Fyrirkomulag á úthlutun

Aðeins er hægt að sækja um á Orlofsvefnum undir liðnum Orlofssjóður - sjálfsafgreiðsla.

Uppfærsla punkta: Við stofnun orlofssjóðsins árið 1994 tók gildi punktakerfi sem úthlutað er eftir. Hver sjóðsfélagi ávinnur sér 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð, skv. skilagreinum frá vinnuveitanda fyrir árið á undan. Orlofskerfið vinnur þannig, að uppfærsla á orlofspunktum fer fram í lok febrúar ár hvert, ef skilagreinar hafa ekki borist frá vinnuveitendum fyrir allt árið á undan, þá koma þeir punktar sem á vantar í uppfærslunni í febrúar ári síðar. Punktar eru ekki notaðir sem greiðsla fyrir leigu heldur stýra því hverjir eru í forgangi í úthlutuninni. Þeir sem eiga flesta punkta ganga fyrir.

Punktastýrð úthlutun á vikuleigu sumarið 2012

Reglur um úthlutun - Punktastýrð úthlutun er framkvæmd á eftirfarandi hátt:

Orlofsvefurinn hefur verið stilltur þannig að einungis þeir sem eiga tilskilinn fjölda orlofspunkta komast inn á orlofstímabilið fyrir vikuleigu (júní – júlí og ágúst) til að bóka á neðangreindum dögum: Orlofsvefurinn verður opnaður kl. 9:00 að morgni 12. mars 2012.

12. til 18. mars geta þeir sem eiga 112-240 punkta bókað og greitt fyrir viku
19. til 25. mars geta þeir sem eiga 82-240 punkta bókað og greitt fyrir viku
26. mars til 1. apríl geta þeir sem eiga 2-240 punkta pantað og greitt fyrir viku
2. til 8. apríl geta eftirlaunaþegar bókað og greitt fyrir viku
9. apríl geta allir bókað óháð punktastöðu og greitt fyrir viku

Punktafrádráttur:

Við hverja úthlutun eru dregnir frá punktar.

Tímabilið 25. maí til 8. júní eru teknir 20 punktar í frádrátt
Tímabilið 8. júní til 3. ágúst eru teknir 30 punktar í frádrátt
Tímabilið  3.-31. ágúst eru teknir 20 punktar í frádrátt

Úthlutað er samkvæmt punktaeign sjóðsfélaga.