Siðareglur hjúkrunarfræðinga//
Siðareglur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Kjarni hjúkrunar
Kjarni hjúkrunar er umhyggja fyrir skjólstæðingnum og virðing fyrir lífi hans og mannhelgi. Hlutverk hjúkrunarfræðings er að efla heilbrigði, bæta líðan og lina þjáningar.
Hjúkrunarfræðingur sinnir líkamlegum, andlegum, félagslegum og trúarlegum þörfum skjólstæðings í samvinnu við hann.
Hjúkrunarfræðingur hjúkrar af virðingu fyrir einstaklingnum án þess að fara í manngreinarálit vegna þjóðernis, kynþáttar, trúarbragða, aldurs, kynferðis, stjórnmálaskoðana, þjóðfélagsstöðu, heilsufarsvanda eða annars konar fordóma.
Hjúkrunarfræðingur og skjólstæðingur
1. grein
Hjúkrunarfræðingur á umfram allt skyldum að gegna við þá sem þarfnast hjúkrunar. Frumskylda hans er að virða velferð og mannhelgi skjólstæðings.
2. grein
Hjúkrunarfræðingur er málsvari skjólstæðings og stendur vörð um rétt hans. Hann ber hag skjólstæðings fyrir brjósti hvar sem starfsvettvangur hans er.
3. grein
Hjúkrunarfræðingur stendur vörð um rétt um skjólstæðings til einkalífs með því að gæta trúnaðar og þagmælsku. Eigi hjúkrunarfræðingur að bera vitni fyrir rétti um einkamál skjólstæðings ber honum að leita faglegrar ráðgjafar.
4. grein
Hjúkrunarfræðingur hefur samráð við skjólstæðing og virðir rétt hans til að taka ákvarðanir um eigin meðferð. Hjúkrunarfræðingur skal stuðla að því að skjólstæðingur eða forráðamaður/menn hans geti tekið upplýsta ákvörðun.
5. grein
Hjúkrunarfræðingur vekur athygli á því ef ráðstafanir stjórnvalda og annarra stjórnenda ganga gegn hagsmunum skjólstæðings. Ef heilbrigði eða öryggi skjólstæðings er stefnt í hættu vegna ófaglegra eða ólöglegra starfa samstarfsfólks ber hjúkrunarfræðingi að tilkynna það viðeigandi aðilum.
Hjúkrunarstarf
6. grein
Hjúkrunarfræðingur viðheldur þekkingu sinni og færni og ber faglega og lagalega ábyrgð á störfum sínum. Hann tekur þátt í þróun þekkingar í hjúkrun og byggir störf sín á rannsóknarniðurstöðum til hagsbóta fyrir skjólstæðing.
7. grein
Hjúkrunarfræðingur hagar svo störfum sínum að hann sé stétt sinni til sóma. Hann varast að nota starfsheiti sitt í auglýsingaskyni og skal ekki njóta hlunninda frá skjólstæðingi sínum.
Hjúkrunarfræðingur og samstarfsfólk
8. grein
Hjúkrunarfræðingur ráðfæri sig við samstarfsfólk með hagsmuni skjólstæðings í huga. Hann tekur ekki að sér þau verkefni sem hann ræður ekki við heldur vísar þeim til hæfari aðila.
9. grein
Hjúkrunarfræðingur ástundar heiðarleg og holl samskipti við samstarfsfólk. Hann sýnir stéttvísi í samskiptum við hjúkrunarfræðinga innan og utan starfsvettvangs.
10. grein
Hjúkrunarfræðingur miðlar eigin þekkingu og reynslu til nemenda í hjúkrunarfræði og annars samstarfsfólks.
Hjúkrun og samfélag
11. grein
Hjúkrunarfræðingur hefur frumkvæði að og er virkur þátttakandi í stefnumótun og eflingu heilbrigðisþjónustunnar.
12. grein
Hjúkrunarfræðingur skal starfa samkvæmt siðareglum stéttarinnar og kynna þær innan samfélagsins. Hver sá sem telur að hjúkrunarfræðingur hafi brotið þessar reglur getur óskað eftir umfjöllun siða- og sáttanefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
