Útilegukortið 2012 og Veiðikortið 2012 er til sölu á orlofsvefnum undir liðnum „Afsláttarávísanir“

Eftir að greitt hefur verið fyrir kortið er það sent í pósti til viðkomandi.  Einnig er hægt að nálgast það á skrifstofu félagsins.  Athugið samt að skrifstofa félagsins er lokuð frá 16. júlí til 7. ágúst þá er ekki hægt að senda kortin í pósti.

Veiðikortið 2012

Veiðikortið er mjög hagkvæmur kostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða ótakmarkað í rúmlega 30 veiðivötnum víðs vegar á landinu sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Með kortinu fylgir veglegur bæklingur þar sem vötnin eru ýtarlega kynnt til að auðvelda aðgengið að þeim, sem og kynna fyrir korthöfum þær reglur sem gilda við hvert vatnasvæði. Einnig eru þar kort og myndir frá vatnasvæðunum sem í boði eru. Hægt er að skoða bæklinginn á vefútgáfu á heimasíðu Veiðikortsins, www.veidikortid.is, en þar má einnig lesa fréttir, fara á spjallið og lesa reglur og upplýsingar um vatnasvæðin. Einnig er hægt að sækja veiðiskýrslu og skoða myndasafn fyrir hvert vatnasvæði fyrir sig.

Veiðikortið kostar 3.300 kr. og er til sölu á Orlofsvef félagsins, undir liðnum Afsláttarávísanir, (athuga þarf að skrifstofan er lokuð 16. júlí - 7. ágúst). Einungis er hægt að kaupa tvö veiðkort á hverja kennitölu félagsmanns. Eftir að greitt hefur verið fyrir kortið mun skrifstofa FÍH senda það í pósti til viðkomandi félagsmanns. Einnig er hægt að nálgast það á skrifstofu félagsins.  Tryggið ykkur Veiðikortið tímalega. Einn punktur er dregin af við kaup á Veiðikortinu.

Útilegukortið 2012

Orlofssjóður FÍH mun bjóða félagsmönnum sínum að kaupa Útilegukortið á sérstökum afsláttarkjörum.

Útilegukortið kostar 8.000 kr. og er til sölu á Orlofsvef félagsins undir liðnum Afsláttarávísanir, (athuga þarf að skrifstofan er lokuð 16. júlí - 7. ágúst). Einungis er hægt að kaupa eitt Útilegukort á hverja kennitölu félagsmanns. Eftir að greitt hefur verið fyrir kortið mun skrifstofa FÍH senda útilegukortið í pósti til viðkomandi félagsmanns. Einnig er hægt að nálgast það á skrifstofu félagsins.  Tveir punktar eru dregnir af við kaup á Útilegukortinu.

Markmiðið með stofnun Útilegukortsins er að gefa ferðamönnum kost á því að ferðast um Ísland á ódýran og hagkvæman hátt með gistingu á sérvöldum tjaldsvæðum um land allt. Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin.

Kortið veitir eiganda þess, maka og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins utan gistináttaskatts kr. 100 sem nýlega var sett á fyrir hverja einingu.  Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti á hverju tjaldsvæði. Nánari upplýsingar um tjaldstæðin er að finna á www.utilegukortid.is