Námskeiðaskrá//

28. feb 2012 //

Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum – orsök, viðbrögð og afleiðingar

Farið verður yfir hvers vegna fólk sem leitar til heilbrigðisþjónustunnar sýnir ofbeldi eða árásargjarna hegðun, hvernig hægt er að bregðast við og hugsanlega koma í veg fyrir slíka hegðun og hvaða afleiðingar hún getur haft á starfsfólk. Á námskeiðinu verður fyrirlestur, umræður og sýnikennsla á einföldum aðferðum til að róa reiða og spennta einstaklinga.

02. mar 2012 //

Réttindi sjúklinga

Í námskeiðinu er farið yfir réttindi sjúklinga og ábyrgð þeirra á eigin heilsu út frá lögum og reglugerðum. Farið er yfir hvernig réttindamál sjúklinga standa í dag í íslenskri heilbrigðisþjónustu.

06. mar 2012 //

Trúnaðarmannanámskeið

Námskeið sérstaklega ætlað fyrir nýja og óreynda trúnaðarmenn

23. apr 2012 //

Við starfslok

Markmið með námskeiðinu er að auka þekkingu þeirra hjúkrunarfræðinga sem eru að nálgast starfslok eða nýlega hættir störfum á réttindum og möguleikum sínum við starfslok og efla þá til að takast á við þær breytingar sem þeim fylgja.

04. maí 2012 //

Námskeið um sár og sárameðferð haldið á Akureyri

Námskeið í samvinnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Guðbjargar Pálsdóttur hjúkrunarfræðings MS Langvinn sár eru stórt heilbrigðisvandamál, einkum meðal aldraðra. Það að vera með langvinnt sár hefur umtalsverð áhrif á daglegt líf einstaklinga og þau eru kostnaðarsöm fyrir samfélagið. Við meðferð sára er mikilvægt að kunna skil á eiginleikum þeirra fjölda umbúða, skolvökva og annarra hjálpartækja sem völ er á. Grundvallaratriðið er þó að greina undirliggjandi orsök sáranna og meðhöndla hana.

04. maí 2012 //

Samskipti Traust- hugrekki- nærvera -ábyrgð

Tveggja daga námskeið þar sem áhersla er lögð á þau grundvallaratriði sem gerast í hugarheimi okkar þegar við eigum í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Útkoman verður betri samskipti þar sem traust og nærvera er undirstaða samskiptanna.



Hér fyrir neðan eru ýmis námskeið sem henta hjúkrunarfræðingum.  Námskeiðin eru kynnt af þeim sem halda þau og eru ekki á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga nema það sé tekið sérstaklega fram.

Heilinn. Uppbygging, starfsemi, sjúkdómar og greining

Endurmenntun HÍ - Námskeiðið er í samvinnu við Félag lífeindafræðinga. Námskeiðið er ætlað fagfólki á heilbrigðissviði.
Skráningarfrestur til 29. feb. 2012 Lesa meira...

Verkjasvið Reykjalundar - Námsstefna um verkjameðferð - Meðferð - Árangur

Námsstefnan er ætluð læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum og öðru fagfólki sem í starfi sínu hjálpar einstaklingum með þráláta verki.
Skráningarfrestur til 04. mar. 2012 Lesa meira...

Vakandi athygli (gjörhygli) og innsæ íhugun

Endurmenntun HÍ - Námskeiðið er öllum opið en einkum ætlað sálfræðingum og öðrum fagaðilum sem fást við meðferð og ráðgjöf. Á síðustu árum hafa sjónir sálfræðinga beinst í æ ríkari mæli að því hvað meðferðarsambandið á stóran þátt í árangri meðferðar.
Skráningarfrestur til 06. mar. 2012 Lesa meira...

Ráðning og starfslok starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum

Forsætisráðuneytið, Reykjavíkurborg, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða upp á námskeið ætluð stjórnendum og starfsfólki hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga
Skráningarfrestur til 06. mar. 2012 Lesa meira...

Upplýsingaréttur almennings; Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr. 50/1996

Forsætisráðuneytið, Reykjavíkurborg, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða upp á námskeið ætluð stjórnendum og starfsfólki hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga
Skráningarfrestur til 07. mar. 2012 Lesa meira...

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Endurmenntun HÍ - Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, kennurum, þroskaþjálfum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.
Skráningarfrestur til 14. mar. 2012 Lesa meira...

Chronic pain, chronic illness

Endurmenntun HÍ - Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).
Skráningarfrestur til 22. mar. 2012 Lesa meira...

HypnoBirthing® Teaching women and their birth companions the way to a more comfortable birthing

Endurmenntun HÍ - Í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands
Skráningarfrestur til 27. mar. 2012 Lesa meira...

Næring og vökvajafnvægi

Endurmenntun HÍ - Rannsóknir síðustu ára hafa greint frá hárri tíðni vannæringar meðal sjúklinga á sjúkrahúsum og á hjúkrunarheimilum. Vannæring og þ.m.t vökvaskortur veldur hægari bata, minnkaðri sjálfsbjargargetu, auknum streituviðbrögðum, aukinni tíðni á legusárum og eykur hættu á sýkingum.
Skráningarfrestur til 10. apr. 2012 Lesa meira...

Health anxiety

Endurmenntun HÍ - Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).
Skráningarfrestur til 09. maí 2012 Lesa meira...