Starfsmenntunarsjóður//

Úthlutað er úr Starfsmenntunarsjóði fjórum sinnum á ári.
Umsóknarfrestur fyrir hverja úthlutun er fyrir 1. febrúar, 1. maí, 1. september og
1. desember.
Hámarksupphæð er 50.000 kr. frá og með 1. janúar 2013. Hægt er að sækja um og fá úthlutað 50.000 kr. á hverju ári.
Athugið að réttur í sjóðinn safnast ekki upp á milli ára. Ef árlegur réttur er ekki nýttur fellur hann niður. Ekki er hægt að sækja afturvirkt í sjóðinn. Ef til dæmis er sótt um í janúar 2013 vegna námskeiðs 2012 sem kostaði 45.000 þá er nýttur réttur 2013 því réttur 2012 hefur fallið niður.
Fylla þarf út umsókn fyrir hvert verkefni sem sótt er um. Ef umsækjandi hefur til dæmis farið á tvö námskeið þarf að sækja um tvísvar.
Leiðbeiningar um hvernig fylla á út umsókn
Mikilvægt er að vanda umsóknina því það flýtir fyrir við afgreiðslu.
Skrifið stutt og skorinort og lýsið verkefninu í fáum orðum. Ef námskeiðið eða ráðstefnan er á vegum Fíh eða er vel þekkt að öðru leyti er frekari rökstuðningur að jafnaði óþörf.
Dæmi um nægilegan umsóknartexta:
(Lýsing á það sem um er sótt) Skólagjald í HÍ.
(Rökstuðningur) Meistaranám í svæfingarhjúkrun.
Annað dæmi:
Hjúkrun 2011
Ráðstefnugjald og flugfar.
Óþarfi er að taka fram að búið sé eða standi til að senda gögn í pósti.
Óþarfi er að taka fram að umsækjandi er hjúkrunarfræðingur.
Ekki líma inn óbreyttar langar lýsingar á námi, ýtarleg dagskrá og þess háttar.
Dæmi um óþarfa frasar í lýsingunni:
Ég sæki um styrk vegna ... Sótt er um ... Hef sótt um og fengið inngöngu í nám í ... Um er að ræða ... Ég er starfandi ... Ég hef í hyggju að ... Ég er í námi í ... Í haust fór ég í nám í ... Er búin að skrá mig á ...
Eins í rökstuðningi:
Tel nauðsynlegt að hitta aðra hjúkrunarfræðinga og fylgjast með því sem um er að vera hverju sinni ... Námskeiðið mun nýtast mér í starfi (óþarfi ef um augljóst hjúkrunarviðfangsefni er að ræða) ... Auka möguleikar á því að stunda hjúkrunarstörf í Noregi (tungumálanám telst almennt auka hæfni hjúkrunarfræðinga og því er rökstuðningur óþarfi) ... Hef aldrei sótt um áður.
Hins vegar er ekki nægjanlegt að vísa í vefslóð – ekki er ætlast til þess að starfsmenn sjóðsins fari á netið til þess að fá að vita um hvaða nám er að ræða eða til þess að prenta út dagskrá eða önnur gögn. Sjá neðar undir viðbótargögn.
Staðfesting á umsókn
Eftir að umsókninni er skilað kemur staðfestingartexti og einnig berist staðfesting í tölvupósti. Ef það gerist ekki innan sólarhrings má gera ráð fyrir að umsóknin hafi ekki skilað sér. Gott er þá að hringja í starfsmann sjóðsins í síma 540 6400 eða senda nýja umsókn.
Viðbótargögn
Viðbótargögn þarf að skila á skrifstofu eða senda í pósti. Takið ljósrit af reikningum og skilið inn frumritum.
Athugið að við kynnisferðir þurfa allir umsækjendur að skila inn fullnægjandi gögnum þó að um hópferð sé að ræða. Hver umsókn er sjálfstæð og þarf bókhaldið að vera í lagi hjá hverjum og einum. Umsókn verður ekki afgreidd fyrr en gögn liggja fyrir.
Stjórn
Dagbjört H. Kristinsdóttir
Hjúkrunarfræðingur
Formaður, tilnefnd af Fíh
Christer Magnusson
Hjúkrunarfræðingur, tilnefndur af Fíh
Birgir Björn Sigurjónsson
tilnefndur af Reykjavíkurborg
Lárus Ögmundsson
tilnefndur af Fjármálaráðuneytinu
