Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar framkvæmdastjóra, var stofnaður í mars 1951 af ættingjum hans og bekkjarsystkinum, en Hans Adolf lést í janúar 1951. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi. Var það samkvæmt ósk hins látna og þess jafnframt getið að hann hefði borið þakklæti í huga fyrir góða hjúkrun á Landspítalanum.

Nafn og heimili
Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar og starfar hann með því skipulagi og markmiðum sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

Tilgangur sjóðsins
Tilgangur sjóðsins er að styrkja félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) til frekara náms og eins til ferðalaga í sambandi við félagsmál.

Aðild
Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Stjórn sjóðsins og hlutverk hennar
Stjórn sjóðsins er skipuð þremur fulltrúum. Í stjórn sitja formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og félagi í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem kosinn er á aðalfundi Fíh. Stjórn sjóðsins hefur á hendi alla framkvæmd styrkveitinga og reikningshald sjóðsins. Hún skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Fjármálastjóri Fíh hefur umsjón með fjársýslu sjóðsins og eru reikningar hans endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum og yfirfarnir af skoðunarmönnum Fíh sem kjörnir eru á aðalfundi félagsins.

Tekjur sjóðsins
Í skipulagsskrá sjóðsins kemur fram að stofnfé sjóðsins sé kr. 11.000.- og skal hann ávaxtaður þar til hann verður kr. 200.000.- en þá má verja öllum vöxtum hans til styrkveitinga ef með þarf. Sjóðurinn veitir móttöku gjöfum frá félagsmönnum og öðrum sem vilja styrkja sjóðinn. Tekjur sjóðsins eru vextir af höfuðstól og sala minningarkorta.

Úthlutunarreglur
Hjúkrunarfræðingar, sem eru félagsmenn í Fíh, geta sótt um styrk til sjóðsins til framhaldsnáms sem og til ferðalaga í sambandi við félagsmál. Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn með þeim upplýsingum sem stjórn sjóðsins telur nauðsynlegar. Á grundvelli þeirra tekur sjóðsstjórn ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi umsækjandi fær.
Styrkjum er úthlutað annað hvert ár og er umsóknafrestur til 1. október það ár.

Umsóknir
Umsókn og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði , á netfangið hansadolf@hjukrun.is  fyrir miðnætti þann 1. október úthlutunarár.  Umsækjendum er bent á að vönduð umsókn eykur líkur á styrkveitingu. Staðfesting á skólavist eða fyrirhuguðu ferðalagi er nauðsynlegt að senda með umsókninni. Öllum umsækjendum er svarað skriflega.


Afhending styrkja
Styrkþega er tilkynnt um styrkveitinguna skriflega og er styrkupphæðin lögð inn á reikning hans. Styrkþega er skylt að senda framvinduskýrslu til stjórnar sjóðsins ári eftir afhendingu styrksins.

Endurgreiðsla
Verði ekkert úr ferðalaginu eða breytingar á fyrirhuguðu framhaldsnámi og þar með forsendum styrkveitingarinnar, skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður. 



Stjórn Minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Guðrún Kristjánsdóttir deildarforseti hjúkrunarfræðideildar H.Í.
Sigurveig Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, félagsmaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga


Júlí 2009/AJF