Kristín Ólína Thoroddsen, f. 29. apríl 1894, d. 28. febrúar 1961, var forstöðukona Landspítalans og Hjúkrunarkvennaskóla Íslands frá stofnun hans árið 1949. Fyrrum nemendur skólans og aðrir hjúkrunarfræðingar gengust fyrir stofnun þessa minningarsjóðs við andlát Kristínar í þakklætis og virðingarskyni fyrir brautryðjendastörf hennar. Tilgangur sjóðsins er að veita verðlaun hjúkrunarfræðingum sem skarað hafa fram úr í námi og sýnt sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa. Sjóðurinn veitir einnig styrki til framhaldsnáms í hjúkrun.
Skrifstofa félagsins tekur á móti gjöfum og annast sendingu minningarkorta. Nánari upplýsingar í síma 540 6400
Texti inn í minningarkortinu er: Minningarsjóði Kristínar Thoroddsen, náms og viðurkenningarsjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur verið færð minningargjöf. Með innilegri samúð
