Fréttsafn eftir árum//
Endurskoðun stofnanasamnings á LSH
Samningaviðræður milli samstarfsnefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Landspítala (LSH) um endurskoðun stofnanasamnings eru enn í gangi og leggja fulltrúar hjúkrunarfræðinga mikla áherslu á
Jólastyrkur í stað jólakorta
Jólastyrkur Fíh var veittur Konukoti sem er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendir ekki út jólakort til vina og velunnara. Þess í stað er ákveðinni fjárhæð varið ár hvert til styrktar góðu málefni
Laus orlofshús síðustu helgina fyrir jól
21.-24. desember nk. eru nokkur orlofshús laus.
Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld á jóla- og áramótatilboði
Jóla- og áramótatilboð á Sögu hjúkrunar á Íslandi á 20. öld. Bókin sem kostar 7.900 kr. fæst nú á 5.200 kr en vakin er athygli á að póstkostnaður* bætist við verð bókarinnar sé hún ekki sótt á skrifstofu Fíh.
Laus orlofshús
Bjarteyjarsandur, Bláskógar og íbúðin Borgarnesi laus helgina 14.-17. desember
Stjórnir hjúkrunarráðs og læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir áhyggjum af uppsögnum á Landspítala
Stjórn hjúkrunarráðs og stjórn læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir áhyggjum af uppsögnum hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við sjúklinga og aðstandendur. Augljóst er að þjónusta spítalans verður í uppnámi ef uppsagnirnar verða að veruleika.
Framboð til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir eftir framboði til formanns félagsins. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kjörinn til tveggja ára í senn með allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna það ár sem ber upp á oddatölu.
Staða varðandi stofnanasamninga við Landspítala
Samstarfsnefnd Fíh og LSH funda nú reglulega vegna endurskoðunar stofnanasamnings. Reynt er að leita allra leiða til að leysa þetta mál eins fljótt og hægt er í ljósi alvarleika þess.
Styrkjum úthlutað úr minningarsjóðum og Rannsókna-og vísindasjóði
7 hjúkrunarfræðingar hlutu styrki
Reglugerð fyrir heilbrigðisstéttir
Þann 1. janúar næstkomandi tekur gildi ný heildarlöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor. Þar með falla niður lög og reglugerðir sem gilt hafa um einstakar heilbrigðisstéttir en í þeirra stað verða settar reglugerðir um hverja stétt á grundvelli nýju löggjafarinnar.
Launalaus í heilt ár!
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Fíh fer yfir það í pistli sínum að hver hjúkrunarfræðingur á Landspítala hafi á fimm ára tímabili unnið eitt ár launalaust.
Hjúkrunarnemar á þriðja ári við HÍ senda frá sér stuðningsyfirlýsingu
Félagi íslenskra hjúkrnarfræðinga hefur borist yfirlýsing þriðja árs hjúkrunarnema við Háskóla íslands þar sem fram kemur m.a. að þeir lýsa yfir samstöðu um að ráða sig ekki til starfa á Landspítala né taka aukavaktir sem til komi vegna uppsagna hjúkrunarfræðinga.
Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala lýsir yfir miklum áhyggjum af uppsögnum
"Landspítali má ekki við að missa hjúkrunarfræðinga úr starfi. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við sjúklinga og hafa lagt að baki margra ára nám og þjálfun til sérhæfðra starfa,“ segir m.a. í ályktun stjórnar hjúkrunarráðs LSH
Um hvað snýst málið?
í pistlaflokkinum Formaður á vaktinni leitast Elsa B. Friðfinnsdóttir við að gera grein fyrir helstu atriðum varðandi endurskoðun stofnanasamninga á Landspítala og uppsagna hjúkrunarfræðinga.
254 hjúkrunarfræðingar hafa sagt starfi sínu lausu á Landspítala
Í frétt frá skrifstofu forstjóra Landspítala kemur fram að 254 hjúkrunarfræðingar í 193 stöðugildum hafi sagt starfi sínu lausu og að uppsagnirnar muni að óbreyttu taka gildi 1. mars 2013.
Fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur leitað til félagsins að undanförnu með ýmsar vangaveltur varðandi uppsagnir
Sviðstjóri Kjara- og réttindasviðs Fíh svarar hér 5 algengustu spurningum félagsmanna.
Frá hjúkrunarþingi Fíh
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldið föstudaginn 2. nóvember 2012 á Grand hóteli undir yfirskriftinni Heilsugæsla eða læknamóttaka? Heilbrigðisáætlun til ársins 2020. Hlutur hjúkrunar í heilsugæslu.
Nýr orlofskostur á Norðurlandi
Vörðuholt í Aðaldal, Þingeyjarsýslu bætist við sem nýr orlofskostur fyrir félagsmenn Fíh þann 1. mars 2013
Kjör hjúkrunarfræðinga rædd á Alþingi
Kjör hjúkrunarfræðinga voru rædd á Alþingi í dag. Tengill á umræðina er hér.
Jólafundur Öldungadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Jólafundur Öldungadeildar Fíh verður haldinn á Grand hóteli fimmtudaginn 6. desember nk. kl. 12:30
Engin loforð – áfram óvissa um stofnanasamninga
Velferðarráðherra hyggst taka erindi Fíh upp á fundi ríkisstjórnarinnar en enginn raunverulegur árangur varð þó af fundum Fíh með ráðherrunum. Endurnýjun stofnanasamninga á Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum er því enn í algjörri óvissu.
Fundir með ráðherrum og þingflokkum
Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga funduðu í gær með fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðherra mun nú meta þau gögn sem lögð voru fram á fundinum. Fundur með velferðarráðherra verður
Athugið lokafresti vegna skila
Starfsmenntunarsjóður og Styrktar- og sjúkrasjóður minna á að lokafrestir til að sækja um og skila gögnum vegna umsókna nálgast.
Tveir hlutu styrk úr Rannsóknarsjóði Öldrunarráðs Íslands
Stjórn Öldrunarráðs Íslands veitti nýlega tvo rannsóknarstyrki úr styrktarsjóði ráðsins vegna rannsókna í öldrunarmálum. Öldrunarráð veitir árlega styrki til rannsókna í málaflokknum og fór afhending þeirra fram á Hrafnistu í Reykjavík.
Styrktarsjóður Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga auglýsir styrki
Styrktarsjóður Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga auglýsir styrki til sinna félagsmanna. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember 2012
Opið hús á Suðurlandsbraut 22
Í tilefni 25 ára afmælis húsnæðis Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður opið hús á Suðurlandsbraut 22 milli kl. 13:00 og 18:00 mánudaginn 19. nóvember.
Viðauki við samskiptareglur lyfjaframleiðenda er lúta að samskiptum við fagfólk í heilbrigðisstétt
Samskiptareglur lyfjaframleiðenda er lúta að samskiptum við fagfólk í heilbrigðisstétt fylgdu í bækling sem dreift var með Tímariti hjúkrunarfræðinga fyrr á þessu ári. Nýjasta útgáfa EFPIA reglanna er frá 1. janúar 2012 en um næstu áramót tekur viðauki við reglurnar gildi.
Orlofsíbúð- og hús laus um helgina
Orlofsíbúðin í Borganesi og Bjarteyjarsandur laus um helgina 16.-19. nóvember.
Tilboð til hjúkrunarfræðinga frá Heilsuborg
Heilsuborg Faxafeni 14 í Reykjavík, kynnir fyrir hjúkrunarfræðingum og mökum þeirra tilboð í líkamsrækt.
Fundur ákveðinn með fjármála- og efnahagsráðherra
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðið fulltrúum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) til fundar miðvikudaginn 14. nóvember til að ræða stöðu hjúkrunarfræðinga á Landspítala og endurskoðun stofnanasamninga
Ráðstefna um gips og gipslagningu
Bráða- og göngudeild G-3 LSH stendur fyrir ráðstefnunni, sem haldin verður 23. nóvember n.k. Fjallað verður um helstu ábendingar fyrir gipslagningu, helstu aukaverkanir og hvað ber að varast. Aðaláherslan er á sýnikennslu og verklega þjálfun í lagningu á nokkrum gipsum.
Styrkir í boði - framlengdur umsóknarfrestur
Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga auglýsir 4 styrki að upphæð 40.000 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur till 30. nóvember 2012.
Hjúkrun og meðferð taugasjúklinga á Akureyri þann 23. nóvember nk.
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga auglýsir nýja dagsetningu á námskeiðinu Hjúkrun og meðferð taugasjúklinga sem frestað var vegna veðurs.
Enn bíða hjúkrunarfræðingar eftir fundum með velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra
Enn hafa velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra ekki svarað óskum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fund vegna stöðu hjúkrunarfræðinga á Landspítala og endurskoðunar stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga þar og á öðrum heilbrigðisstofnunum. Erindin hafa nú verið ítrekuð.
Fullbókað á hjúkrunarþing 2012
Vinsamlega tilkynnið forföll í netfangið adalbjorg@hjukrun.is
Fyrsta doktorsvörnin í hjúkrunarfræði
Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir varði doktorsritgerð sína frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Tímarit hjúkrunarfræðinga og Dagbók fyrir 2013
Tímarit, Dagbók fyrir 2013 og plast fyrir dagbókina verða borin út í vikunni til félagsmanna.
Ásta Thoroddsen tekin inn sem FAAN (Fellow of the American Academy of Nursing)
Í Akademíunni eru um 1800 meðlimir og fremstu leiðtogar innan hjúkrunar á sviði menntunar, hjúkrunarstarfa, stjórnunar og rannsókna. Vígsla inn í Akademíuna er viðurkenning á framúrskarandi starfsferli á sviði hjúkrunar. Yfir 80% meðlima eru með doktorsgráðu, tæp 20% með meistaragráðu.
Iceland Express gjafabréfin eru í gildi hjá WOW air
Vegna fyrirhugaðrar yfirtöku Wow air á flugrekstri Iceland Express vill Orlofssjóður vekja athygli á þvi að gjafabréf Iceland Express sem sjóðurinn hefur selt eru í fullu gildi og mun WOW air taka við þeim sem greiðslu.
Formaður á vaktinni: "Ótrúverðugt tilraunaverkefni um launajafnrétti kynjanna"
Á morgun stendur til að undirrita samkomulag milli velferðarráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Bandalags háskólamanna (BHM), Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands (ASÍ), Kennarasambands Íslands (KÍ), Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) varðandi tilraunaverkefni um samstarfs- og samráðsvettvang um launajafnrétti kynjanna. Eða hvað? Nei, tvö síðustu félögin, tvö stór kvennafélög verða ekki með!
Fagdeild hjúkrunarfræðinga tengdum þvagfærahjúkrun vekur athygli á leiðbeiningum
Fagdeildin hvetur alla hjúkrunarfræðinga til að kynna sér leiðbeiningar um umhirðu þvagleggja sem LSH hefur gefið út.
Aðalfundur hjúkrunarráðs Landspítala sendir frá sér ályktanir
Hjúkrunarráð á Landspítala bendir á að niðurskurður á spítalanum undanfarin ár hefur haft mikil áhrif á starfsaðstæður hjúkrunarfræðinga. Aukið álag hefur dregið úr tækifærum hjúkrunarfræðinga til að vinna að mikilvægum verkefnum sem tengjast gæðum, kennslu og öðrum faglegum verkefnum. Auk þess skorar hjúkrunarráð LSH á Alþingi og Reykjavíkurborg að veita nýjum Landspítala brautargengi.
Tilboð frá Óperunni til hjúkrunarfræðinga
Íslenska óperan býður hjúkrunarfræðingum að taka sig saman í hóp og fá afslátt á Óperuna Il Trovatore (Trúbadorinn) eftir Giuseppe Verdi.
Beðið eftir fundum með velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur óskað eftir fundum með velferðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra til að ræða möguleika heilbrigðisstofnana til að endurskoða stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga.
Tilboð til hjúkrunarfræðinga
Íslenski dansflokkurinn vill bjóða félagsmönnum í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga miða á októberuppfærslu flokksins á aðeins 2.900 kr. en almennt miðaverð er 3.900 kr.
Gjöf til Landspítala í minningu Katrínar Gísladóttur skurðhjúkrunarkonu
Þann 12. október afhenti Erla Þorsteinsdóttir Landspítala gjöf í minningu föðursystur sinnar Katrínar Gísladóttur, skurðhjúkrunarkonu og síðar yfirhjúkrunarkonu á skurðdeild Landspítala.
Þrír doktorsnemar í hjúkrunarfræði hlutu styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur
Þrír doktorsnemar í hjúkrunarfræði hlutu nýverið styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Styrkhafarnir eru: Marianne Elisabeth Klinke, MS í hjúkrunarfræði, Rannveig J. Jónasdóttir, MS í hjúkrunarfræði og Þórunn Scheving Elíasdóttir, MS í hjúkrunarfræði. Heildarupphæð styrkjanna nemur einni milljón króna.
Fundur með hjúkrunarfræðingum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Cecilie B. Björgvinsdóttir, sviðstjóri kjara- og réttindasviðs Fíh funda með hjúkrunarfræðingum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands þriðjudaginn 16. október. Fundurinn hefst kl. 15.00 og verður í fundarsal Sjúkrahússins á Akranesi. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Námskeið í bráðahjálp barna og fullorðinna
Námskeiðin verða haldin dag eftir dag til að spara hjúkrunarfræðingum ferðakostnað
Fundur með hjúkrunarfræðingum á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Cecilie B. Björgvinsdóttir, sviðstjóri kjara- og réttindasviðs Fíh funda með hjúkrunarfræðingum á Sjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 11. október. Fundurinn hefst kl. 14.30 og verður í fundarstofu í kjallara FSA. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.
Herdís Gunnarsdóttir í stjórn EFN
Herdís Gunnarsdóttir, stjórnarmaður í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur verið kjörin í stjórn Evrópusamtaka hjúkrunarfélaga (EFN) til næstu tveggja ára. Í EFN eru 34 félagasamtök hjúkrunarfræðinga í Evrópu. EFN er ráðgefandi vettvangur hjúkrunarfræðinga gagnvart ESB.
Orlofsíbúðir lausar næstu helgi 12.-14. október nk.
Vegna forfalla eru orlofsíbúðirnar að Sæunnargötu, Borgarnesi og Klapparstíg, Reykjavík, lausar um helgina
Námskeiðið Núvitund endurtekið eftir áramótin
Námskeiðið er haldið fyrir tilstuðlan Fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga.
Sætum fer fækkandi á námskeiðið um sár og sárameðferð
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á þetta vinsæla námskeið.
Styrkur til rannsókna- og vísindastarfa
Fíh auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Rannsókna- og vísindasjóði
Styrkir til framhaldsnáms
Fíh auglýsir styrki úr minningarsjóðum
Elsa Friðfinnsdóttir tilnefnd maður vikunnar í Fréttatímanum
Verðmætin liggja í fólkinu segir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Viðtöl við formann Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á RÚV
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður í morgunútvarpi Rásar 2 og í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1
Yfirlýsing vegna ummæla framkvæmdastjóra mannauðssviðs Landspítala
Af þessu má sjá að krafa Fíh um endurskoðun og endurröðun í launaflokka skv. röðun starfa hjúkrunarfræðinga á LSH, getur einungis beinst að LSH. Það er hins vegar stjórnenda LSH að sækja til stjórnvalda það fjármagn sem þarf til þess að standa straum af launakostnaði starfsmanna LSH.
Orlofshús óskast!
Orlofshús óskast fyrir sumarið 2013
Orlofshús og íbúðir í vetur
Nokkrar lausar helgar í orlofshúsum og íbúðum til áramóta
Fundir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga með hjúkrunarfræðingum á Landspítala
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) bauð félagsmönnum sínum á Landspítala (LSH) á fundi nú í vikunni til að ræða þau málefni sem á þeim brenna þessa dagana. Fundirnir voru afar vel sóttir en nærri 350 hjúkrunarfræðingar sátu fundina.
Rannsókn um Nýráðningar og stöðugleika heilbrigðisstarfsfólks í dreifbýli. FSA fulltrúi Íslands í samstarfsverkefni sjö landa.
Rannsóknin er liður í samstarfsverkefni sjö landa; Íslands, Svíþjóðar, Skotlands, Noregs, Írlands, Kanada og Grænlands. Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) er ábyrgðaraðili og sér um framkvæmd þessarar viðhorfskönnunar sem send er til heilbrigðisstarfsfólks í öllum löndunum. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga aðstoðar við framkvæmd hennar með því að senda könnunina út til félagsmanna sinna og hvetur þá til að taka þátt í rannsókninni.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR LANDSPÍTALA
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar til fundar með hjúkrunarfræðingum á Landspítala. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og ræða það sem á þeim brennur þessa dagana.
Mér er misboðið
„Mér er misboðið“ var yfirskrift tölvupósts sem hjúkrunarfræðingur sendi Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga þegar greint var frá því í fréttum að velferðarráðherra hafi ákveðið að hækka laun forstjóra Landspítala (LSH) um 450 þúsund krónur. Ákvörðunina tók ráðherra án vitundar formanns kjararáðs sem þó á samkvæmt lögum að ákvarða laun forstjórans. Hjúkrunarfræðingum misbýður að hægt sé að hækka laun forstjórans um rúm 20% á sama tíma og skorið er gengdarlaust niður í þjónustunni við sjúklinga
Ný vefsíða um samskiptaboðorðin.
Í júní-tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga birtist grein eftir Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur um Samskiptaboðorðin sem hún bjó til og gaf út fyrr á þessu ári. Hún hefur nú opnað vefsíðu boðorðanna.
Yfirlýsing stjórnar Fíh vegna starfshóps fjármálaráðuneytisins um málefni Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR)
Í ljósi umræðu síðustu vikur um tillögur þess efnis að hækka lífeyrisaldur úr 65 árum í 67 ár og að jafna skuli réttindi þeirra sem greiða í lífeyrissjóði þannig að ríkið hætti að ábyrgjast lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, vill stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Göngudeild kransæðasjúklinga lokað fyrir eitt stöðugildi
Í byrjun sumars var göngudeild fyrir kransæðasjúklinga lokað á Landspítalanum, en með því sparaðist launakostnaður vegna rúmlega eins stöðugildis hjúkrunarfræðings.
Á Suðurlandsbraut í 25 ár
Í ár eru 25 ár síðan félagið fluttist að Suðurlandsbraut 22. Húsnæðið var formlega tekið í notkun 28. ágúst 1987. Haldið verður upp á afmælið með opnu húsi 19. nóvember nk.
Breytingar á úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóða Fíh
Nýjar úthlutunarreglur um styrki úr styrktar- og sjúkrasjóðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tóku gildi 1. júlí 2012
Fagdeild um viðbótarmeðferð í hjúkrun boðar til fræðslufundar
Fræðslufundur um viðbótarmeðferð í hjúkrun verður haldinn mánudaginn10. september 2012 kl. 17:00 í húsnæði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 3. hæð. Fyrirlesari á fundinum er Dr. Mary Jo Kreitzer.
Embætti landlæknis auglýsir styrki
Lýðheilsusjóður starfar samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu (41/2007) og reglugerð um lýðheilsusjóð (1260/2011). Hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu, bæði innan og utan embættisins, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Styrkir eru veittir til verkefna eða afmarkaðra hagnýtra rannsókna.
Styrkir til rannsóknaverkefna doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum
Stjórn Rannsóknasjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Heildarupphæð styrkja er 1 milljón króna. Umsóknarfrestur er til 29. ágúst 2012.
Golfmót hjúkrunarfræðinga
Næsta golfmót verður haldið föstudaginn 31. ágúst á Setbergsvelli.
Útilegukort-veiðikort afgreidd frá söluaðilum
Útilegukort-veiðikort afgreidd þrátt fyrir sumarlokun Fíh
Sumarlokun skrifstofu Fíh
Skrifstofa félagsins verður lokuð dagana 16. júlí til 7. ágúst.
Alþjóðlegur dagur öndunarmælinga 27. júní
Vikuna 24. júní til 1. júlí eru allir sem hafa öndunarfæraeinkenni eins og hósta, slímuppgang eða áreynslumæði hvattir til að fara í öndunarmælingu, hafi þeir ekki þegar fengið greiningu á þessum einkennum. Einstaklingar eru hvattir til þess að panta sér tíma í öndunarmælingu á næstu heilsugæslustöð.
Gjafabréf Útivistar komin
Gjafabréf Útivistar voru að koma og má nýta þau í ferðir á vegum Ferðafélagsins Útivistar sem auglýstar eru í ferðaáætlunum félagsins.
Ragnheiður Gunnarsdóttur endurkjörin varaformaður Fíh
Ragnheiður Gunnarsdóttir var kjörin varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga starfsárið 2012-2013 á fyrsta fundi nýrrar stjórnar félagsins þann 12. júní. Gunnar Helgason var kjörinn gjaldkeri stjórnar og Sigríður Kristinsdóttir ritari.
Einfaldara að sækja rétt sinn erlendis
Ný EB reglugerð nr. 883/2004 um framkvæmd almannatrygginga á EES svæðinu hefur áhrif til einföldunar fyir þá sem flytjast búferlum milli landa. Reglugerðin felur í sér breytingu á tryggingaréttindum á milli landa innan EES þar sem reglur um jafnræði tryggðra einstaklinga, samlagning tryggingatímabila og greiðslur bóta á milli landa eru styrktar.
Fundargerð aðalfundar 2012
Samkvæmt lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skal birta fundargerð aðalfundar félagsins á vefsvæði félagsins og veita fundarmönnum tveggja vikna frest til að gera athugasemdir við fundargerðina.
Ný uppfærsla á orlofsvefnum
til að auðvelda félagsmönnum aðgengi að orlofsvef Fíh hefur vefurinn fengið nýtt viðmót.
Starfsmenntunarsjóður úthlutaði 27 milljónum á árinu 2011
Starfsmenntunarsjóður hefur styrkt félagsmenn með um 27 milljónir á árinu 2011 og 11 milljónir það sem af er árinu 2012.
Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur hlýtur viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands
Öldrunarráð Íslands veitti í dag dr Ingibjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræðingi viðurkenningu fyrir einstakt framlag í þágu aldraðra. Ingibjörg hefur unnið að rannsóknum á sviði öldrunarhjúkrunar og þverfaglegum rannsóknum á sviði öldrunarfræða og auk þess tekið þátt í starfi stýrinefndar um rannsóknir á mælitækjum RAI-staðla á vegum heilbrigðisráðuneytisins (nú velferðarráðuneyti) frá árinu 1993.
Ályktun aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2012
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldinn 24. maí 2012, ályktaði um áhrif og hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðiskerfinu á Íslandi
Fréttir frá aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Fíh var haldinn 24. maí 2012. Rúmlega 100 atkvæðisbærir félagsmenn sóttu fundinn.
Aðalfundur Fíh 2012 - enginn pappír er notaður á fundinum
Aðalfundur félagsins var settur kl 09.00 undir yfirskrift gilda félagsins: Þekking - færni - umhyggja. Fundurinn er í fyrsta sinn algjörlega pappírslaus ef frá er talið boðunarbréf sem sent var öllum félagsmönnum. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh lýsti í setningaræðu sinni stöðu hjúkrunarfræðinga í öðrum evrópulöndum og sagði íslenskum hjúkrunarfræðingum skylt að fylgjast með stöðu kollega sinna erlendis. Íslenskir hjúkrunarfræðingar standa frammi fyrir erfiðum verkefnum og mestum áhyggjum veldur að afleiðingar niðurskurðar og breyting á samsetningu mannaflans kemur ekki fram fyrr en misserum eða árum eftir að breytingar voru gerðar.
Diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um diplómanám í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu næsta háskólaár er 5. júní n.k.
Ársfundur LSR og LH
Ef ríkissjóður eykur ekki inngreiðslur í Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga tæmist sjóðurinn eftir u.þ.b. 15 ár. Þetta kemur fram í ávarpi stjórnarformanns sjóðsins í árskýrslu sjóðsins.
Bókin Family Nursing in Action til sölu á skrifstofu Fíh á sérstöku tilboðsverði kr. 4000
Í nýjasta hefti tímaritsins Journal of Family Nursing, kemur fram að bókin sé sérlega áhugaverð fyrir alþjóða hjúkrunarsamfélagið og hafi mikið notagildi fyrir kennslu í grunn-og framhaldsnámi í hjúkrunarfræði. Ritstjórar bókarinnar eru Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Helga Jónsdóttir.
25 ára afmælisráðstefna heilbrigðisvísindasviðs og Háskólans á Akureyri
Heilbrigðisvísindasvið og Háskólinn á Akureyri bjóða til afmælisráðstefnu
Breytingar á úthlutunarreglum styrktar- og sjúkrasjóða Fíh
Vegna mikillar aukningar umsókna um styrki úr styrktar- og sjúkrasjóðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) samþykkti stjórn Fíh á fundi sínum 7. maí, að breyta úthlutunarreglum sjóðanna.
Málþing Fagdeildar bráðahjúkrunarfræðinga
Fagdeildin heldur málþing sitt í húsnæði Fíh þann 13. maí
Hátíðardagskrá í tilefni Alþjóðadags hjúkrunarfræðinga
HAGNÝTING RANNSÓKNA Í HJÚKRUN: Gagnreynd þekking í verki
Vika hjúkrunar 2012 á Landspítala
Áhugaverð erindi opin öllum á Viku hjúkrunar hjá Landspítala
9 miljónum króna úthlutað til rannsókna hjúkrunarfræðinga
25 rannsóknarverkefni hjúkrunarfræðinga hlutu styrk úr Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Lög um heilbrigðisstarfmenn samþykkt á Alþingi
Lög um heilbrigðisstarfmenn voru samþykkt á Alþingi í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem sett eru heildarlög um alla heilbrigðisstarfsmenn hér á landi, en löggiltar heilbrigðisstéttir eru nú 33. Við gildistöku laganna falla úr gildi sérlög um heilbrigðisstéttir þar á meðal hjúkrunarlög.
Veist þú af ráðstefnu sem ætti að vera á ráðstefnuyfirliti www.hjukrun.is en er þar ekki?
Vefumsjón Fíh leitar eftir upplýsingum um ráðstefnur um hjúkrun og hjúkrunartengd málefni til að setja í ráðstefnuyfirlit www.hjukrun.is
Ætlar þú á ráðstefnu ICN í Ástralíu á næsta ári?
The International Council of Nursing (ICN) hefur opnað fyrir rafræna skráningu á útdráttum fyrir 25. Ráðstefnu ICN í Melbourne, Ástralíu
Umsóknarfrestur í starfsmenntunarsjóði er til 30. apríl
Sjóðurinn úthlutar nú í síðasti sinn styrkjum að upphæð 100.000 kr. Skilyrðin eru nokkuð þröng en hjúkrunarfræðingar sem uppfylla þau ekki geta eftir sem áður sótt um 45.000 kr. árlega.
Jóns Karlssonar, hjúkrunarfræðings og sendifulltrúa minnst
Jón Karlsson, hjúkrunarfræðingur var einn af reyndustu sendifulltrúum Rauða krossins þegar hann var veginn við hjúkrunarstörf fyrir utan Kabúl í Afganistan árið 1992. Í tilefni af því að 20 ár eru liðin síðan Jón i var veginn var haldin minningarathöfn um Jón í Kjarnaskógi við Akureyri í gær.
Fagdeild um upplýsingatækni
Ný fagdeild var stofnuð 30. mars sl. á vel sóttum fundi í Eirbergi. Á sama tíma var haldið málþing um upplýsingatækni.
Acendio heldur vinnusmiðju á Íslandi
Dagana 5. og 6. júní n.k. munu ACENDIO samtökin (Association for Common European Nursing Diagnosis, Interventions and Outcomes) í samstarfi við nýstofnaða fagdeild um upplýsingatækni í hjúkrun innan Fíh og Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands halda vinnusmiðju á Íslandi um staðlað fagmál í hjúkrun.
Styrkir til rannsókna vegna eyrnasuðs (tinnitus)
Liljusjóðurinn Rannsóknar- og styrktarsjóður Lilju Guðrúnar Hannesdóttur auglýsir til umsóknar styrki til rannsóknar vegna eyrnasuðs (tinnitus).
Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 2012
Öldrunarráð óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands
Formaður á vaktinni: Starfsumhverfiskönnun á Landspítala
Fyrstu niðurstöður starfsumhverfiskönnunar sem gerð var á Landspítalanum (LSH) fyrri hluta marsmánaðar hafa nú verið birtar. Stjórnendur LSH eiga heiður skilinn fyrir að gera slíkar kannanir reglulega og ekki síður að bregðast við niðurstöðunum.
Framboð í stjórn og nefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn 24. maí nk. Þar verður kosið í stjórn og nefndir samkvæmt lögum félagsins. Kjörnefnd auglýsir eftir eftirfarandi framboðum: Þremur fulltrúum í ritnefnd. Sjö fulltrúum fagdeilda í stjórn. Þremur fulltrúum í stjórn ( sem hvorki eru fulltrúar fagdeilda né svæðisdeilda).
24 álitsgjafar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fleiri álitsgjafar boðnir velkomnir í hópinn. Hópur hjúkrunarfræðinga hefur gefið kost á sér til álitsgjafar fyrir hönd Fíh. Álitsgjafarnir hafa sérþekkingu á ýmsum sviðum hjúkrunar, eru sérfræðingar í hjúkrun eða með meistara eða doktorspróf. Fíh getur leitað til þeirra eftir áliti
Sigríður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala
Sigríður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala. Sigríður lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1997, meistaraprófi í skurð- og lyflæknishjúkrun með áherslu á krabbameinshjúkrun frá University of Wisconsin í Madison árið 2000 og doktorsprófi í krabbameinshjúkrun frá sama skóla árið 2004. Hún var lektor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands 2005-2009 og dósent frá 2009 jafnframt því að gegna starfi forstöðumanns fræðasviðs í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands og Landspítala frá árinu 2005. Sigríður tekur við af Önnu Stefánsdóttur sem lét af störfum framkvæmdastjóra hjúkrunar 1. mars.
Öldrunarhjúkrun rædd á fjölmennum fundi
Að fundinum stóðu fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Embætti landlæknis
Símatími sviðstjóra kjara- og réttindamála
Vegna fjölda mála í vinnslu verður símatími sviðstjóra kjara- og réttindamála, Cecilie B. H. Björgvinsdóttur/Cissý með eftirfarandi hætti: Mánudaga til fimmtudaga 10-14 og föstudaga 10-12
Formaður á vaktinni: Læknar sem leggjast lágt
Síðustu daga hefur mikil umræða farið fram í fjölmiðlum um frumvarp velferðarráðherra um heimild til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Ummæli skólahjúkrunarfræðings um að þess væru dæmi að allt að 11 ára stúlkubörn væru farin að lifa kynlífi voru gripin á lofti og gerð að aðalatriði umræðunnar. Einstaka læknar hafa með markvissum hætti reynt að grafa undan trúverðugleika skólahjúkrunarfræðinga
Fjarfundur á Hótel Grand
Eftirtaldir verða tengdir við hótel Grand v/fundar Fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga
Málstofa og stofnfundur fagdeildar um upplýsingatækni í hjúkrun innan Fíh
Í tengslum við stofnfundinn, sem haldinn verður föstudaginn, 30. mars kl. 12-14 í stofu 103, 1. hæð í Eirbergi, verður haldin málstofa sem ber heitið: Rafræn heilbrigðisþjónusta (eHealth). Er það eitthvað fyrir hjúkrun?
Glæsilegt málþing um sérfræðiþekkingu í hjúkrun
Í tilefni starfsloka sinna bauð Anna Stefánsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala til málþings undir yfirskriftinni Sérfræðiþekking í hjúkrun – hvert stefnir?
Hjúkrunarfræðingur með mynd í heimspressunni
Norðurljósamynd tekin á Fáskrúðsfirði hefur birst í mörgum af helstu vefmiðlum heims. Myndasmiður er Jónína Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Fjarðabyggð.
Ráðin forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins
Sigrún Lillie Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins frá 1. mars. Að loknu stúdentsprófi og háskólanámi í hjúkrunarfræði árið 1987 vann Sigrún á Borgarspítalanum, hún vann síðan í fimm ár í Sönderborg í Danmörku en hefur frá 1993 starfað við heimahlynningu krabbameinssjúkra
Punktastýrð úthlutun sumarið 2012
Punktastýrð úthlutun sumarhúsa hófst mánudaginn 12. mars kl. 9:00 um morguninn
Orlofsíbúð á Akureyri 4. til 6. apríl nk.
Orlofsíbúðin á Kjarnagötu, Akureyri
Námskeiðið sár og sárameðferð á Akureyri 4.og 5. maí
Ljóst er að námskeiðið verður haldið á Akureyri þar sem þátttaka er mikil.
Oddný Sigurborg Gunnarsdóttir varði doktorsritgerð sína
Ritgerðin byggir á fimm birtum greinum og helstu niðurstöður að árleg aukning í komu sjúklinga á bráðamóttökuna var umfram mannfjöldaaukningu á Stór- Reykjavíkursvæðinu á tímabilinu. Einkenna sjúkdómsgreining var algengasta greiningin á þeim tíma sem var til skoðunar í rannsókninni.
Danmörk - Alþjóðlegur hópur sérfræðinga: " hámark 2 næturvaktir í röð"
Hópur 12 alþjóðlegra sérfræðinga sem settur var á fót af félagi hjúkrunarfræðinga í Danmörku (DSR), danska krabbameinsfélaginu (Kræftens bekæmpelse) og dönsku stjórnsýslusvæðunum (danske regioner) til að koma með tillögur um hvernig best er að fyrirbyggja brjóstakrabbamein af völdum næturvinnu hefur nú komið með sínar fyrstu tillögur. Hópurinn mælir m.a. með því að starfsfólk vinni ekki fleiri en 1-2 næturvaktir í einu.
Tímarit hjúkrunarfræðinga komið út
Nýtt tölublað Tímarits hjúkrunarfræðinga er komið á vefinn. Það verður borið í hús á næstu dögum.
Lokadagur umsókna í B-hluta Vísindasjóðs er 15. mars 2012
Umsókn og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 15. mars 2012.
Styrkur A-hluta vísindasjóðs
Styrkir úr A-hluta vísindasjóðs hafa verið greiddir út til hjúkrunarfræðinga, en að þessu sinni fengu hátt í 2800 félagsmenn yfir 125 milljónir króna samtals í styrki. Styrkirnir voru lagðir inn á bankareikninga sem hjúkrunarfræðingar gáfu sjálfir upp.
Gunnur nýr framkvæmdastjóri Vistor
Gunnur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vistor hf. Hún var áður markaðsstjóri og hefur einnig viðtæka starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur.
Evrópudagur skurðhjúkrunar
15. febrúar er Evrópudagur skurðhjúkrunar. Þema dagsins núna er "Promoting a positive environment", sem má útleggjast sem "Stuðlað að jákvæðu umhverfi". Stjórn fagdeildarinnar hvetur skurðhjúkrunarfræðinga til að halda daginn hátíðlegan á vinnustöðum sínum og halda þema dagsins á lofti
Fundur um tap lífeyrissjóðanna
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðar til fundar um niðurstöður skýrslunnar um fjárfestingar lífeyrissjóða. Fundurinn verður þriðjudaginn 21. febrúar kl. 15:00 á Grand hóteli í Reykjavík.
Gjafabréf flugfélaganna komin
Gjafabréf Icelandair og Iceland Express eru komin á vefinn.
Námskeiðið um sár og sárameðferð á Akureyri
Hið geysivinsæla námskeið um sár og sárameðferð verður haldið á Akureyri dagana 4. og 5. maí n.k. ef næg þátttaka fæst. Hjúkrunarfræðingum, sem eru á biðlista á námskeiðið í Reykjavík í febrúar, er bent á námskeiðið á Akureyri.
Varði doktorsverkefni um gæði umönnunar, þróun heilsufars, færni og lifun á hjúkrunarheimilum
"Gæði umönnunar, þróun á heilsufari, færni og lifun á íslenskum hjúkrunarheimilum á árunum 1996-2009" er yfirskrift doktorsverkefnis sem Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur á lyflækningasviði Landspítala, varði við heilbrigðisvísindadeild læknadeildar Háskólans í Lundi föstudaginn 27. janúar 2012.
Námskeið - Öryggi í öndvegi
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Sparnað ehf. býður öllum félagsmönnum sínum á námskeið með Ingólfi H. Ingólfssyni. Á námskeiðinu mun Ingólfur H. kynna ákveðna hugmyndafræði í fjármálum sem hann hefur verið að boða á undanförnum árum.
Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga leggur áherslu á heilsueflandi aðgerðir
Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga hefur samþykkt að leggja áherslu á heilsueflandi aðgerðir til að hafa jákvæð áhrif á þróun samfélagsheilsu.
Viðhorfskönnun framundan meðal félagsmanna
Frá því í haust hefur verið unnið að skipulagningu verkefnis sem miðar að því að gera þennan hluta af starfsemi félagsins jafnvel enn sterkari enn áður. Til að vinnan við verkefnið verði eins mikið í þágu hjúkrunarfræðinga og nokkur kostur er teljum við nauðsynlegt að kanna hug félagsmanna sjálfra til málefna sem varða kjör og aðra mikilvæga hagsmuni.
Námskeiðið um sár og sárameðferð fullbókað
Í ráði er að bjóða upp á námskeiðið á Akureyri í maí ef næg þátttaka fæst.
Bjarni Ingvarsson ráðinn umsjónarmaður orlofssjóðs
Bjarni Ingvarsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður eigna orlofssjóðs félagsins í 30% starfi. Talsverður áhugi var á starfinu en 70 sóttu um. Hlutverk umsjónarmanns er að sjá um eftirlit og viðhald á eignum sjóðsins.
Greiðslur félagsmanna til vinnudeilusjóðs Fíh
Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. maí 2011 var samþykkt tillaga stjórnar vinnudeilusjóðs um að hefja að nýju innheimtu í sjóðinn. Samþykkt var að félagsmenn greiði 0,15% af dagvinnulaunum sínum í vinnudeilusjóð, til að styrkja félagsmenn í kjarabaráttu ef til verkfallsaðgerða kæmi.
Námskeiðinu um réttindi sjúklinga frestað til 2. mars 2012.
Námskeiðinu um réttindi sjúklinga sem vera átti föstudaginn 20. janúar hefur verið frestað. Það verður haldið föstudaginn 2. mars kl. 9:00-15:00 að Suðurlandsbraut 22. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Margrét Tómasdóttir hjúkrunarfræðingur MSN, ML.
Hyggst þú sækja um styrk í B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga?
Stjórn Vísindasjóðs Fíh heldur fræðslufundi á Akureyri og í Reykjavík fyrir hjúkrunarfræðinga sem hyggjast sækja um styrk í sjóðinn og leiðbeinendur þeirra. Umsóknarfrestur í B-hluta Vísindasjóð er til 15. mars 2012.
Vilt þú verða álitsgjafi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga?
Fagsvið Fíh auglýsir eftir sérfræðingum í hjúkrun sem vilja gefa kost á sér til álitsgjafa fyrir hönd félagsins.
Samskiptanámskeið á Akureyri fellt niður
Hætt hefur verið við að halda samskiptanámskeiðið Traust-hugrekki-nærvera-ábyrgð á Akureyri í janúar vegna ónógrar þátttöku.
Hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni vakt
Skrefamælir sýndi að hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni erilsamri vakt í haust. Mælingin verður endurtekin en hjúkrunarfræðingar vita að þeir þurfa að ganga mikið, enda deildin stór og starfið erilsamt
Fjölbreytt námskeið á vorönn
Hjúkrunarfræðingar í samvinnu við Fíh bjóða upp á fjölbreytt námskeið á vorönn. Um er að ræða bæði ný og endurtekin námskeið frá haustönn. Skráning er hafin á námskeiðin. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna undir Fagsvið → Námskeiðaskrá
