Fréttsafn eftir árum//
Málþing um öryggi sjúklinga og starfsfólks
Fjölmennt málþing um öryggi sjúklinga og starfsfólks var haldið á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélags Íslands föstudaginn 26. nóvember sl.
Stjórnarfundur SSN og ráðstefna í Vilníus
Stjórnarfundur og haustráðstefna SSN 2004 voru haldin í Vilníus í Litháen dagana 25.-27. okóber sl.
YFIRLÝSING FRÁ FAGDELD LUNGNAHJÚKRUNARFRÆÐINGA
Aðalfundur fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga haldinn 16. nóvember 2004 lýsir yfir fullum stuðningi við áform
Ályktanir frá hjúkrunarþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fjölsótt hjúkrunarþing félagsins var haldið á Kaffi Reykjavík þann 5. nóvember s.l. Yfirskrift Hjúkrunarþingsins var Hjúkrun - hvert stefnir?
Nýr fjarfundarbúnaður tekinn í notkun
Með hinum nýja búnaði er unnt að senda fundi út á 12 staði víða um land
Málþing um öryggi sjúklinga og starfsmanna.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands hafa stofnað með sér samstarfsvettvang
Námstefna um lausnir við þvag- og hægðavanda verður haldin í Gerðubergi á morgun.
Námstefna um lausnir við þvag- og hægðavanda verður haldin í Gerðubergi, föstudaginn 19. nóvember 2004 kl. 13.00-16.45. Tíu áhugaverðir fyrirlestrar eru í boði og munu fyrirtæki kynna vörur á þessu sviði. Nánari upplýsingar er að finna á, www.tr.is
Rannsóknadagur stúdentaráðs Háskóla Íslands 12. nóvember 2004.
Föstudaginn 12. nóvember nk. stendur Stúdentaráð Háskóla Íslands fyrir Rannsóknadegi Háskólans í Öskju, í samstarfi við rektor Háskóla Íslands. Yfirskrift dagins er Nám og starf í Rannsóknaháskóla Íslands. Þar með vill Stúdentaráð minna á sérstöðu háskólans á sviði rannókna.
Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu
Oddfellowhúsið á Akureyri, 12.nóvember 2004 kl 10-16
Meistara- og diplómanám í opinberri stjórnsýslu
Hægt er að hefja meistara- eða dipólanám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands um næstu áramót. Hægt er að taka námið í fjarnámi, auk þess sem skipulag þess er með þeim hætti að hægt er að taka það sem hlutanám með starfi.
Hjúkrunarþing og afmælishóf
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkar þeim fjölmörgu hjúkrunarfræðingum sem fögnuðu 85 ára félagsstarfi hjúkrunarfræðinga í afmælishófi í Listasafni Reykjavíkur föstudaginn 5. nóvember.
Hjúkrunarþing og afmælishóf
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkar þeim fjölmörgu hjúkrunarfræðingum sem fögnuðu 85 ára félagsstarfi hjúkrunarfræðinga í afmælishófi í Listasafni Reykjavíkur föstudaginn 5. nóvember.
Málþing um skimun fyrir krabbameinum
Landlæknisembættið boðar til málþings um skimun fyrir krabbameinum fimmtudaginn 11. nóvember næstkomandi. kl. 13?16.30 í Norræna húsinu. Málþingið er einkum ætlað heilbrigðisstarfsfólki.
Norrænt málþing ?Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði?
Dagana 11. og 12. nóvember 2004 verður haldið hér norrænt málþing með yfirskriftinni ?Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði?. Málþingið er ókeypis og er opið öllum.
Vefkönnun um vikulegan vinnutíma hjúkrunarfræðinga er lokið
Rúm 90% vilja 36- 38 stunda vinnuviku
Breytingar á stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir 2. varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ákveðið að víkja nú þegar úr stjórn félagsins.
Nýr hjúkrunarforstjóri ráðinn til Hrafnistuheimilanna.
Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir hefur verið ráðin nýr hjúkrunarforstjóri
Lyfjastofnun hefur opnað nýja vefútgáfu sérlyfjaskrár
Lyfjastofnun vill kynna helstu breytingar og þá möguelika sem vefútgáfa sérlyfjaskrár býður upp á í upplýsingaöflun fagstétta á netinu.
Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna
Málþing rektors Háskóla Íslands og umboðsmanns barna haldið í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og Lögbergi 5. nóvember 2004 kl. 12:45-17:00
Endurhæfingarhjúkrun í nútíð og framtíð
Námstefna endurhæfingahjúkrunarfræðinga
Námstefna fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga "STREITA OG VINNU UMHVERFI " verður haldin föstudaginn 29. október 2004.
Staður: PharmaNor hf. Hörgatúni 2 Garðabæ Stund: Húsið opnar kl. 16:00, formleg dagskrá hefst kl. 16:30
Fræðsludagur um sár og sárameðferð
Vakin er athygli á fræðsludegi um sár og sárameðferð, sem haldinn verður fimmtudaginn, 28. október kl. 14:00 á Hótel Sögu.
Karlmannleg ímynd hjúkrunar. Fyrirlestur á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Fyrirlesturinn flytur Þórður Kristinsson mannfræðingur og stundakennari við HÍ. Fyrirlesturinn verður fluttur miðvikudaginn 27. október 2004, kl. 12:00 í stofu 103 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öllum opinn
Viðbrögð þolenda við einelti í skólum og á vinnustað Málstofa á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Fyrirlesturinn flytur Ragnar Ólafsson, MSc í félagssálfræði (London School of Economics) og MSc í rannsóknaraðferðum í sálfræði (University College London). Ragnar starfar sem verkefnastjóri við Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði. Málstofan verður haldin mánudaginn 25. október 2004, kl. 12:15 í stofu 103 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öllum opin
Desemberupphæð fyrir árið 2004 er kr. 38.000 fyrir 100% starf
Desemberuppbót fyrir árið 2004 er kr. 38.000 fyrir 100% og er greidd út í desember.
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Seinna golfmót hjúkrunarfræðinga fór fram á Korpúlstaðavellinum 17.sept 2004.
Vefkönnun um byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga er lokið
Um 40% telja byrjunarlaun eiga að vera á bilinu 225.000 - 250.000 krónur
Ert þú kona ? Ert þú til...?
Konur búa yfir ómetanlegum auðævum í menntun sinni - færni og upplifun. Allar konur hafa eitthvað fram að færa til samfélagsumræðunnar. Af því tilefni hvetur Kvenréttindafélag Íslands allar konur til að koma framlagi sínu á framfæri í kvennamaraþoni félagsins í Kringlunni (v/Hard Rock) helgina 23.-24. október næstkomandi.
Mikil aukning á heimsóknum á vefsvæði Fíh
Aukningin á uppflettingum á vef félagsins nemur rúmlega 34% frá því í marsmánuði 2004
Afmælisár Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Þá fer að líða að lokum afmælisárs hjúkrunarfræðinga. Lokaviðburðir ársins eru Hjúkrunarþing félagsins og afmælishóf og verða þeir á dagskrá 5. nóvember n.k.
Ráðstefna í Háskóla Ísalnds um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum
Ráðstefnan er haldin í tólfta sinn, nú í Öskju 4. 0g 5. janúar 2005 og er á vegum læknadeildar, tannlæknadeildar, lyfjafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands. Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 22. október 2004.
Brautryðjandinn María Lysnes er látin
Baráttukonan og brautryðjandinn María Lysnes er látin á 98. aldursári. María kom sem ráðgjafi til Nýja hjúkrunarskólans í janúar 1978 til að endurskoða og skipuleggja framhaldsnám í geðhjúkrun fyrir hjúkrunarfræðinga. Eftir það kom hún margoft til landsins og var gerð að heiðursfélaga Hjúkrunarfélags Íslands 1989 og fékk ótal aðrar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. Florence Nightingale orðuna árið 1977. Minningarorð um Maríu eftir Sigþrúði Ingimundardóttur birtast í næsta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga sem kemur út í lok október.
Námsstefna endurhæfingarhjúkrunarfræðinga
Fagdeild endurhæfingarhjúkrunarfræðinga í samvinnu við Reykjalund mun verða með námsstefnu á Reykjalundi föstudaginn 29.október 2004.
Stuðningsyfirlýsing við baráttu kennara
Á kjarakaffi Bandalags háskólamanna nú í vikunni var samþykkt að lýsa yfir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu kennara.
Dagur hjúkrunarfræðideildar Háskóla Ísladns
Þann 2. október 1973 hófst nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Hefur hjúkrunarfræðideild á undanförnum árum haldið uppá þessi tímamót á ýmsan hátt. Á þessu ári varð Dr. Helga Jónsdóttir prófessor við deildina. Af því tilefni mun hún halda erindið:
Viltu taka þátt í kvennamaraþoni?
Allar konur hafa eitthvað fram að færa til samfélagsumræðunnar. Af því tilefni hvetur Kvenréttindafélag Íslands allar konur til að koma framlagi sínu á framfæri í kvennamaraþoni félagsins í Kringlunni (v/Hard Rock) helgina 23.-24. október næstkomandi. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að taka þátt í umræðunni.
Þarft þú eða einhver þinna samstarfsmanna að kunna skil á stjórnsýslu- og upplýsingalögum í þínu starfi?
Á málþingi í mars s.l. um stjórnsýslulögin og reynsluna af þeim, varpaði þ.á.v. forsætisráðherra Davíð Oddsson fram þeirri hugmynd að forsætisráðuneyti í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Háskóla Íslands, stæðu sameiginlega að ítarlegri og vandaðri fræðslu um stjórnsýslulögin.
Bólusetning gegn inflúenzu
Landlæknisembættið hefur sent frá sér dreifibréf um bólusetningu gegn inflúenzu.
Golfmó hjúkrunarfræðinga 2004
Vegna veðurs frestuðum við golfmótinu sem fara átti fram 10 sept.
LOFT 2004
Ráðstefna um tóbaksvarnir. Dagana 16. ? 17. september 2004 verður haldiná
Skrifstofa starfsmannamála LSH auglýsir nú á Atvinnutorgi
Áður höfðu 3 svið LSH fengið beinan aðgang að birtingu auglýsinga um störf
Málþing um sár og stofnun þverfaglegra samtaka um sárameðferð
Verður haldið á Hótel Sögu 28. okt. n.k. kl. 14-18. Fyrirlesarar koma frá EWMA (Evrópsku sárasamtökunum)
Haustþing Læknafélags Akureyrar og Norðausturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
haldið í Hólum, húsnæði Menntaskólans á Akureyri, laugardaginn 25. september kl. 8:00-16:00
Ráðstefna skurðhjúkrunarfræðinga á Hótel Nordica í október
Ráðstefna fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga verður haldin á Hótel Nordica 2. október nk. Sjá dagskrá hér á eftir.
Atvinnutorg hjúkrunarfræðinga gefur góðan árangur
18 stofnanir og fyrirtæki hafa nú beinan aðgang að bókunarkerfi Atvinnutorgs hjúkrunarfræðinga. Síðustu 7 daga skoðuðu 130 einstaklingar auglýsingar um störf.
Vefkönnun um áherslur orlofssjóðs er lokið
Afstaða þátttakenda skiptist til helminga!
Skriftofan hefur nú opnað eftir sumarfrí
Starfsemi skrifstofu Fíh hefur nú hafist að nýju að loknum sumarleyfum. Skrifstofan er opin frá kl. 9:00-16:00 til ágústloka.
Enginn BHM fulltrúi í nýrri LÍN-nefnd
Stjórn bandalagsins mótmælir harðlega
Samræðuþing um eigindlegar rannsóknir
Verður haldið á Akureyri föstudaginn 17. september 2004
Heilsugæslunni í Reykjavík stefnt vegna umbunar til hluta hjúkrunarfræðinga við Miðstöð heimahjúkrunar í Reykjavík
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) ákvað á fundi sínum þann 5. júlí sl. að stefna forstjóra Heilsugæslunnar í Reykjavík (HR) fyrir Félagsdóm vegna umbunar hluta hjúkrunarfræðinga er starfa við Miðstöð Heimahjúkrunar í Reykjavík.
Íslenska ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna árásar á hjúkrunarfræðing
"Þessi niðurstaða er mikilvæg fyrir okkur og mikill sigur að fá þessa viðurkenningu á skaðabótaábyrgð ríkisins",
Viðurkenning til hjúkrunarnema vegna framúrskarandi námsárangurs.
Tveir hjúkrunarnemar, Berglind Hálfdánsdóttir og Elva Rut Jónsdóttir, hlutu viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristínar Thoroddsen
Fréttir af golfmót hjúkrunarfræðinga sem haldið var 4. júní s.l.
Fyrra golfmót hjúkrunarfræðinga á þessu ári fór fram föstudaginn 4.júní á Svarfhólsvelli við Selfoss. Mótið fór fram í blíðskapar veðri, hiti var um 20 stig og léttur andvari. Þetta er besta veðrið sem við höfum fengið til þessa.
Vefkönnun um læknanema í stöðum hjúkrunarfæðinga er lokið
Sláandi að 34 þátttakendur svara spurningunni játandi, en hafa verður í huga að svarendur gætu verið starfandi á sama vinnustað
Fundargerðir stjórnar á vef félagsins
Samkvæmt ákvörðun stjórnar hafa fundargerðir stjórnar verið gerðar aðgengilegar félagsmönnum á vefsvæði félagsins.
Orlofssjóður hefur fest kaup á íbúð á Klapparstíg 1 fyrir hjúkrunarfræðinga
Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur fest kaup á 2ja herbergja íbúð, í fjölbýlishúsi á Klapparstíg 1, (íbúð merkt 01.02) 101 Reykjavík.
Sumartími á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Frá og með 1. júní til 31. ágúst 2004 verður skrifstofa félagsins opin alla virka daga frá kl.9:00 til 16:00.
Vefkönnun um hjúkrunarfræðingatal er lokið
Tæplega 70% þeirra sem svöruðu hafa hug á að kaupa nýtt hjúkrunarfræðingatal komi það út á næsta ári
Hjúkrunarfræðingar takið eftir, enn eru til lausar vikur í sumarhús í sumar.
Nánari upplýsingar eru á Orlofsvefnum > Sjálfsafgreiðsla. Fyrstir panta - Fyrstir fá. NÝTT - NÝTT Til sölu á skrifstofu félagsins gistimiðar á Fosshótelum í Reykjavík og úti á landi fyrir félagsmenn.
Atvinnuauglýsingar á www.hjukrun.is
Í dag opnaði á vef félagsins Atvinnutorg hjúkrunarfræðinga, þar sem hjúkrunarfræðingar geta skoðað ný atvinnutækifæri.
Ályktun frá fundi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2004
Á fjölmennum fundi hjúkrunarfræðinga, sem haldinn var á Alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2004 á Grand Hótel Reykjavík var samþykkt eftirfarandi ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að bregðast við fátækt á Íslandi.
12. maí og hjúkrunarfræðingar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Í tilefni af 12. maí tóku hjúkrunarfræðingar sig saman á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og buðu samstarfsfólki og gestum HSS upp á léttar veitingar víða um stofnunina.
Vefkönnun um trúnaðarmenn er lokið
66,45% segjast ekki vita hver trúnarðamaður þeirra er!
Úthlutanir úr B-hluta vísindasjóðs
Stjórn Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lokið úthlutun styrkveitinga úr B-hluta vísindasjóðs
12. maí og hjúkrunarfræðingar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Í tilefni af 12. maí tóku hjúkrunarfræðingar sig saman á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og buðu samstarfsfólki og gestum HSS upp á léttar veitingar víða um stofnunina.
Dagur hjúkrunarfræðinga á vestfjörðum
Í dag 12. maí ætlar Vestfjarðadeild FÍH að opna sýningu í Safnahúsinu á Eyrartúni á Ísafirði (Gamla sjúkrahúsinu).
Framsöguerindin frá dagskrá 12. maí eru komin inn á heimasíðuna.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí 2004, var helgaður baráttunni gegn fátækt í heiminum. Yfirskrift dagsins var: Hjúkrunarfræðingar - Vinna með fátækum - Gegn fátækt
Laus Orlofshús fyrir sumarið 2004. Fyrstur pantar - fyrstur fær
Lokið er við að úthluta umsóknum í sumarhús fyrir sumarið 2004, þeir sem fengu úthlutað hafa greitt fyrir sína leigu, og þeir sem ekki gátu nýtt sér úthlutunina að þessu sinni hafa afpantað. Þau sumarhús hafa verið sett inn á www.hjukrun.is
12. maí í Hafnarfirði
Í tilefni af Alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12 maí
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um boðaðar sparnaðaraðgerðir á LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir miklum vonbrigðum með að enn skuli stefnt að frekari niðurskurði á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Tilnefning Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til Nordiska folkhälsopriset 2004
Nordiska folkhälsopriset er viðurkenning sem Norræna ráðherranefndin og Nordiska högskolan för folkhälsovitenskap (NHV) standa fyrir og vilja með því móti vekja athygli á mikilvægu framlagi til eflingar heilsu og vellíðunar.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí 2004.
Dagskrá í tilefni dagsins verður haldin á Grand Hótel, miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00-22:00 og hún send út á land í gegnum fjarfundabúnað.
Orlofsuppbót maí 2004
Orlofsuppbót er greidd út 1. júní ár hvert. Hjúkrunarfræðingar sem eru í starfi til 30. apríl næst á undan, eiga að fá orlofsuppbót. Orlofsuppbót er sérstök eingreiðsla og er 2004 kr. 10.200. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Greiðsla fyrir Orlofshús sumarið 2004
Þeir hjúkrunarfræðingar sem fengu úthlutað orlofshúsi fyrir sumarið 2004 eru minntir á að greiða leiguna fyrir 7. maí n.k. eða tilkynna það á skrifstofu félagsins.
NÝTT ? NÝTT - Gistimiðar á Fosshótelum í Reykjavík og úti á landi fyrir félagsmenn allt árið
Orlofssjóður niðurgreiðir hvern miða um kr. 1.500 og verða þeir seldir á kr. 3.500 hver, sem gildir fyrir tvo í tveggja mana herbergi með baði ásamt morgunverði. Aukagjald þarf félagsmaður samt að greiða á hótelunum, sjá yfirlit.
Heimsóknir á vef félagsins fram úr væntingum
34884 uppflettingar gerðar á www.hjukrun.is í marsmánuði. Spjallið hefur þó ekki náð fótfestu.
Skráning á ráðstefnuna HJÚKUN 2004, gengur vel. Lægra gjaldið framlengt til 23. apríl n.k.
Ákveðið hefur verið að láta lægra ráðstefnugjaldið gilda út þessa viku eða til og með 23. apríl n.k. og eru hjúkrunarfræðingar hvattir til að nýta sér þetta tækifæri.
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2004.
Flestir punktar á félagsmann í félaginu eru núna 148 punktar. Til að fá orlofsstyrk þurfti 74 pnkta að þessu sinni.
Hvert stefnir í kjarasamningum hjá ríkinu ?
Ráðstefna um stefnumörkun og þróun. 15. apríl kl. 13:00 á Hótel Sögu
Vefkönnun um ráðstefnuna Hjúkrun 2004 er lokið
52% þátttakenda ætla á ráðstefnuna samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar
Samstarf BHM og LSH
Miðstjórn Bandalags háskólamanna hefur ákveðið að ganga til formlegs samstarfs við stjórnendur Landspítala háskólasjúkrahúss vegna fjárhagsvanda sjúkrahússins.
Vísindasjóður A-hluti
Vegna mikilla fyrirspurna er rétt að taka fram að A-hluti Vísindasjóðs verður lagður inn á bankareikninga hjúkrunarfræðinga í SPRON í lok mars. Bankinn mun senda öllum bréf þar að lútandi.
Málstofa á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Innleiðing kjörhjúkrunar:Hver eru áhrifin á hjúkrunina frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða? Fyrirlesturinn flytur Dóróthea Bergs, MSc hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild LSH og lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ Málstofan verður haldin mánudaginn 29. mars, 2004, kl. 12:15 í stofu 103 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öllum opin
Mikill áhugi á sögu hjúkrunar
Margir hafa brugðist við viðtali við Margréti Guðmundsdóttur, sagnfræðing, sem birtist í nýjasta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga og haft samband við félagið.
Skráning er hafin á ráðstefnuna Hjúkrun 2004.
Ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun verður haldin dagana 29.-30. apríl 2004 á Nordica hotel, Reykjavík.
Námskeið til að sækja um í B-Hluta Vísindasjóðs Fíh
Á LSH 18. mars kl. 13-15 heldur Auðna Ágústsdóttir stutt námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður um að sækja um styrki til vísindastarfa. Sérstaklega verður rætt um umsóknir í B-hluta Vísindasjóðs Fíh.
Samkomulag vegna heimahjúkrunar
Síðdegis í gær náðist samkomulag milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélags Íslands fyrir hönd þeirra hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem létu af störfum þann 1. mars s.l. og stjórnenda Heilsugæslunnar í Reykjavík.
Alþjóðadagur kvenna fyrir friði og jafnrétti
Opinn fundur mánudaginn 8.mars 2004 kl.17 í BSRB-salnum, Grettisgötu 89 Fundarstjóri: Ína Jónasdóttir, varaform. SFR
Starfsfólk öldrunarþjónustu úrvinda í lok hvers vinnudags
Starfsmenn í öldrunarþjónustu eru undir miklu líkamlegu og andlegu álagi. Þetta kemur fram í rannsókn sem Vinnueftirlit ríkisins
A-hluti Vísindasjóðs
A-hluti Vísindasjóðs verður greiddur út í lok mars n.k.
Orlofshús og orlofsstyrkir fyrir sumarið 2004
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Orlofshús og orlofsstyrki fyrir sumarið 2004 á Orlofsvefnum. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2004.
Nordiska folkhälsopriset 2004
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir tilnefningum um hjúkrunarfræðinga vegna Nordiska folkhälsopriset 2004.
Mikið hefur verið kvartað undan viðbragðshraða vefsvæðis Fíh - Unnið að hraðaaukningu
Kvartanirnar eru réttmætar og því hefur Vefumsjón Fíh sett fram kröfur við þjónustuaðila svæðisins um lausn á þessu vandamáli.
Laus staða Chief Scientist Nursing and Midwifery hjá WHO.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill vekja athygli á eftirfarandi tilkynningu sem barst frá WHO
Hvað gæti verið að ef ekki tekst að skrá sig inn á orlofsvefinn?
Nokkrar leiðbeiningar varðandi Orlofsvefinn
Bókað á nýjum Orlofsvef
Hjúkrunarfræðingar geta núna pantað og greitt fyrir orlofshús eða íbúðir beint á nýjum Orlofsvef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fjölmennum á þingpalla.
Umræða um málefni Landspítala háskólasjúkrahúss fer fram á Alþingi í dag fimmtudaginn 29. janúar.
Ályktun frá Fagdeild Bráðahjúkrunarfræðinga
Fagdeild Bráðahjúkrunarfræðinga fordæmir fyrirhugaðar breytingar á starfssemi Landspítala Háskólasjúkrahúss, LSH.
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um samdrátt í þjónustu LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir þungum áhyggjum af samdrætti í þjónustu og fyrirhuguðum uppsögnum starfsfólks á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Fréttatilkynning
Almannahagur í húfi Krefjumst endurskoðunar á fjárveitingum til LSH
Hjúkrunarfræðingar fjölmennum á fund
Þriðjudaginn 27. janúar verður haldinn opinn fundur um sparnaðaraðgerðir á Landspítala háskólasjúkrahúsi
Uppsagnir á LSH
Í dag voru lagðir fram listar um hvernig uppsagnir vegna 200 ársverka á Landspítala háskólasjúkrahúsi skiptast á svið og stéttarfélög.
Málstofa á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Erlín Óskarsdóttir, MSc flytur fyrirlestur
Skilafrestur útdrátta framlengdur
Skilafrestur útdrátta á ráðstefnuna Hjúkrun 2004 hefur verið framlengdur um viku eða til föstudagsins 23. janúar 2004.
Fræðsludagur
Laugardaginn 31. janúar verður fræðsludagur á vegum Suðurnesjadeildar FÍH og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Hamingjuóskir á afmælisári
Kæru hjúkrunarfræðingar. Innilega til hamingju með daginn.
Fyrirhugaðar uppsagnir á LSH
Eins og kunnugt er stendur nú fyrir dyrum að segja upp starfsfólki á Landspítala háskólasjúkrahúsi, sem nemur um 200 ársverkum.
Afmælisár Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2004
Í ár eru liðin 85 ár frá því að hjúkrunarfræðingar stofnuðu með sér félag
Ertu á leið til Norðurlanda?
Fíh vill benda hjúkrunarfræðingum sem eru á leið til Norðurlanda á vefsíðuna Halló Norðurlönd
