Kristín Ólína Thoroddsen, f. 29. apríl 1894, d. 28. febrúar 1961, var forstöðukona Landspítalans og Hjúkrunarkvennaskóla Íslands frá stofnun hans 1931 til ársins 1949. Fyrrum nemendur skólans og aðrir hjúkrunarfræðingar gengust fyrir stofnun þessa minningarsjóðs við andlát Kristínar í þakklætis og virðingarskyni fyrir brautryðjendastörf hennar.

Nafn og heimili
Minningarsjóður Kristínar Thoroddsen og starfar hann með því skipulagi og markmiðum sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

Tilgangur sjóðsins
Tilgangur sjóðsins skv. skipulagsskrá hans, er að veita þeim hjúkrunarfræðingum viðurkenningu sem skarað hafa fram úr í hjúkrunarnámi og sýnt sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa.
Heimilt er að veita hjúkrunarfræðingum styrk til framhaldsnáms úr sjóðnum. 


Aðild
Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Stjórn sjóðsins og hlutverk hennar
Stjórn sjóðsins er skipuð fjórum fulltrúum. Í stjórn sitja formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem er formaður sjóðsstjórnar, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar H.Í., framkvæmdastjóri hjúkrunar LSH og einn aðili frá Öldungadeild Fíh. Stjórnin ákveður styrkhafa. Stjórn sjóðsins skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar, reikninga sjóðsins og annað er varðar hag sjóðsins og starf. Fjármálastjóri Fíh hefur umsjón með fjársýslu sjóðsins og eru reikningar hans endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum og yfirfarnir af skoðunarmönnum Fíh sem kjörnir eru á aðalfundi félagsins.

Tekjur sjóðsins
Höfuðstóll sjóðsins var kr. 25.000.- við stofnun og hann má ekki skerða. Sjóðinn skal efla með minningargjöfum, minningarkortum og öðrum ráðum er sjóðstjórn telur heppileg. Tekjur sjóðsins eru vextir af höfuðstól og sala minningarkorta.

Úthlutunarreglur
Hjúkrunarfræðingar geta sótt um styrk til sjóðsins til framhaldsnáms. Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn með þeim upplýsingum sem stjórn sjóðsins telur nauðsynlegar. Á grundvelli þeirra tekur sjóðsstjórn ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi umsækjandi fær.
Styrkjum er úthlutað annað hvert ár og er umsóknafrestur til 1. október það ár.

Umsóknir
Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á þar til gerðu eyðublaði , á netfangið kristinthoroddsen@hjukrun.is  fyrir miðnætti þann 1. október á úthlutunarári.  Staðfestingu á skólavist er nauðsynlegt að senda með umsókninni. Umsækjendum er bent á að vönduð umsókn eykur líkur á styrkveitingu. Öllum umsækjendum er svarað skriflega.

Afhending styrkja
Styrkþega er tilkynnt um styrkveitinguna skriflega og er styrkupphæðin lögð inn á reikning hans. Styrkþega er skylt að senda framvinduskýrslu til stjórnar sjóðsins ári eftir afhendingu styrksins.

Endurgreiðsla
Verði breytingar á fyrirhuguðu framhaldsnámi og þar með forsendum styrkveitingarinnar, skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður.


Stjórn Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen
Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Guðrún Kristjánsdóttir deildarforseti hjúkrunarfræðideildar H.Í.
Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar LSH
Bergljót Líndal formaður Öldungadeildar Fíh


Júlí 2009/AJF