Gjafabréf hjá Icelandair og Iceland Express
Á fundi stjórnar orlofssjóðs Fíh 8. desember 2010, var samþykkt að hafa ákveðið magn gjafabréfa í flug hjá Icelandair og Iceland Express til sölu á orlofsvefnum. Að hámarki er hægt að kaupa 2 gjafabréf á ári á meðan birgðir endast. Gjafabréfin gilda í tvö ár frá útgáfudegi, en ekki er hægt að fá þau endurgreidd. Verð fyrir gjafabréf er 21.000 kr. hjá Icelandair og 18.000 kr. hjá Iceland Express og gildir það sem 30.000 kr. greiðsla upp í fargjald til allra áfangastaða flugfélaganna. Ef bókuð er ferð sem kostar minna en 30.000 kr. verður mismunurinn eftir á gjafakortsnúmerinu og hægt er að nýta hann síðar. Ef bókuð er ferð sem kostar meira en 30.000 kr. nýtist gjafabréfið sem greiðsla upp í verð þeirrar ferðar. Afganginn geta félagsmenn greitt með kreditkortinu sínu.
Til þess að kaupa gjafabréf þarf að fara inn á orlofsvefinn og velja þar „Afsláttarávísanir“. Við kaup á gjafabréfum dragast frá 7 punktar fyrir hvert bréf. Orlofssjóður niðurgreiðir þessi gjafabréf.
Gjafabréf í ferðir hjá Útivist og Ferðafélagi Íslands.
Á fundi stjórnar orlofssjóðs Fíh 8. desember 2010, var samþykkt að hafa til sölu gjafabréf í ferðir að eigin vali að verðmæti 20.000 kr. í ferðir frá Útivist og Ferðafélagi Íslands, tvö á mann frá hvoru félagi. Verð til félagsmanna á gjafabréfi frá Útivist kosta 12.000 kr. og frá Ferðafélagi Íslands kosta 11.000 kr. 7 punktar eru dregnir af við þessi kaup. Gjafabréfin eru seld á Orlofsvefnum undir liðnum „Afsláttarávísanir“. Eftir að greitt hefur verið fyrir gjafakortið mun skrifstofa Fíh senda kortið í pósti til viðkomandi félagsmanns. Einnig er hægt að nálgast þessi gjafabréf á skrifstofu félagsins. Athuga þarf að skrifstofan er lokuð 16. júlí - 7. ágúst. Orlofssjóður niðurgreiðir þessi gjafabréf.
Hvalfjarðargöng:
Á fundi stjórnar orlofssjóðs Fíh 8. desember 2010, var samþykkt að hafa til sölu miða í verðflokki 1 (fólksbílar) í Hvalfjarðargöngin. 10 miða kort kostar 3.000 kr. og er til sölu á orlofsvef félagsins undir liðnum „Afsláttarávísanir“ . Einungis er hægt að kaupa tvö 10 miða kort á hverja kennitölu félagsmanns svo lengi sem birgðir endast. Eftir að greitt hefur verið fyrir miðana mun skrifstofa Fíh senda miðana í pósti til viðkomandi félagsmanns. Einnig er hægt að nálgast þá á skrifstofu félagsins. Einn punktur er dregin af við þessi kaup í Hvalfjarðargöngin. Orlofssjóður niðurgreiðir þessi gjafabréf.
Til sölu á orlofsvefnum undir liðnum „Afsláttarávísanir“ sem orlofssjóður Fíh niðurgreiðir fyrir félagsmenn sína.
· Gjafabréf í flug hjá Icelandair ·Gjafabréf í flug hjá Iceland Express
