Reglur Orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
1. gr. Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Hlutverk
Sjóðnum er ætlað að auðvelda sjóðsfélögum að njóta orlofs. Sjóðurinn rekur orlofshúsnæði félagsins og hefur einnig það hlutverk að semja um aðra orlofsmöguleika fyrir sjóðsfélaga.
3. gr. Réttur til aðildar að sjóðnum
Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá vinnuveitendum sem gert hafa samning við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga um framlag í Orlofssjóð Fíh, hér eftir nefndir sjóðsfélagar. Eftirlaunaþegar innan Fíh eru sjóðsfélagar.
4. gr. Stjórn
Stjórn sjóðsins skipa fimm félagsmenn kjörnir á aðalfundi úr hópi þeirra félagsmanna sem rétt eiga, samkvæmt reglum Orlofssjóðs, til úthlutunar úr sjóðnum. Stjórn Orlofssjóðs skal kjörin til tveggja ára í senn. Í stjórn skulu vera formaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur og skal stjórn skipta með sér verkum. Stjórn haldi gerðabók.
5. gr. Tekjur
Stofnfé sjóðsins er Orlofssjóður Hjúkrunarfélags Íslands. Tekjur Orlofssjóðs eru samningsbundin orlofssjóðsgjöld sjóðsfélaga, vextir og aðrar tekjur af eignum sjóðsins svo og gjafir.
6. gr. Skyldur sjóðsstjórnar
Stjórn Orlofssjóðs kemur saman eins oft og þurfa þykir. Hún ber ábyrgð á reglum varðandi úthlutanir úr sjóðnum. Allar breytingar þar á skal bera undir stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til staðfestingar.
Stjórn Orlofssjóðs skal kynna með góðum fyrirvara þá þjónustu sem stendur félagsmönnum til boða á hverjum tíma svo og umsóknarfresti.
Stjórn Orlofssjóðs sér um að eignum sjóðsins sé vel við haldið og er vakandi yfir nýjum möguleikum varðandi orlof félagsmanna.
Fyrir aðalfund Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skal stjórn Orlofssjóðs leggja fram skýrslu um starfsemi og reikninga sjóðsins. Fjármálastjóri félagsins gerir grein fyrir reikningum og fjárhagsáætlun sjóðsins á aðalfundi Fíh.
7. gr. Réttur sjóðfélaga
Sjóðsfélagar hafa rétt til að nýta sér þjónustu sjóðsins samkvæmt reglum hans á hverjum tíma. Eftirlaunaþegar njóta sömu réttinda og aðrir þeir sem eiga aðild að sjóðnum. Upplýsingar um þjónustu sjóðsins skulu ávallt vera vel uppfærðar á vefsvæði Fíh.
8. gr. Úthlutun
Úthlutunarreglur eru að jafnaði byggðar á punktaeign sjóðsfélaga. Sumarúthlutanir á sumarbústöðum taka mið af fjölda punkta sem sjóðsfélagar eiga. Aðrir orlofsmöguleikar tilheyra ekki hefðbundinni sumarúthlutun.
Sumarorlofstímabilið er frá mánaðarmótum maí/júní til mánaðarmóta ágúst/september.
Allar pantanir og úthlutanir fara fram á rafrænu formi og í gegnum forrit sem raðar umsóknum eftir punktaeign sjóðsfélaga. Fyrir sumarorlofstímabil skulu niðurstöður um úthlutun liggja fyrir eigi síðar en 15. apríl.
Félagsmönnum í Fíh, sem ekki eru sjóðsfélagar í Orlofssjóði en eiga inni punkta, er heimilt að notað þá utan sumarorlofstíma.
9. gr. Rekstur
Stjórn Orlofssjóðs fer með rekstur sjóðsins í umboði stjórnar. Allar mikilvægar ákvarðanir varðandi rekstur, fjárfestingar, skuldbindingar, kaup eða sölu eigna skal bera undir stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Sjóðurinn skal hafa sjálfstætt bókhald og vera ávaxtaður sérstaklega. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Rekstur sjóðsins standi undir sér.
Kjörnir og löggiltir endurskoðendur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga endurskoði reikninga Orlofssjóðs.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ber ábyrgð á eignum sjóðsins. Verði Orlofssjóður lagður niður ráðstafar aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eigum hans.
10. gr. Úrsögn
Sjóðfélagi telst segja sig úr Orlofssjóði Fíh ef umsamin orlofssjóðsframlög
skv. 3. gr hætta að berast sjóðnum. Ákvæði þetta gildir þó ekki fyrir eftirlaunaþega innan Fíh. Sjóðsfélagi getur ekki gert kröfu um hlutdeild í eignum sjóðsins við úrsögn. Innistandandi punkta er heimilt að nota sbr. 9. gr.
11. gr. Gildistaka og önnur ákvæði.
Reglur þessar taka gildi á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, 12.5.2009.
Reglum fyrir Orlofssjóð verður aðeins breytt á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Samþykki aðalfundur breytingar á reglum þessum verða þær kynntar á viðeigandi vettvangi og uppfærðar á vefsvæði félagsins.
Samþykkt á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 12. maí 2009
