Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar//
Minningarsjóður HANS ADOLFS HJARTARSONAR, framkvæmdastjóra, var stofnaður í mars 1951 af ættingjum hans og bekkjarsystkinum, en Hans lést í janúar 1951. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja hjúkrunarfræðinga til frekara náms og eins til ferðalaga í sambandi við félagsmál. Var það samkvæmt ósk hins látna og þess jafnframt getið að hann hefði borið þakklæti í huga fyrir góða hjúkrun á Landspítalanum.
Skrifstofa félagsins tekur á móti gjöfum og annast sendingu minningarkorta. Nánari upplýsingar í síma 540 6400
Texti inn í minningarkortinu er:
Minningarsjóði Hans A. Hjartarsonar, námssjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur verið færð minningargjöf.
Með innilegri samúð
