Orlofssjóður//

  

Til að komast inn á vef orlofssjóðsins er valin sjálfsafgreiðsla. Þar þurfa hjúkrunarfræðingar að slá inn eigin kennitölu og netfang. Vefurinn er lokaður öðrum en sjóðsfélögum. Sjóðsfélagar eru hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá vinnuveitendum og sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðingar sem greiða í orlofssjóðinn. Hver sjóðsfélagi ávinnur sér 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð á ári. Eftirlaunaþegar njóta sömu réttinda og starfandi hjúkrunarfræðingar þegar þeir hafa greitt ævigjald kr. 20.000.- svo framarlega sem þeir eigi punkta. 

Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að skoða punktastöðu sína á orlofsvefnum. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins á netfangið hjukrun@hjukrun.is ef þið hafið athugasemdir við orlofspunktaeign ykkar.  Ekki er hægt að nota orlofsvefinn ef  félagsmaður er komin í mínus punktastöðu.

 

Stjórn

Ólöf Sigurðardóttir
Formaður

Birna Jónsdóttir

Guðrún Ágústsdóttir

K. Hjördís Leósdóttir

Ingibjörg Rósa Friðbjörnsdóttir

Guðrún Andrea Guðmundsdóttir
Starfsmaður sjóðsins






Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til sjóðsins