LSH) krefjast þess að nú þegar verði lokið við endurskoðun stofnanasamnings á LSH og laun hjúkrunarfræðinga hækkuð til samræmis við laun viðmiðunarhópa opinberra starfsmanna utan heilbrigðiskerfisins.
