Fréttsafn eftir árum//
Umsóknir í Styrktarsjóð og Sjúkrasjóð
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) hefur með lögmætum hætti og í samræmi við ákvörðun aðalfundar Fíh 12. maí 2009, sagt sig úr Bandalagi háskólamanna (BHM) og tekur úrsögnin gildi frá og með 1. janúar 2010. Unnið er að fjárhagsuppgjöri sem m.a. tengist Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM. Þeir hjúkrunarfræðingar sem hyggjast sækja um styrk í áðurnefnda sjóði í janúar eru beðnir að senda tilkynningu um það í tölvupósti á netfangið hjukrun@hjukrun.is og munu þeir þá fá leiðbeiningar um styrkumsókn í tölvupósti.
Spara má 1700 milljónir með flutning verkefna milli kragasjúkrahúsanna og Landspítala
Skv fréttakýringu á www.mbl.is mætti spara 1700 milljónir árlega með flutningi verkefna milli kragasjúkarhúsanna og Landspítala. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra. Ekki er í skýrslunni gerð grein fyrir þeim kostnaði sem fellur á sjúklinga og aðstandendur vegna legu á sjúkrahúsi fjarri heimabyggð svo sem vegna aksturs og gistingar.
Jólalokun skrifstofu Fíh
Skrifstofa Fíh er lokuð milli jóla og nýárs. Opnum aftur 4. Jan. Ef erindið er brýnt þá má senda tölvupóst á formann elsa@hjukrun.is
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um flutning hjúkrunarheimila
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) leggst alfarið gegn þeim hugmyndum ríkisstjórnarinnar að færa alla þjónustu við aldraða á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Stjórnin hvetur alþingismenn til að greiða atkvæði gegn þessum flutningi þegar frumvarp til fjárlaga 2010 verður tekið til afgreiðslu á Alþingi.
Heilbrigðisnefnd Alþingis kynntar hugmyndir um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu
Í fréttatilkynningu Heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að verkið hafi verið unnið af hópi manna á vegum og undir stjórn heilbrigðisráðuneytisins. Margt í niðurstöðum vinnuhópsins bendi til talsverðrar fjárhagslegrar hagkvæmni með tilflutningi verkefna milli sjúkrahúsanna á Suðvesturhorninu.
Rjóður tekur formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar
Rjóður, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn, tók í dag formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar. Það samanstendur af myndlistarherbergi, nuddherbergi og viðtalsherbergi og er gjöf frá Velferðarsjóði barna.
Síður svartur frakki tekinn í misgripum í afmælisboði Fih
Í afmælisboði Fíh í Laugardalshöll varð einhverjum á að taka síðan svartan frakka í misgripum fyrir sinn eigin. Hjúkrunarfræðingar vinsamlega kannið hvort hugsanlegt sé að frakkinn sé í ykkar fórum og hafið samband við skrifstofu félagsins sé svo.
Ragnheiður Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur ráðin nýr forstjóri Krabbameinsfélags Íslands
Ragnheiður Haraldsdóttir tekur við af Guðrúnu Agnarsdóttur sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands eftir áramótin og lætur þá jafnframt af störfum sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í heilbrigðisráðuneytinu.
Yfirlýsing vegna greinar á vefsvæði Sjúkraliðafélags Íslands 2. desember
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga harmar þau ummæli um hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema sem fram koma í grein á vefsvæði Sjúkraliðafélags Íslands þann 2. desember og birt voru á visir.is. Stjórn Fíh vísar því á bug að hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar telji það ekki skyldu sína að svara kalli skjólstæðinga. Slíkur málflutningur er fráleitur og dæmir sig sjálfur.
Stefnt að útkomu bókarinnar Saga hjúkrunar á Íslandi á 20 öld í byrjun árs 2010
Eins og fram kom í ræðu formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í afmælisboði félagsins er unnið að útgáfu bókarinnar Saga hjúkrunar á Íslandi á 20 öld um þessar mundir. Vonast var til þess að hægt væri að gefa bókina út nú fyrir jól en ljóst er að það mun dragast fram yfir áramót. Af þessum sökum býður félagið þeim sem vilja nota bókina til jólagjafa að kaupa gjafabréf á afmælisverði sem er 6.000 krónur.
Unnið að algjörri endurnýjun á útliti og uppbyggingu vefsíðu Fíh
Vefsíða félags íslenskra hjúkrunarfræðinga www.hjukrun.is nýtur mikilla vinsælda meðal hjúkrunarfræðinga og annarra sem örugg upplýsingaveita um málefni hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga. Um þessar mundir er unnið að algjörri endurnýjun á útliti og uppbyggingu síðunnar.
Lýðheilsustöð býður heilbrigðisstarfsfólki frítt á námskeið hjá Endurmenntun.
Lýðheilsustöð býður heilbrigðisstarfsfólki frítt á námskeið hjá Endurmenntun. Námskeiðið er um áhugahvetjandi samtalstækni. enn eru nokkur sæti laus.
Kjarakönnun - framlengdur frestur
Ákveðið hefur verið að framlengja kjarakönnunina um einn dag. Frestur rennur því út 27.11.2009 kl. 17. Þitt svar skiptir miklu máli.
Fimm sækjast eftir landlæknisembætti
Samkvæmt frétt frá heilbrigðisráðuneytinu hafa fimm sótt um embætti landlæknis sem auglýst var fyrir skemmstu. Umsækjendur eru fjórir karlar og kona. Skipað er í stöðu landlæknis til fimm ára frá 1. janúar 2010.
Skráningu á Afmælisþing Fíh lokið
Skráningu á afmælisþing félagsins lauk um miðnætti. Alls hafa skráð sig tæplega 400 manns og þvi er ekki hægt að bæta við skráningum í dag.
Kjarakönnun á meðal allra félagsmanna
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur fyrir kjarakönnun á meðal félagsmanna dagana 12. – 26. nóvember 2009 í samstarfi við Intellecta ehf. Bréf þessa efnis var sent á alla félagsmenn og ætti að vera að berast þeim rétt um þessar mundir.
Hjúkrunarfræðideild í Minnesota heiðrar Helgu Jónsdóttur sem fyrrverandi nemanda
www.mbl.is segir í frétt frá því í dag að Helga Jónsdóttir prófessor í hjúkrunarfræðin við HÍ hafi verið heiðruð í tilefni þess að um þessar mundir er minnst aldarafmælis hjúkrunarfræðideildar Háskólans í Minnesota í Bandaríkjunum
Viljayfirlýsing um bygging nýs Landspítala undirrituð í dag
Fulltrúar tuttugu lífeyrissjóða, og ráðherrar skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að kanna ítarlega með hvaða hætti lífeyrissjóðirnir geti komið að fjármögnun á hönnun og framkvæmdum við nýbyggingar Landspítala, hluta af rekstri þeirra og fjármögnun til langs tíma. Gert er ráð fyrir því að sjóðirnir komi að fjármögnun verkefnisins svo framarlega sem arðsemi og áhætta verði viðunandi. Fulltrúar Fíh í stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga gerðu sérstaka bókun við samþykki sitt.
Ígræðsla líffæra flyst til Gautaborgar
Líffæraígræðslur Íslendinga flytjast frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar um áramótin. Samningur um ígræðslu líffæra við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg var undirritaður 26. október.
Hjúkrunarráð Landspítalans varar við þeim afleiðingum sem stórfelldur niðurskurður á Landspítala getur haft í för með sér.
Hjúkrunarráð bendir í ályktun sinni sérstaklega á að verði hjúkrunarfræðingum fækkað geti það ógnað öryggi sjúklinga. Jafnframt bendir ráðið á að rannsóknir hafa sýnt að sérþekking hjúkrunarfræðinga stuðlar ekki aðeins að betri þjónustu heldur getur fyrirbyggt innlagnir, stytt legutíma og komið í veg fyrir fylgikvilla og er þannig þjóðhagslega hagkvæm.
Þegar mest á reynir
Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar í formannspistli í næsta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga, sem kemur í nóvember, að nú þurfa félagsmenn að sporna við þeirri aðför sem er gerð að heilbrigðiskerfi okkar. Pistillinn birtist hér í heild sinni.
Hátíðarhöld í tilefni 90 ára afmælis Fíh
Nú fer að styttast í afmælishátíð Félags íslenskra hjúkrnarfræðinga. Þann 18. nóvember n.k. eru 90 ár liðin frá því að hjúkrunarfræðingar á Íslandi stofnuðu með sér félag sem nefnt var Félag íslenskra hjúkrunarkvenna.
Átján ára stúlka látin af völdum inflúensunnar A(H1N1).
Átján ára stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdum inflúensunnar A(H1N1). Í fréttatilkynningu frá sóttvarnalækni og ríkislögreglustjóra sem send var út í dag segir að stúlkan hafi veikst fyrir um 11 dögum og var lögð inn á spítalann síðastliðinn fimmtudag. Þetta er fyrsta dauðsfallið hérlendis af völdum inflúensunnar A(H1N1). Rétt er að taka fram að öll umönnun og meðferð, sem stúlkan naut í veikindum sínum heima hjá sér og á Landspítala, var mjög góð og í samræmi við aðstæður.
9. desember þurfa gögn vegna styrkumsókna að hafa borist Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM!
Styrktarsjóður og Sjúkrasjóður BHM kallar eftir því að sjóðsfélagar sendi inn gögn vegna styrkja á almannaksárinu 2009 fyrir 9. desember 2009.
Framtíð hjúkrunar
Institute of Healthcare Improvement í Bandaríkjunum býður upp á ókeypis vefútvarp sem hægt er að hlusta á í beinni eða seinna. Næsti þáttur verður sendur út 22. október og mun fjalla um framtíð hjúkrunar.
Læknafélag Reykjavíkur býður til afmælishátíðar í tilefni 100 ára afmælis síns
Afmælishátið fyrir almenning á vegum Læknafélags Reykjavíkur verður haldin á laugardaginn kemur, 17. október, á Hilton Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut milli kl. 10 og 16. Dagskráin hefst með málþingi um sögu holdsveiki hér á landi og í Noregi. Einnig verður haldinn fyrirlestur um ýmsa frumkvöðla á sviði læknavísindanna, m.a. Jónas Sveinsson, lækni á Hvammstanga, sem t.d. græddi apaeistu í nokkra menn.
Samið um notkun RAI mælitækisins
Í dag var undirritaður samningur um formlega notkun InterRAI mælitækisins sem beitt er m.a. til að meta hjúkrunarþyngd. Það voru þau Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, og prófessor John Morris, stjórnarmaður í alþjóðlegu InterRAI samtökunum sem formlega þróuðu og eiga RAI-mælitækið. Óformlegt samkomulag var gert fyrir allmörgum árum við eigendur RAI-mælitækjanna um notkun þeirra hér á landi, en samkvæmt samningnum sem undirritaður var í morgun er heilbrigðisráðuneytinu formlega heimilt að nota mælitækið sér að kostnaðarlausu.
Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar tekur viðbyggingu í notkun
Heilbrigðisráðherra, tók formlega í notkun viðbyggingu við Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar þann 13.10. Framkvæmdir við fyrsta áfanga viðbyggingarinnar hófust í desember 2005 og framkvæmdum lauk ári seinna eða í desember 2006
Opið bréf frá hjúkrunarfræðingum á St.Jósefsspítala
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á St.Jósefsspítala í Hafnarfirði hafa sent opið bréf til heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fundi um framtíð skurðdeildar St. Jósefsspítala.
Ályktað um skerðingu á fjárframlögum til Landspitala
Stjórn Fíh sendi í dag frá sér ályktun þar sem er varað við þeim alvarlegu afleiðingum sem stórfelld skerðing á fjárframlögum til Landspítala felur í sér. Landspítali hefur nú þegar hagrætt í rekstri og er nú komið að þolmörkum. Stjórnin ítrekar áherslur vegna niðurskurðar sem sendar voru til heilbrigðisráðherra í júní sl.
Alþjóðlega flokkunarkerfið um færni, fötlun og heilsu birt á www.skafl.is
Kynningarútgáfa af Alþjóðlega flokkunarkerfinu um færni, fötlun og heilsu eða ICF (International Classification of Functioning, Disability and Health) hefur verið birt á SKAFL.is
Ráðgjafi á sviði starfsendurhæfingar hjá BHM
Þessi nýja þjónusta er samvinnuverkefni stéttarfélaga og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku. Það er m.a. gert með því að auka virkni og efla endurhæfingu og önnur úrræði.
Samráðsfundir með hjúkrunarfræðingum
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og sviðstjóri kjara- og réttindasviðs félagsins munu á næstu vikum boða til samráðsfunda með hjúkrunarfræðingum um allt land vegna þess mikla niðurskurðar sem framundan er í heilbrigðiskerfinu. Á fundunum verður fjallað um áhrif niðurskurðar á starfsaðstæður hjúkrunarfræðinga og öryggi sjúklinga.
Umsóknarfrestur um meistaranám við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands framlengdur
Umsóknarfrestur um meistaranám við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er framlengdur til 15. okt. nk. Inntökuskilyrði eru Bs próf í hjúkrunarfræði með fyrstu einkunn, 7,25 og íslenskt hjúkrunarleyfi.
Fíh segir sig úr BHM
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga afhenti nýverið formanni Bandalags háskólamanna tilkynningu um úrsögn Fíh úr BHM.
Álfheiður Ingadóttir verður næsti heilbrigðisráðherra
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, verður næsti heilbrigðisráðherra. Þetta var samþykkt á þingflokksfundi Vinstri grænna sem lauk á öðrum tímanum í nótt.
Ögmundur Jónasson hefur sagt af sér sem heilbrigðisráðherra
Ögmundur Jónasson gekk á fund Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í hádeginu í dag og baðst lausnar úr embætti heilbrigðisráðherra. Sagðist hann eftir fundinn með Jóhönnu áfram verða eindreginn stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar en hann mun ekki segja af sér þingmennsku.
Bólusetning gegn svínainflúensu
Í frétt frá Landlækni hvetur sóttvarnalæknir heilbrigðisstarfsmenn til að láta bólusetja sig þegar bólusetning hefst hér á landi.
Íslendingar eru að fitna
Lýðheilsustöð kynnti á mánudaginn nýjar rannsóknir um líkamsþyngd Íslendinga. Fram kom að um 20% eru nú of feitir. Skólahjúkrunarfræðingar gegna lykilstöðu í mótvægisaðgerðum.
Veruleg þörf fyrir eftirlit með hjúkrunarnámi - Mikill þrýstingur á nám hjúkrunarfræðinga í Evrópu
Skortur á hjúkrunarfræðingum í Evrópu veldur því að lönd eins og þýskaland, Frakkland og Belgía draga úr kröfum til námsins. Mikil þörf er á auknu eftirliti innan Evrópusambandsins (ESB). Í þýskalandi hefur ríkisstjórnin rætt um að lækka aðgangskröfu um að 10 ára skólaganga sé undanfari náms í hjúkrunarfræði. Í mismunandi landshlutum Belgíu uppfyllir námið ekki kröfuna um að tilhlýðilet verknám sé í boði fyrir nema í hjúkrunarfræði. Þetta eru vandamál sem Evrópusamtök hjúkrunarfélaga (EFN) eru sérlega vakandi yfir.
Ríkisstjórnin ákvað í gær að greiða fyrir því að nýr Landspítali muni rísa
Ríkisstjórnin ákvað í gærmorgun að greiða götu þess að nýr Landspítali rísi. Þetta kom fram í ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Jóhanna sagði að bygging Landspítalans sé mjög mannaflsfrek og skapi að minnst kosti 800 störf.
Hætta á að hjúkrunarfræðingar og læknar flytji úr landi
Í frétt á www.visir.is kemur fram að gjörbreytt staða er komin upp hjá ungu heilbrigðisstarfsfólki vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Atvinnumöguleikar nýútskrifaðra lækna og hjúkrunarfræðinga hafa skerst verulega hér á landi og hætta er talin á að þessi hópur þurfi að leita annað í auknum mæli.
Hæstiréttur dæmir Alhjúkrun
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að fyrirtækið Alhjúkrun ehf. greiða fyrrverandi sjúkraliða hjá fyrirtækinu rúmlega 1200 þúsund krónur en í ljós kom að launagreiðslur sjúkraliðans höfðu ekki verið í samræmi við kjarasamning. Dómurinn kallar á að hjúkrunarfæðingar sem starfa eða hafa starfað hjá fyrirtækinu fari yfir ráðningarsamninga sína og launaseðla.
Elsa B. Friðfinnsdóttir endurkjörinn 2. varaformaður Samvinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN)
Samvinna hjúkrunarfræðinga á norðurlöndum (SSN) er svæðisbundin samvinna stéttarfélaga hjúkrunarfræðinga á norðurlöndunum sex. SSN á að beina athygli sinni að þróun og eiga frumkvæði í málum sem hafa áhrif á hjúkrunarfræðinga og hjúkrun á Norðurlöndum.
Helga Thordersen hjúkrunarkona 100 ára í dag
100 ára er í dag Helga Thordersen hjúkrunarkona. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga færir Helgu innilegar hamingjuóskir.
Kvenfélagasamband Íslands auglýsir styrki úr Minningarsjóði Helgu M. Pálsdóttur
www.hjukrun.is vekur athygli á auglýsingu Minningarsjóðs Helgu M. Pálsdóttur þar sem auglýstir eru styrkir til kvenna sem hyggja á framhaldsnám.
Halló Norðurlönd býður upp á námskeið í að flytja til annars Norðurlands
Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir stuttum námskeiðum fyrir þá sem undirbúa búferlaflutninga til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar. Farið verður yfir atriði sem snúa að flutningi, svo sem skráningu, almannatryggingar, atvinnu- og húsnæðisleit
Sjóðir og styrkir áfram
Margir hafa haft samband við skrifstofu og tjáð áhyggjur sínar af því hvað verður með sjóði og styrki eftir að FÍH fer úr BHM. Fjallað er um þetta í Tímariti hjúkrunarfræðinga, sem var að koma út. Greinin birtist einnig hér á fréttavefnum í styttri útgáfu.
Hagræðingaraðgerðir á Landspítala
Á mánudaginn sl. kynntu forystumenn Landspítala róttækar aðgerðir til hagræðingar í rekstri stofnunarinnar. LSH er gert að lækka rekstrarkostnað um 2,8 milljarða króna. Formaður Fíh og sviðstjóri kjara- og réttindasviðs munu á næstu dögum funda með trúnaðarmönnum á LSH vegna þessa.
Breytingar á ung- og smábarnavernd frá 1. september 2009
Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins.
Ráðstefna um sárameðferð á Íslandi
Samtök um sárameðferð, SumS, halda sína árlegu ráðstefnu föstudaginn 25.september á Grand Hotel í Reykjavík.
Áfengissala aukist og fleiri drekka
Mun fleiri drekka nú vikulega eða oftar og áfengissala hefur aukist, samkvæmt frétt frá Lýðheilsustofnun.
Hulda Gunnlaugsdóttir gerir ráð fyrir að koma aftur til starfa
,,Þegar maður fer í leyfi þá gerir maður ráð fyrir að koma aftur til starfa. Það hefur ekkert með starfið að gera að ég tek mér leyfi, það eru fyrst og fremst persónulegar aðstæður," sagði Hulda Gunnlagsdóttir, forstjóri Landspítalans, á fundi með fjölmiðlamönnum á Eiríksstöðum, aðalskrifstofu spítalans.
Fíh hvetur alla hjúkrunarfræðinga til að kynna sér leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk vegna inflúensu á www.inflúensa.is
www.influensa.is er aðal upplýsingamiðill sóttvarnalæknis varðandi leiðbeiningar um sýkingavarnir gegn inflúensu annars vegar fyrir almenning og hins vegar fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Á síðunni eru nákvæmar leiðbeiningar varðandi m.a. sýkingavarnir, meðferð einstaklinga, notkun veirulyfja ofl. Fíh hvetur alla hjúkrunarfræðiga til að kynna sér upplýsingar á síðunni
Haustþing Norðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Haustþing Norðurlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélags Akureyrar verður haldið að Hólum, Menntaskólanum á Akureyri, laugardaginn 10. október 2009. Yfirskrift þingsins er Heilbrigðisþjónusta aldraðra í nútíð og framtíð.
Sóley S. Bender fær framgang í starf prófessors
Rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir, hefur staðfest framgang Sóleyjar S. Bender, dósents við Hjúkrunarfræðideild, skv. tillögu valnefndar og að undangengnu hæfnismati dómnefndar. Sóley hefur fengið framgang í starf prófessors frá 1. febrúar sl.
Sérstaklega þarf að auka þjónustu félagsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga í grunn- og framhaldsskólum
Í skýrslu sem starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins hefur unnið um sálfélagslega velferð barna á tímum efnahagsþrenginga kemur m.a. fram að auka þurfi þjónustu skólahjúkrunarfræðinga og styðja við þá með aukinni fræðslu um um einkenni depurðar.
142 staðfest tilfelli inflúensu A(N1N1)v
Alls hafa greinst 142 tilfelli með staðfesta inflúensu A(H1N1)v sýkingu á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala frá því í maí 2009. Þar af eru 79 karlar og 63 konur. Ekki er vitað um alvarleg veikindi af völdum inflúensu A(H1N1)v veirunnar hérlendis
Munum eftir inflúensunni - ráðleggingar um smitvarnir
Sóttvarnalæknir hefur, í samráði við ríkislögreglustjórann almannavarnadeild, gefið út bækling með ráðleggingum til almennings um smitvarnir gegn inflúensuveirunni A(H1N1)v. Þessi bæklingur er önnur útgáfa bæklings sem gefinn var út fyrr í júní. Nú er áherslan á einkenni inflúensu og ráðlagt er að þeir sem fá slík einkenni leiti til heilsugæslustöðva til að meta þörf á læknisskoðun og sýnatöku.
Fyrsta doktorsvörnin frá Hjúkrunarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Föstudaginn 21. ágúst fer fram doktorsvörn við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Helga Gottfreðsdóttir ljósmóðir doktorsritgerð sína: "Ákvörðunartaka verðandi foreldra um fósturskimun". Andmælendur eru dr. Alexander Smárason yfirlæknir kvennadeildar sjúkrahússins á Akureyri og dósent við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri og dr. Chris McCourt professor við Thames Valley University, London. Dr. Guðrún Kristjánsdóttir, forseti Hjúkrunarfræðideildar stjórnar athöfninni sem er fyrsta doktorsvörnin frá Hjúkrunarfræðideild og fer hún fram í hátíðasal, aðalbyggingu og hefst klukkan 13:00.
Of seint eftir 5 ár að að kanna hvort skynsamlegra hefði verið að bregðast öðruvísi við hér á landi
Í nýrri skýrslu sem starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins hefur unnið um sálfélagslega velferð barna á tímum efnahagsþrenginga kemur m.a. fram að nú þegar verði að nýta allar færar leiðir til að vinna gegn neikvæðum áhrifum efnahagskreppunnar á heilsu og félagslega stöðu til að forðast heilsubrest og hamla gegn aukningu útgjalda á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Skýrslan var kynnt á ráðstefnunni Velferð íslenskra barna - sóknarfæri á umbrotatímum sem haldin er í dag.
Mönnun í umönnunarstörf gengur vonum framar - störf hjúkrunarfræðinga ekki full mönnuð
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins hefur gengið svo vel eftir að kreppan skall á að manna umönnunarstörf að ekki er víst að hægt verði að verða við óskum allra þeirra sumarstarfsmanna sem vilja vinna um helgar og á kvöldin í vetur. Umsóknir um störf hjúkrunarfræðinga hafa þó ekki aukist að sama skapi þrátt fyrir boðaðan niðurskurð á Landspítala.
Viðburði í yfirliti yfir tilkynningar og fundi á www.hjukrun.is
www.hjukrun auglýsir upplýsingum um atburði, fundi eða þess háttar sem viðkemur hjúkrun eða hjúkrunarfræðingum á vegum fag- eða svæðisdeilda eða annarra aðila. Viðburðirnir verða eins og fyrr skráðir í yfirlit www.hjukrun.is sem sent er öllum þeim er skráð hafa netfang sitt á póstlista félagsins. Vinsamlega sendið upplýsingar á webmaster@hjukrun.is
Á orlofsvefnum eru nú tvær vikur lausar í ágúst í frábærum orlofshúsum.
Mosaskyggni 6 Úthlíð, Biskupst. frá 14.08.2009 - 21.08.2009 Akurgerði, Ölfusi frá 21.08.2009 -28.08.2009 Pantað er á orlofsvefnum, undir liðnum sjálfsafgreiðsla.
Greiningu brátt hætt
Tilfellum flensu A(H1N1)fjölgar ört hér sem annarsstaðar. Starfsfólk sóttvarnalæknisembættis hefur verið kallað úr sumarfríi. Fyrir helgi voru 72 tilfelli staðfest og bíða mörg sýni greiningar, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis.
63 hafa veikst í inflúensu A(H1N1)
Níu tilfelli hafa greinst á síðustu tveimur sólarhringum og hafa flestir smitast innanlands.
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Síðara golfmóti hjúkrunarfræðinga 2009 verður haldið föstudaginn 28. ágúst kl. 13:00 á golfvellinum Keili, Hafnarfirði.
Hulda Gunnlaugsdóttir í ársleyfi frá Landspítala
Að ósk forstjóra Landspítalans Huldu Gunnlaugsdóttur hefur Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, veitt henni leyfi frá störfum til eins árs frá 1. október 2009.
Ellefu tilfelli hafa nú greinst á Íslandi með nýju inflúensuna A(H1N1)v.
Frá því á föstudag 17.júlí 2009 hafa bæst við tvö tilfelli af nýju inflúensunni A(H1N1)v. Um er að ræða 19 ára konu annars vegar sem kom frá Mexíkó og veiktist eftir heimkomu og 35 ára konu sem kom frá Ástralíu sem einnig veiktist eftir heimkomu
Landspítali og Sjúkratryggingar Íslands gera með sér samkomulag
Landspítali og Sjúkratryggingar Íslands hafa gert með sér samkomulag vegna söfnunar og flutnings á eitilfrumum frá Svíþjóð til Íslands, svo og um RFA meðferð við krabbameini í lifur. Stofnanirnar hafa jafnframt samið um bætta þjónustu við sjúklinga með Parkinsonveiki, að því er segir í tilkynningu.
Ísland hefur tryggt sér kauprétt á allt að 300 þúsund skömmtum af bóluefni gegn inflúensu A
Samkvæmt tilkynningu sem Sóttvarnarlæknir og Ríkislögreglustjóri sendu frá sér sameiginlega hefur Ísland tryggt sér kauprétt á allt að 300 þúsund skömmtum af bóluefni gegn inflúensu A. Talið er að bólusetja þurfi hvern einstakling tvisvar til að ná góðri vernd með bólusetningu og mun bóluefni því duga fyrir að minnsta kosti helming þjóðarinnar. Sóttvarnalæknir telur þessa ráðstöfun skynsamlega
Námskeiðið Öryggi í öndvegi á Akureyri 27. ágúst nk.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Sparnað ehf. býður félagsmönnum sínum að sækja námskeiðið Öryggi í öndvegi með Ingólfi H. Ingólfssyni á Akureyri fimmtudaginn 27. ágúst nk.
Samkomulag um að vinna ekki að gerð kjarasamnings fyrr en í ágúst
Fíh og samninganefnd ríkisins hafa undirritað samkomulag um að vinna ekki að gerð kjarasamnings fyrr en í ágúst. Grunnur kjarasamninga í landinu er stöðugleikasáttmálinn sem gerður var 25. júní sl. Í aðdraganda hans lýstu forsvarsmenn BHM því yfir að skv. inntaki hans væntu fulltrúar aðildarfélaga BHM ekki launahækkana á komandi samningstímabili enda meginmarkmið samninga að vernda störf.
Íslenskir hjúkrunarfræðingar birta greinar í erlendum tímaritum
Tvær athyglisverðar rannsóknargreinar hafa nýlega birst þar sem Íslendingar eru höfundar eða meðhöfundar. Önnur fjallar um ofbeldi af hálfu maka og hin um nýgengi krabbameina hjá starfshópum.
Áherslur stjórnar Fíh vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram áherslur sínar vegna þess niðurskurðar sem framundan er í heilbrigðiskerfinu.
Samstarf í lyfjamálum
Íslendingar og Norðmenn hafa ákveðið að kanna nánar möguleika á samstarfi á sviði lyfjamála, þar á meðal innkaupa.
Norrænu lýðheilsuverðlaunin afhent í Reykjavík
Barbro Westerholm, prófessor, hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár. Verðlaunin voru afhent á fundi norrænu félags- og heilbrigðisráðherranna í Reykjavík.
Hjúkrunarfræðingur hlýtur fálkaorðu
Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur var 17. júní 2009 sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til alþjóðlegs hjálparstarfs.
Ályktun Handleiðslufélags Íslands frá aðalfundi 11. júní 2009.
Handleiðslufélags Íslands skorar á stjórnendur sjúkrahúsa og annarra stofnana sem veita samfélagslega þjónustu að standa vörð um vönduð og fagleg vinnubrögð og að þeir veiti áfram handleiðslu þrátt fyrir niðurskurð
Opinberir starfsmenn og stöðuleikasáttmálinn
Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB, sendi í gær frá sér fréttatilkynningu um sýn þeirra á stöðuleikasáttmálann og forsendur kjarasamninga.
Ályktun um mikilvægi menntunar í framtíðaruppbyggingu
Miðstjórn BHM áréttar í ályktun að menntun er verðmætasta auðlind þjóðarinnar og hefur miklu hlutverki að gegna í því uppbyggingarstarfi sem framundan er.
Ályktun um nám í hjúkrunarfræði
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar mikilli fjölgun umsókna um nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands.
Ályktun frá stjórn BHM
Stjórn BHM áréttar að ekki kemur til greina að stéttarfélög innan þess taki þátt í að færa niður kjarasamningsbundna taxta
Vinnumálastofnun hefur sendingu umsókna íslenskra atvinnuleitenda til Kanada
Eftir nokkrar tafir hefur Vinnumálastofnun nú hafið sendingu umsókna íslenskra atvinnuleitenda til Manitoba í Kanada. Á heimasíðu stofnunarinnar www.vinnumalastofnun.is undir "Atvinna í Kanada" má finna upplýsingar verkefnið
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Fyrsta golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra 2009 var haldið á golfvellinum Flúðum föstudaginn 29.maí í roki og rigningu.
Athygli vakin á niðurstöðu frá Félagsdómi 5/2009
Sjúkraliðafélag Íslands (SÍ) stefndi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) þar sem stofnunin ákvað að hætta keyrslu sjúkraliða til og frá Víðihlíð. Dómur féll SÍ í hag.
Heimurinn er nú á byrjunarreit inflúensu heimsfaraldurs 2009
Á grunni þeirra gagna og mats sérfræðinga sem liggur nú fyrir hefur vísindalegum forsendum heimsfaraldurs innflúensu verið náð. Forstjóri Alþjóða heilbrigðisstoffunarinnar hefur því ákveðið að hækka viðbúnaðarstig vegna flensufaraldurins úr stigi 5 í 6.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur boðað til neyðarfundar til að ræða hugsanlega yfirlýsingu á heimsfaraldri H1N1 .
Ástæða fundarins er mikil fjölgun flensutilfella í Ástralíu. Þau fjórfölduðust á einni viku og eru nú tæplega 1300. Orðið heimsfaraldur er notað um sjúkdóm þegar smit milli manna eru orðin algeng á að minnsta kosti tveimur svæðum í heiminum. Svínaflensan H1N1 var þegar orðin útbreidd í Norður-Ameríku, Mexíkó og Bandaríkjunum
Kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna skipulagsbreytinga hjá Landspítala-háskólasjúkrahúsi
Landspítali-háskólasjúkrahús hefur undanfarið boðað grundvallabreytingar á vinnufyrirkomulagi og vinnutíma starfsmanna sinna með vísan til 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Breytingin felur það m.a. í sér að hjúkrunarfræðingum, sem réðu sig til spítalans sem dagvinnustarfsmenn, er gert að starfa á spítalanum í vaktavinnu. Í kvörtuninni til umboðsmanns Alþingis er óskað eftir áliti hans á því, "hvort það falli innan marka 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að breyta vinnutilhögun starfsmanns frá því að vera dagvinnumaður yfir í að vera vaktavinnumaður?"
Starfsmenn Blóðbanka fresta útgöngu til 1. júlí
Starfsmenn Blóðbankans haf litið á tilkynningu um breytt vaktafyrirkomulag sem taka átti gildi þann 1. júní sem uppsögn. Starfsemennirnir vonast eftir jákvæðum niðurstöðum af viðræðum við stjórnendur Landspítala.
Bann við ráðningum frá starfsmannaleigum veldur stóraukinni ásókn í störf hjá danska ríkinu
Fjöldi danskra hjúkrunarfræðinga og félags- og heilbrigðisliða yfirgefur nú einkareknar starfsmannaleigur og snýr til baka til ríkisrekinna sjúkrahúsa. Breytingin á ásókn í öruggar stöður hjá ríki mætir mannekluvandanum sem hefur verið allsráðandi vandamál í heilbrigðiskerfinu um árabil. Sjúkrahús á höfuborgarsvæðinu hafa á fáum mánuðum ráðið og fengið fyrirspurnir frá um 1000 hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki.
Hjúkrunarfræðingar mótmæla auglýsingu Poulsen
Fyrirtækið Poulsen sem m.a. starfrækir innflutning og ísetningarverkstæði fyrir framrúður, sendi í vikunni auglýsingabækling í hús á höfuðborgarsvæðinu þar sem þjónusta fyrirtækisins er auglýst. Á forsíðu bæklingsins og á innsíðu eru myndir af léttlæddri konu í búningi sem augljóslega á að vísa til hjúkrunarfræðinga. Myndin er klassísk tilvísun í klám.
ICN-STTI "Handleiðsla í hjúkrun" vinnubók
The International Council of Nurses (ICN) og the Honor Society of Nursing, Sigma Theta Tau International (STTI) hafa sameiginlega gefið út vinnubók með titlinum "Handleiðsla í hjúkrun". Bókin er ágætt verkfæri fullt af æfingum, skrám og leiðbeiningum.
ESB kostun - kallað eftir tilboðsgjöfum
Framkvæmdastjóri heilbrigðis og umhverfismála ESB, DG Sanco, kallar eftir tilboðsgjöfum vegna nokkurra verkefna á sviðum umhverfis og heilsu. þátttökufrestur er til 1. júlí 2009
Anna Sigrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur ráðin aðstoðarmaður ráðherra
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ráðið Önnu Sigrúnu Baldursdóttur aðstoðarmann sinn. Anna Sigrún hefur starfað á Landspítalanum við fjármálráðgjöf frá árinu 2007. Áður starfaði hún við eigin rekstur á sviði heilbrigðisþjónustu, meðal annars öldrunarþjónustu
Yfirlýsing frá Fíh um sjálfstæð hjúkrunarstörf og ráðningar nema.
Vegna fyrirspurna til félagsins um ráðningar hjúkrunarfræðinema og annarra nemenda í heilbrigðisfræðum til afleysinga á heilbrigðisstofnunum og í ljósi umfjöllunar innan félagsins, vill Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga taka fram eftirfarandi: Skv. 1. og 4. gr. hjúkrunarlaga nr. 8/1974 má ekki ráða aðra en hjúkrunarfræðinga, sem hafa leyfi til að stunda hjúkrun hér á landi, til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa við sjúkrastofnanir, elliheimili, heilsuvernd eða hjúkrun í heimahúsum.
Ný stjórn Fíh tekin til starfa
Ný stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kom saman til fyrsta fundar í gær. Stjórnin er skipuð 18 fulltrúum í samræmi við skipulag það sem samþykkt var með nýjum lögum sem tóku að fullu gildi á aðalfundi félagsins 12. maí 2009.
Öryggi í öndvegi - breytt staðsetning
Vegna mikillar aðsóknar á fjármálanámskeiðið "Öryggi í öndvegi" hefur námskeiðið verið flutt á Grand Hótel, í sal sem heitir Gullteigur. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 28. maí kl. 20:00.
Bandalag háskólamanna gerir kjarakönnun
Bandalag háskólamanna tekur um þessar mundir þátt í samráði aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um stefnumótun í efnahags- og kjaramálum. Könnuninni er ætlað að afla upplýsinga um kjör háskólamanna á vinnumarkaði og þar með styrkja aðkomu bandalagsins að þessu samráði.
Inflúensa A(H1N1) ekki greind í sýnum frá sex einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast
Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast af inflúensu A(H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Allir í viðkomandi hópi tengdust manninum, sem greindist með inflúensuna fyrir helgi, fjölskylduböndum
Hádegisfundir með stjórnmálamönnum 27. og 29. maí
Bandalag háskólamanna telur brýnt að samræða eigi sér stað milli bandalagsins og þeirra sem völdin hafa. Því boðum við nú til tveggja opinna fundar þar sem stjórnarflokkar annars vegar og stjórnarandstöðuflokkar hins vegar kynna áherslur sínar og áform varðandi málefni háskólamanna.
"Öryggi í öndvegi"
Öryggi í öndvegi er heiti á námskeiði sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Sparnað ehf býður félagsmönnum sínum að sækja sér að kostnaðarlausu. Á námskeiðinu kynnir Ingólfur H. Ingólfsson ákveðna hugmyndafræði í fjármálum sem hann hefur verið að boða á undanförnum árum.
Fundargerð aðalfundar komin á netið.
Samkvæmt lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skal fundargerð aðalfundar birt á vefsvæði félagsins ekki seinna en viku eftir fundinn. Veittur er tveggja vikna frestur til athugasemda. Að þeim fresti loknum telst fundargerðin samþykkt og skal hún ásamt athugasemdum birt á vefsvæði félagsins
Málþing um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga, samgönguráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið standa að málþingi um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga miðvikudaginn 20. maí 2009. Fundarstaður er Hilton Hótel Nordica og fundartími er frá kl. 10:00 til kl. 15:30.
LSR og fjármálakreppan
BHM býður til fyrirlestrar um lífeyrissjóði - fyrirlesturinn er einkum ætlaður þeim sem vilja verða viðræðuhæfir um efnið – en að sjálfsögðu eru allir félagsmenn velkomnir þó þér ætli að bera fengna þekkingu í hljóði. Fyrirlesari er Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Ríkisstarfsmanna
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið á golfvellinum Flúðum föstudaginn 29.maí. Mótið hefst kl. 13:00 og er punktamót. Mótsgjald er 2400 kr og verður ræst út af öllum teigum samtímis.
Ályktanir aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 12. maí 2009
Aðalfundur Fíh samþykkti alls 5 ályktanir. Ályktanirnar hafa verið sendar viðeigandi yfirvöldum.
Rannsóknarverkefnið "Vinna og vinnuumhverfi sjúkraliða á Landspítala" í 1. sæti stúdentaverðlauna Vinnís
1.sæti "Vinna og vinnuumhverfi sjúkraliða á Landspítala" Alda Ásgeirsdóttir, Háskólanum í Reykjavík Umsögn: Mjög þarft og verðugt rannsóknarefni með viðeigandi og ígrundaðri rannsóknaraðferð. Markmið og niðurstöður fara vel saman sem og hagnýtt gildi fyrir samfélagið. Niðurstöðurnar eru settar fram á skipulegan og skiljanlegan hátt og vinnuvistfræðileg gildi höfð að leiðarljósi sem koma berlega í ljós í ályktun rannsakanda.
Úrsögn Fíh úr BHM
Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem haldinn var á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí, var samþykkt tillaga um úrsögn félagsins úr Bandalagi háskólamanna. Úrsögn Fíh úr BHM hefur verið til alvarlegrar skoðunar í þrjú ár. Tillaga um úrsögn var rædd ítarlega á fulltrúaþingi félagsins í maí 2007 og síðan á aukafundi í september 2007.
Tillaga um úrsögn Fíh úr Bandalagi háskólamanna samþykkt með 53 atkvæðum gegn 2
Fyrir aðalfundi Fíh lá eftirfarandi tillaga: "Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldinn þann 12. maí 2009, samþykkir að fela stjórn félagsins að ganga frá úrsögn félagsins úr Bandalagi háskólamanna (BHM). Stjórn skal tilkynna BHM úrsögnina innan tilskilins frests þannig að hún öðlist gildi frá og með áramótum 2009 og 2010. Stjórn skal þegar hefja undirbúning viðbragða við því ástandi sem skapast vegna úrsagnar og núverandi aðildar félagsmanna að sjóðum BHM". Tillagan var samþykkt með 53 atkvæðum gegn 2.
þrír félagsmenn sem ekki eru fulltrúar fag- eða svæðisdeilda kjörnir
Stjórn félagsins skal skipuð 18 félagsmönnum: Þeir þrír félagsmenn sem ekki eru fulltrúar fag- eða svæðisdeilda voru kosnir á aðalfundi Fíh í dag. 6 aðilar buðu sig fram til stjórnarstarfa. Rétt kjörnir til setu í stjórn Fíh eru Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Ragnheiður Gunnarsdóttir
Fulltrúar fagdeilda lýstir rétt kjörnir í stjórn Fíh
Stjórn félagsins skal skipuð 18 félagsmönnum: Formanni félagsins, fulltrúum hinna sjö svæðisdeilda, sjö fulltrúum fagdeilda og þremur félagsmönnum öðrum. Fulltrúar fagdeilda skulu kosnir beinni kosningu á aðalfundi
Sjö fulltrúar svæðisdeilda lýstir rétt kjörnir í stjórn Fíh
Stjórn félagsins skal skipuð 18 félagsmönnum: Formanni félagsins, fulltrúum hinna sjö svæðisdeilda, sjö fulltrúum fagdeilda og þremur félagsmönnum öðrum. Fulltrúar fagdeilda skulu kosnir beinni kosningu á aðalfundi. Fulltrúar svæðisdeilda eru kjörnir á vettvangi svæðisdeilda í aðdraganda aðalfundar og eru sjálfkjörnir í stjórnina.
Elsa B. Friðfinnsdóttir lýst réttkjörinn formaður Fíh
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsti í vetur eftir framboði til formanns félagsins. Eitt framboð barst til kjörnefndar frá Elsu B. Friðfinnsdóttur, núverandi formanni félagsins og telst hún því sjálfkjörin.
Aðalfundur settur í fyrsta sinn eftir nýjum verklagsreglum
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh setti aðalfund félagsins á Grand hótel Reykjavík kl 9 í morgun. Á dagskránni eru venjuleg aðalfundarstörf en undir liðnum önnur mál verða tekin fyrir 3 mikilvæg mál: staða kjarasamninga, ályktanir og tillaga um úrsögn félagsins úr BHM.
Skrifstofa Fíh er lokuð þriðjudaginn 12. maí vegna aðalfundar.
Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður lokuð á meðan á aðalfundi stendur. Aðalfundurinn er haldinn á Grand hótel Reykjavík
Tækifæri fyri hjúkrunarfræðinga - Sýnatökur fyrir Dóms- og kirkjumálaráðuneytið - kynningafundur 11. maí
Ríkiskaup, fyrir hönd dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, óska eftir tilboðum í blóðsýnatökur fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu (LRH). Að öllu jöfnu annast lögreglan töku öndunar- svita og munnvatnssýna. Læknir, hjúkrunarfræðingur eða lífeindafræðingur (áður meinatæknar) annast töku blóðsýna og eftir atvikum munnvatns,- svita- og þvagsýnis, oftast að viðstöddum lögreglumanni
Áfram hagræðing en ekki uppsagnir
Heilbrigðisráðherra dró upp dökka mynd af framtíð heilbrigðiskerfisins í ræðu sinni á ársfundi Landspítala í dag. Hann boðaði hagræðingu og jöfnuð en ekki uppsagnir.
Mikilvægt að forgangsraða í heilbrigðiskerfinu
"Það er mjög erfitt fyrir stjórnmálamenn að forgangsraða vilji þeir verða kosnir aftur eftir 4 ár, því verðum við fagfólkið að gefa ráð um hvernig á að forgangsraða," sagði Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landsspítalans á ársfundi spítalans nú fyrir stundu.
Aðildargjald félaga til BHM hækkað
Aðalfundur BHM ákvað 29. apríl að hækka aðildargjöld. Fíh mun því greiða um 14 milljónir króna 2009.
Orlofsuppbót í sumar einhliða ákveðin af fjármálaráðuneyti 25.200 kr
Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að greiða starfsmönnum ríkisins orlofsuppbót "til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun," eins og segir í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.
Hjúkrunarráð Landspítala ályktar vegna fyrirhugaðrar sameiningar á bráðamóttökum Landspítala
Stjórn hjúkrunarráðs lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðrar sameiningar á bráðamóttökum Landspítala. Hjúkrunarráð telur verulegar líkur á að breytingin muni leiða til skertrar þjónustu við sjúklinga og stefna öryggi ákveðinna hópa þeirra í hættu. Þá er hætt við að þeim árangri sem náðst hefur í meðferð ákveðinna hópa sjúklinga sé ógnað
Lausar vikur í orlofshús/íbúðir í sumar.
Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshús/orlofsíbúðir er lokið.
Kynning á sérhæfðu námi í krabbameins og líknandi meðferð sem boðið er upp á við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri.
Námið er sérstök námslína innan þverfaglegs náms í heilbrigðisvísindum til diplóma eða meistaragráðu. Markmiðið er að aukin þekking á þessu sviði nýtist einstaklingum vel í starfi og styrki þá til að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem bíða fagfólks í þjónustu við þá sem fengið hafa krabbamein eða þurfa á líknandi meðferð að halda
Landspítali hefur tilkynnt ráðningu 6 framkvæmdastjóra yfir jafn mörg klínísk svið spítalans
Ráðið hefur verið í 6 nýjar stöður framkvæmdastjóra klínískra sviða á Landspítala. Nýtt klínískt sviðakerfi tekur gildi á spítalanum 1. maí en þá fækkar klínísku sviðunum úr 12 í 6. Klínískum sviðum hafa til þessa að jafnaði stýrt tveir sviðsstjórar, sviðsstjóri hjúkrunar og sviðsstjóri lækninga. Það stjórnunarlag er nú lagt niður og ráðinn einn framkvæmdastjóri á hvert hinna nýju sviða, að undangenginni auglýsingu og ráðningarferli.
Brýnt að standa vörð um kjör háskólamanna - Ályktun aðalfundar Bandalags háskólamanna, 29. apríl 2009
Í ályktun sinni frá því í dag óskar aðalfundur BHM væntanlegri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi og beinir því m.a. til hennar að huga að málefnum háskólamanna á vinnumarkaði og standa vörð um velferð og menntun landsmanna
Vigdís Magnúsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítala og heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga er látin
Vigdís Magnúsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landspítala og heiðursfélagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, lést á heimili sínu í Hafnarfirði laugardaginn 25. apríl sl. Hún fæddist 19. febrúar 1931. Vigdís lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1956. Á árunum 1958-1960 var hún við nám og störf í hjúkrun í Bandaríkjunum. Síðar fór hún til framhaldsnáms í Noregi og lauk þar námi í spítalastjórnun árið 1972.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Fíh
Reykjavíkurdeild Fíh boðar til aðalfundar síns þann 6. maí kl 17 að Suðurlandsbraut 22. Samkvæmt nýju skipulagi fær Reykjavíkurdeild meiri strúktúr og skilgreindara hlutverk en verið hefur síðustu árin. Því bíður nýrrar stjórnar Reykjavíkurdeildar það verkefni að byggja upp nýja og kröftuga deild. Leitað er eftir áhugasömum um að gefa kost á sér til stjórnarstarfa í deildinni.
Ljósmæðrafélag Íslands 90 ára - Ráðstefna
Ljósmæðrafélag Íslands vill vekja athygli ykkar á ráðstefnu sem félagið stendur fyrir í tilefni að 90 ára afmæli þess þann 2. maí n.k. Ráðstefnan verður haldin þann 1. maí og er öllum opin
Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Aðalfundurinn verður haldinn í húsnæði Fíh við Suðurlandsbraut 22 þann 30. apríl kl 18
Starfsmenntunarstyrkur hækkaður
Stjórn starfsmenntunarsjóðs ákvað í dag að hækka hámarksstyrk úr 40.000 í 50.000 krónur. Ákvörðunin tekur til umsókna sem verða afgreiddar frá og með júní 2009. Í júní á hverju ári eru einnig veittir tólf hærri styrkir vegna lengra og dýrara náms. Þeir voru áður 80.000 krónur en verða núna 100.000 krónur.
Ályktun frá Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga um ráðningu í forstjórastöðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Á erfiðum tímum er mikilvægt að fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fari víðsýnn leiðtogi sem horfir til framtíðar. Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga hvetur heilbrigðisráðherra að horfa til víðtækrar reynslu af heilsuvernd og stjórnun hér heima og erlendis þegar ráðið verður í forstjórastöðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem nýverið var auglýst til umsóknar.
LSR og fjármálakreppan - Sjóðfélagafundur
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins boðar til fundar með sjóðfélögum miðvikudaginn 15. apríl. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 16:30
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2009.
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2009. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 350 orlofsstyrkir og 174 vikur í orlofshúsum. Alls bárust 953 umsóknir. Synjun fengu 446 félagsmenn.
Heilbrigðisráðherra veitir gæðastyrki
Heilbrigðisráðherra veitti í dag gæðastyrki heilbrigðisráðuneytisins, samtals tólf styrki um tvær og hálf milljón króna. Ögmundur Jónasson veitti Önnu Björgu Aradóttur, yfirhjúkrunarfræðingi hjá Landlæknisembættinu, einn stærsta gæðastyrkinn. Margir aðrir hjúkrunarfræðingar hlutu styrk og óskar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þeim til hamingju.
Ný tilkynning vegna flutnings á SPRON til Nýja Kaupþingsbanka
Innlánsreikningar SPRON hafa færst yfir til Nýja Kaupþings. Bankareikningar BHM sem voru áður í útibúi 1158 hjá SPRON hafa því fengið nýtt bankanúmer 0336. Að öðru leyti halda reikningsnúmerin sér. Reikningsnúmer vegna launatengdra gjalda: 0336-26-50000 kt. 6303872569 Innheimta á launatengdum gjöldum hefur ennfremur verið flutt til Nýja Kaupþingsbanka. Rafræn skil sendist á sama hátt og áður en önnur skil sendist á netfangið skbib@bhm.is Nánari upplýsingar má sjá á hér á heimasíðunni undir flipanum Kjaramál/Launagreiðendur.
Klínískar leiðbeiningar um meðferð við reykingum komnar út
Út eru komin drög klínískra leiðbeininga um meðferð við reykingum á vef Landlæknisembættisins. Markmiðið með gerð íslenskra leiðbeininga um þetta efni er að koma gagnreyndri þekkingu yfir á íslenskt mál.
Búið er að greiða út úr A-hluti Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Styrkir úr A-hluta Vísindasjóðs hafa verið greiddir út til starfandi hjúkrunarfræðinga. Styrkirnir voru lagðir inn á bankareikninga sem stofnaðir voru Kaupþingi, banki númer 0338 höfuðbók 03 en bankareikningurinn er sá sami sem var áður í SPRON. Stofnaðir voru nýir reikningar fyrir þá sem eru að fá greiddan styrk í fyrsta sinn. Mikilvægt er að sjóðfélagar loki ekki reikningunum þegar þeir taka út af þeim svo ekki þurfi að stofna nýja reikninga árlega.
Yfirlýsing frá LSR vegna fréttar í Morgunblaðinu sunnudaginn 29. mars.
Í fréttinni er fjallað um hvers konar boð starfsmenn lífeyrissjóða hafi þegið frá fjármálafyrirtækjum. Af þessu tilefni er rétt að það komi fram að starfsmenn LSR hafa ekki þegið boð í laxveiði, hvorki innan lands né utan. Þeir fóru ekki á fótboltaleik í Aþenu sem fjallað er um í blaðagreininni. Þeir hafa ekki þegið boð á Formúlu 1 kappaksturskeppni. Þeir kannast ekki við að bandaríski bankinn Morgan Stanley hafi boðið þeim reglulega til New York. Þá hafa þeir ekki heldur þegið boð í skíðaferðir eða siglingar sem einnig eru tilgreindar í umfjöllun Morgunblaðsins.
Heilbrigðisráðherra, í samstarfi við félög fagstétta í heilbrigðisþjónustu, boðar starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar til opins vinnudags 7. apríl 2009
Heilbrigðisráðherra, í samstarfi við félög fagstétta í heilbrigðisþjónustu, boðar starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar til opins vinnudags 7. apríl 2009 á alþjóðlega heilbrigðisdeginum undir ufirskriftinni: Ný viðhorf - nýjar lausnir - aukinn jöfnuður.
Vegna útborgunar úr A-hluta Vísindasjóðs
Enn er verið að vinna greiðslu vegna A-hluta vísindasjóðs hjá Kaupþingi. Greiðslan hefur því ekki verið lögð inn ennþá, en um leið og slíkt gerist verður tilkynnt um það hér á vef félagsins. Vonast er til að greiðslan fari í gegn fyrir mánaðarmót.
Fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga boðar til vorfundar
Vorfundur Fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga verður 2. apríl kl.17 í húsnæði Vistor, Hörgatúni 2, Gb. Rósa Kristjánsdóttir, djákni og Valgerður Sigurðardóttir, læknir flytja erindi um líknarmeðferð.
Ný dagdeildargjöld afnumin
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að afnema dagdeildargjöld sem lögð voru á 1. janúar 2009.
Elsa B. Friðfinnsdóttir áfram formaður starfstímabilið 2009 til 2011
Framboðsfrestur til formanns rann út þann 3. mars sl. Einungis eitt framboð barst frá sitjandi formanni og kemur því ekki til atkvæðagreiðslu.
Aðalfundur fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga 2009
Fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar fimmtudaginn 19. mars 2009 kl:18.00 -20:00 að Lynghálsi 13.
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 12. maí næstkomandi á Grand hótel Reykjavík. Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstöf í samræmi við lög félagsins.
Háskólinn á Akureyri með nýjan bækling um framboð framhaldsnáms í heilbrigðisvísindum
Nýr bæklingur Heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri er nú aðgengilegur á vef skólans.
Námsbrautir á grunn- og meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Kynning laugardaginn 14. mars kl.14 á Dunhaga 7. Á haustmisseri 2009 verða tólf námsbrautir í boði hjá Endurmenntun og hefur framboðið aldrei verið eins fjölbreytt. Almenn kynning verður á námi hjá Endurmenntun sem og á hverri námsbraut.
Mannauður í heilbrigðisþjónustu og framtíð heilbrigðisþjónustunnar
Alþjóðasamtök lækna, WMA, standa nk. sunnudag og mánudag fyrir ráðstefnu á Íslandi. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um tilfærslu verkefna innan heilbrigðisþjónustunnar til að bregðast við alvarlegum skorti á heilbrigðisstarfsfólki. Framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga er meðal sérstakra gesta ráðstefnunnar en fulltrúum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur jafnframt verið boðið að sitja hana.
Bilun í fjarfundabúnaði LSH
Því miður tókst ekki að senda út til svæðisdeilda fyrirlestir Suzanne Gordon , "From Virtue to Knowledge: Making Nursing Credible" , sem haldinn var í Hringsal LSH.
Dreifibréf um tilkynningaskyldu rekstraraðila og rafræna sjúkraskrá
Landlæknisembættið hefur sent frá sér tvö dreifibréf til stofnana í heilbrigðisþjónustu og fagfélaga heilbrigðisstétta. Hið fyrra fjallar um tilkynningaskyldu til landlæknis um rekstur heilbrigðisþjónustu. Síðara bréfið ber yfirskriftina Rafræn sjúkraskrá - viðurlög ef aðgangsreglur eru brotnar
Endurgreiðsla iðgjalda umfram hámark
Í lok febrúar voru endurgreidd þau iðgjöld sem bárust til félagsins umfram það hámark sem aðalfundur samþykkti árið 2008. Hámarksiðgjöld árið 2008 voru því tæplega 65 þúsund krónur. Um 380 félagsmenn fengu endurgreitt og var endurgreiðslunni ráðstafað á reikninga viðkomandi félagsmanna hjá SPRON í Borgartúni.
Aðalfundur fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 26. mars n.k. í sal félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
FS mun að þessu sinni halda aðalfund sinn á Kaffi Sólon, Bankastræti, Reykjavík þann 13. mars n.k. Ársskýrsla deildarinnar liggur frami á vefsvæði hennar
Fyrirlestur í boði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga býður hjúkrunarfræðingum á fyrirlesturinn "From Virtue to Knowledge: Making Nursing Credible" sem Suzanne Gordon, rithöfundur og blaðamaður, heldur miðvikudaginn 4. mars í Hringsal LSH kl. 15.00-16:30
Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga vill að staðinn verði vörður um sérþekkingu í hjúkrun
,,Á undanförnum árum hefur skapast mikil sérhæfð þekking á hjúkrun sjúklinga með margvíslega sjúkdóma þ.m.t. krabbamein. Slík sérhæfing stuðlar að því að sjúklingum sé veitt markviss hjúkrun sem eykur öryggi þeirra og bætir líðan og lífsgæði bæði sjúklinga og aðstandenda þeirra," segir í ályktun fagdeildarinnar krabbameinshjúkrunarfræðinga
Orlof fyrir sumarið 2009
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á orlofsvefnum. Orlofsblaðið er hér til hliðar á heimasíðunni, en er ekki komið úr prentun, blaðið mun berast hjúkrunarfræðingum með Tímariti hjúkrunarfræðinga um næstu mánaðarmót.
Starfsemi St. Jósefsspítala samhæfð starfsemi Landspítala
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að samhæfa starfsemi St. Jósefsspítala og Landspítala. Hann tilkynnti þetta á Alþingi í dag. Ráðherra hefur ákveðið að fela Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra Landspítala, Árna Sverrissyni, forstjóra St. Jósefsspítala, Ólafi Þór Gunnarssyni, lækni, Hallgrími Guðmundssyni, sviðsstjóra stefnumótunarsviðs heilbrigðisráðuneytisins, og Gunnhildi Sigurðardóttur, fyrrverandi hjúkrunarforstjóra á St. Jósefsspítala og talsmann Hagsmunasamtaka St. Jósefsspítala, og fulltrúa tilnefndum af bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði, að útfæra ákvörðun sína og skila útfærslunni 12. mars 2009
Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun í apríl n.k
Vinnuvistfræðifélag Íslands veitir verðlaun í apríl n.k. til háskólanema fyrir verkefni sem hefur vinnuvistfræðilegt gildi og þykir skara fram úr öðrum á því sviði. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin verða veitt á Íslandi en sambærilegar viðurkenningar hafa verið veittar á Norðurlöndum á undanförnum árum.
GoRed fyrir konur á Íslandi - forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 13-16 verður opin dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem átaksverkefninu GoRed fyrir konur á Íslandi verður ýtt úr vör. Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum.
Landspítali á að skera niður umtæpa 3 milljarða
Stjórnendur á Landsspítalanum þurfa að skera niður kostnað um tæpa 3 milljarða á þessu ári, samkvæmt kröfum frá heilbrigðisráðuneytinu. Alls fær stofnunin rúma 30 milljarða á fjárlögum þessa árs.
Hjúkrunarráð Landspítalans lýsir yfir miklum áhyggjum á fyrirhuguðum samdráttaraðgerðum á Landspítala.
Hjúkrunarráð Landspítalans lýsir yfir miklum áhyggjum á fyrirhuguðum samdráttaraðgerðum á Landspítala. Einkum hefur hjúkrunarráð áhyggjur af áhrifum þess að fækka hjúkrunarfræðingum og öðrum starfsmönnum í hjúkrun. Víða er mikil sérþekking í hjúkrun
Rannsóknarstyrkir SUMS fyrir 2009 - 2010
Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 200.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sárgræðslu og sárameðferð.
Styrkur til umsóknar úr Vísindasjóði Öldrunarfræðafélags Íslands
Vísindasjóði Öldrunarfræðafélags Íslands er ætlað að styrkja vísinda- og rannsóknarverkefni tengdum málefnum aldraðra.
Hagrætt í rekstri félagsins
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vinnur nú að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009. Í ljósi ýmissa óvissuþátta í áætluninni hefur stjórnin samþykkt eftirfarandi hagræðingaraðgerðir fyrir yfirstandandi rekstrarár:
Ályktun frá Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) að fækka stöðugildum hjúkrunarfræðinga um 12, sem og að gjörbylta starfsemi Miðstöðvar heilsuverndar barna og Miðstöðvar mæðraverndar sem báðar verða lagðar niður.
Ögmundur Jónasson tekur við sem heilbrigðisráðherra
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, tók við lyklavöldunum í heilbrigðisráðuneytinu síðdegis, þegar fráfarandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, afhenti lykla ráðuneytisins og kvaddi svo sem venja er til.
Ályktun stjórnar Fíh vegna niðurskurðar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við afleiðingum þeirra sparnaðaraðgerða sem boðaðar hafa verið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Öflugt starf hefur byggst upp á þremur heilsuverndarsviðum en það eru miðstöð heilsuverndar barna, miðstöð mæðraverndar og miðstöð tannverndar.
Heilsufarsupplýsingar á netið
Stýrihópur um upplýsingatækni hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu hópsins til heilbrigðisráðherra. Lagt er m.a. til að sjúklingar hafi aðgang að eigin heilsufarsupplýsingum á netinu og að aðgangur að lyfjaupplýsingum verði settur í forgang.
Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur sent út til umsagnar frumvarpsdrög þar sem gert er ráð fyrir að breyta í grundvallaratriðum hlutverki og skipulagi eftirlits- og forvarnastofnana sem ríkið rekur.
Hætta á að rekstrar- og fjárhagsleg sjónarmið beri fagleg sjónarmið ofurliði
Pófessor í heilsufélagsfræði við Háskóla Íslands, dr. Rúnar Vilhjálmsson, segir í www.mbl.is hættu á að rekstrar- og fjárhagsleg sjónarmið beri fagleg sjónarmið ofurliði í fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðismálum. Segist hann helst hafa áhyggjur af gæðum þjónustunnar og aðgengi að henni. Boðað hafi verið að keyra eigi breytingarnar hratt í gegn og mikilvægt að vinnubrögðin séu vönduð.
Afmælisár Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Þann 18. nóvember næstkomandi verða 90 ár liðin frá því fámennur hópur stórhuga hjúkrunarkvenna kom saman og stofnaði Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Tilgangur félagsins var að gæta hagsmuna hjúkrunarkvenna, bæði faglegra og kjaralegra. Hjúkrunarfræðingum hefur auðnast að starfa saman í sterkum félagsskap í bráðum 90 ár. Enn er megin markmiðið það sama, að gæta hagsmuna hjúkrunarfræðinga og efla þá á alla lund.
Norræn félög hjúkrunarfræðinga hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ástandsins á Gazasvæðinu
Félög hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum hvetja alla aðila til að virða samþykktir um vernd almennra borgara á stríðstímum. Jafnframt hvetja félögin alþjóðasamfélagið til að hlutast til um vopnahlé eftirfylgt af friði.
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til stjórnvalda:
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar stjórnvöld við að fara of geyst í breytingar á heilbrigðiskerfinu og óttast að við það skerðist þjónusta við sjúklinga umtalsvert og dýrmæt sérþekking starfsmanna tapist. Því vill stjórnin ítreka nauðsyn þess að haft sé samráð við fagfólk áður en ákvarðanir um breytingar eru teknar.
Lokun Meltingarsjúkdómadeildar St. Jósefsspítala ,Sólvangs
Innsýn, fagdeild hjúkrunarfræðinga starfandi við lungna og meltingafærarannsóknir, fordæmir harðlega ákvörðun heilbrigðisráðherra
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á heilsugæslustöðvum Hafnarfjarðar og Garðabæjar hvetja heilbrigðisráðherra til að endurskoða ákvörðun sína
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á heilsugæslustöðvum Hafnarfjarðar og Garðabæjar hvetja heilbrigðisráðherra til að endurskoða ákvörðun sína um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala. Í ályktun frá þeim segir að frekar eigi að styrkja þjónustu spítalans í stað þess að sundra henni.
Einstök námskeið á meistarastigi hjá Endurmenntun
Endurmenntun HÍ kynnir framboð meistarastigsnámskeiða á heilbrigðis- og félagssviði, vormisseri 2009.
Samningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Launanefnd Sveitarfélaga (LN) samþykktur
Samningur Fíh við LN var samþykktur með ríflega 86% greiddra atkvæða, alls greiddu 43,28 % þeirra sem voru á kjörskrá atkvæði
Íslendingar "Norðurlandameistarar" í notkun sýklalyfja
Íslendingar nota 20-40% meira af sýklalyfjum en aðrar Norðurlandaþjóðir. Vilhjálmur Ari Arason, heilsugæslulæknir, sem ásamt öðrum hefur rannsakað sýklalyfjanotkun hér á landi, segir í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 lyfin oft á tíðum ekki koma að gagni.
BHM með áhersluatriði til félagsmanna aðildarfélaganna
Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er á íslenskum vinnumarkaði telur Bandalag háskólamanna nauðsynlegt að koma eftirfarandi á framfæri:
Leiðsögn í klínísku námi: Tenging fræða og starfs og Krabbamein: orsakir - greining - meðferð. Meistarastigsnámskeið hjá Háskólanum á Akureyri
Fyrirhugað er að halda 3 eininga (6 ECTS) námskeið á meistarastigi á vorönn 2009 fyrir háskólamenntaðar fagstéttir sem sinna leiðsögn nemenda og nýrra starfsmanna á heilbrigðisstofnunum. Jafnframt verður haldi námskeið fyrir háskólamenntaðar fagstéttir í heilbrigðisþjónustu. Nemendur geta sótt um að fá þessar einingar metnar til diplómu- eða meistaranáms við Háskólann á Akureyri (HA) eða aðra háskóla
Starfshópur skipaður um leiðir til að sporna gegn atvinnuleysi
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins til að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi.
Framvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja tekur vel í mögulegt samstarf við Róbert Wessman
Samkvæmt frétt á www.mbl.is líst framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vel á að Reykjanesbær taki við heilbrigðisþjónustu í bænum. Hún væntir mikils af nýrri Sjúkratryggingastofnun og tekur vel í mögulegt samstarf sjúkrahússins við Róbert Wessman. Sjúkrahúsið ætli að nota tækifæri sem bjóðist til að auka tekjur sínar.
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um niðurlagningu St. Jósefsspítala og flutning á starfsemi hans, sem stjórnin segir að hafi verið lagðar fram án samráðs við hluteigandi starfsfólk og bæjaryfirvöld. Breytingin falli vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.
Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega
Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um stórfellda sameiningu heilbrigðisstofnana, sem kynntar voru í vikunni. Engin haldbær gögn hafa verið lögð fram sem sýna að um raunsparnað sé að ræða og engin fagleg rök hafi komið fram fyrir sameiningunni. Er skoðað á stjórnvöld að endurskoða tillögurnar.
Fagna sameiningu heilbrigðisstofnana
Starfsfólk Heilsugæslustöðvar Ólafsvíkur hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að sameina átta stofnanir í Heilbrigðisstofnun Vesturlands í stað fimm eins og áður var áætlað.
Vinnubrögð bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki segir í ályktun starfsmanna HS
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki (HS) kom saman til fundar í dag þar sem samþykkt var harðorð ályktun. Átalin er ákvörðun heilbrigðisráðherra um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, FSA.
Tilkynning til félaga í Sjúkra- og Styrktarsjóðum BHM
Nýjar reglur sjóðanna eru komnar á vefinn: http://www.bhm.is/sjodir/ Vakin er sérstök athygli félagsmanna Styrktarsjóðs BHM á því að fæðingarstyrkur flyst nú frá áramótum til sjóðsins en hann var áður annars staðar.
Ávarp til hjúkrunarfræðinga
Í dag kynnti Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra viðamiklar breytingar sem framundan eru í heilbrigðiskerfinu. Sumar þessara breytinga voru fyrirséðar í framhaldi setningar laga um heilbrigðisþjónustu í mars 2007. Aðrar koma á óvart eins og þær breytingar sem tilkynntar voru á starfsemi St. Jósefsspítala.
Kynning á samningi við Launanefnd sveitafélaga
Samkomulag Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við Launanefnd sveitafélaga frá 18. desember 2008 um breytingar á kjarasamningi verður kynnt á fundi á Hótel KEA á Akureyri fimmtudaginn 8. janúar kl. 16:15
Umfangsmiklar breytingar á heilbrigðisþjónustu landsins. St. Jósefsspítala í Hafnarfirði verður falið hlutverk á sviði öldrunarlækninga og hvíldarinnlagna.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á heilbrigðisþjónustu í landinu. Meðal helstu breytinga er sameining stofnana, flutningur verkefna auk þess sem St. Jósefsspítala í Hafnarfirði verður falið hlutverk á sviði öldrunarlækninga og hvíldarinnlagna. Skurðaðgerðir flytjast á Suðurnesin og meltingardeild á Landspítala. Eftir fréttamannafundinn síðdegis beið fjöldi starfsfólks frá St. Jósefsspítala eftir ráðherra. Mikil reiði var í fólkinu.
Skilafrestur á útdráttum vegna Alþjóðlegu fjölskylduráðstefnunnar, IFNC2009, hefur verið framlengdur til 12. janúar 2009
Meira en eitt hundrað úrdráttum frá fimm heimsálfum hefur þegar verið skilað innn vegna ráðstefnunnar, sem haldin verður í Reykjavík. Vísindanefnd hennar hvetur hjúkrunarfræðinga sem ekki hafa sent inn úrdrætti til að gera það og hefur því framlengt frestinn til 12. janúar 2009
Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangs lýsa óánægju og fordæma vinnubrögð heilbrigðisráðherra
Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangs lýsa yfir megnri óánægju og fordæma vinnubrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, í yfirlýsingu. "Við erum að gagnrýna samskiptaleysi og skort á upplýsingum til starfsfólks en óvissan hefur skapað óvissu kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar," segir Ragnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri á skurðdeild spítalans.
Forstjóri Landspítala í veikindaleyfi
Í tilkynningu á www.landspitali.is kemur fram að Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítala verður fjarverandi í janúar 2009 vegna veikinda. Hún er væntanleg aftur til starfa nálægt mánaðamótum. Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga og staðgengill forstjóra, gegnir starfi forstjóra í fjarveru Huldu.
