Starfsreglur starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

1. Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir starfsmenntunarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að nýta sem best tekjur sjóðsins í þágu sí-, eftir- og endurmenntunar hjúkrunarfræðinga í tengslum við störf þeirra.

3. Stjórn sjóðsins
Stjórn sjóðsins skal skipuð tveimur fulltrúum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og tveimur fulltrúum launagreiðenda, þ.e. ríkis og Reykjavíkurborgar.
Sjóðsstjórn ákvarðar hámarksstyrkfjárhæðir og aðrar reglur um framkvæmd til uppfyllingar starfsreglum þessum, velur á milli styrkhæfra verkefna og umsækjenda, afgreiðir umsóknir, sker úr um vafaatriði, t.d. um sjóðaðild eða styrkhæfi umsókna, og tekur á öðrum álitaefnum eða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma.

Á fundi stjórnar í desember ár hvert skal tekin ákvörðun um styrktarfjárhæð fyrir komandi ár.
Stjórn sjóðsins kemur að jafnaði saman fjórum sinnum á ári, í febrúar, maí, september og desember.

4. Réttur til aðildar að sjóðnum
Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá launagreiðendum sem gert hafa kjarasamning við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga um framlag í starfsmenntunarsjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hér eftir nefndir sjóðfélagar.

5. Skyldur vinnuveitenda
Launagreiðendur greiða iðgjald til sjóðsins sem nemur 0,22% af heildarlaunum starfsmanns, sbr. ákvæði kjarasamninga um framlag í starfsmenntunarsjóð.

6. Réttur sjóðfélaga
a) Sérhver sjóðfélagi, sem hefur verið a.m.k. eitt ár í sjóðnum, er styrkhæfur samkvæmt nánari ákvæðum þessara starfsreglna enda sæki hann um út af styrkhæfu verkefni. Réttur til aðildar að sjóðnum fellur brott þegar iðgjald hefur ekki verið greitt í 6 mánuði. Sjóðfélagi heldur þrátt fyrir það aðildarrétti í fæðingarorlofi. Lífeyrisþegi heldur aðildarrétti í 12 mánuði frá því að viðkomandi hættir starfi.
b) Sjóðfélagi, sem er í launalausu leyfi, getur verið styrkhæfur samkvæmt nánari ákvæðum þessara starfsreglna ef minna en 4 mánuði vantar upp á að sjóðsaðild nái einu samfelldu ári vegna launalauss leyfis.
c) Sjóðfélagar, sem orðið hafa atvinnulausir, geta sótt um og fengið styrk úr sjóðnum samkvæmt eftirfarandi reglum:
• Skilyrði. Umsækjandi hefur átt aðild að sjóðnum einhvern tíma á síðustu 12 mánuðum og verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði, þ.e. verið í vinnu hjá launagreiðanda með sjóðsaðild.
• Styrkhæfni. Sömu reglur gilda eins og fyrir aðra sjóðfélaga. Að auki má veita styrk til námskeiðs sem tengist beinlínis atvinnuleysi sjóðfélaga eða auðveldar honum að öðlast starf á ný.
d) Réttur sjóðfélaga miðast þó ávallt við fjárhag sjóðsins hverju sinni. Ef staða sjóðsins leyfir ekki að orðið sé við öllum styrkhæfum umsóknum styrkhæfra umsækjenda ber sjóðsstjórn að veita þeim umsóknum forgang sem hafa mest faglegt gildi fyrir starfshæfni starfsmanns.

7. Styrkhæfni verkefna
a) Inntak verkefnis. Verkefni þarf að jafnaði að varða annaðhvort starf eða fagsvið sjóðfélaga til að vera styrkhæft. Námskeið til þess að auka almenna starfshæfni á sviði tölvutækni, tungumála og samskipta eru styrkhæf þó námið tengist ekki beinlínis starfi eða háskólamenntun umsækjanda. Sjóðstjórn metur vafatilvik.
b) Staðsetning verkefnis. Hægt er að sækja um styrk vegna verkefna innanlands sem utan, svo sem námskeið, ráðstefnur, málþing og faglega skipulagðar heimsóknir. Dagskrá heimsóknanna verður að fylgja með umsókninni því annars getur nefndin ekki tekið afstöðu til hennar. Sjóðstjórn metur vafatilvik.
c) Hvað er styrkt? Sjóðfélagar geta fengið styrk vegna útlagðs:
• ferðakostnaðar (s.s. flugfargjalda eða aksturskostnaðar)
• hótel- og gistikostnaðar
• náms- og ráðstefnugjaldakostnaðar
• símkostnaðar vegna fjarnáms
Sjóðstjórn metur vafatilvik.

d) Verkefni er styrkhæft í allt að 9 mánuðum eftir að því lýkur.
e) Hvað er t.d. ekki styrkt? Sjóðfélagar geta ekki fengið styrk vegna:
• uppihalds (fæðiskostnaðar) og ferða innan borga

• launataps

• bókakostnaðar eða námsgagna

• tómstundanámskeiðs.

 

Ekki er hægt að nota styrkinn til að greiða fyrir annað námskeið en það sem kemur fram á umsókninni.

8. Hámarksstyrkfjárhæð
Hámarksstyrkfjárhæð er 45.000 kr. á almanaksárinu. Ef hluti styrks hefur verið tekinn út á árinu hefur það áhrif á styrkfjárhæð.


Í maí 2012 verður í síðasta sinn úthlutað 20 styrkjum sem nema 100.000 kr. Styrkirnir eru vegna náms sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði: Námið sé framhalds- eða viðbótarnám í hjúkrunarfræði, fari fram við viðurkennda menntastofnun og því ljúki með formlegu námsmati.

9. Ferill umsókna hjá sjóðnum
Umsóknum skal skila inn rafrænt til sjóðsins fyrir 1. þess mánaðar þegar stjórnin kemur saman (febrúar, maí, september og desember). Rafrænt umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu félagsins.

Upplýsingar um sjóðinn eru á heimasíðu félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og á skrifstofu félagsins.

Sjóðfélagar skulu vanda frágang umsókna og tilgreina nákvæmlega til hvers þeir ætla að verja styrkfénu auk annarra atriða sem spurt er um á eyðublaðinu. Ella geta umsækjendur átt það á hættu að ekki sé fjallað um umsóknir þeirra þar til bætt hefur verið úr. Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi svar um að umsóknin hafi verið móttekin. Sjóðurinn ber enga ábyrgð á því ef umsóknir berast ekki einhverra hluta vegna.
Þegar afgreiðsla stjórnar liggur fyrir er sjóðfélögum kynnt niðurstaðan skriflega. Í sama bréfi kemur fram hvaða gögnum þarf að framvísa til að fá styrkinn greiddan.

10. Réttur til að hætta við umsókn
Ef verkefni er ekki lokið eða umsókn er dregin til baka áður en styrkur er greiddur fellur styrkloforðið niður og hefur umsóknin þá engin áhrif á réttindi umsækjanda hjá sjóðnum.

11. Afgreiðsla á styrkveitingu úr sjóðnum
a) Skil á gögnum til sjóðsins. Sjóðfélagi ber ábyrgð á því að skila inn tilskildum gögnum til sjóðsins. Réttur til greiðslu samkvæmt ákvörðun stjórnar fyrnist ef umsækjandi hefur ekki skilað nauðsynlegum gögnum (reikningum og staðfestingu) innan 9 mánaða frá dagsetningu tilkynningar um styrkveitingu.
b) Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram gegn framvísun reikninga í frumriti. Á reikningnum þarf að koma fram nafn, kennitala og fyrir hvað er greitt. Ef ekki er unnt að framvísa frumriti vegna greiðslu getur sjóðurinn greitt gegn staðfestu afriti reiknings. Sé reikningur glataður að fullu verður stjórn sjóðsins að taka ákvörðun um afgreiðslu styrksins.
c) Staðfesting á verkefni. Sýna þarf fram á, t.d. með prófskírteini, dagskrá, þátttakendalista eða bréfi umsjónarmanns verkefnis, að styrkurinn hafi verið nýttur til þeirra verkefna sem ætlast var til við úthlutun hans. Staðfesting þarf að koma frá öðrum aðila en umsækjanda sjálfum. Nauðsynlegt er því að halda til haga öllum gögnum.
d) Útborgun styrks. Styrkir úr sjóðnum eru greiddir út í fyrsta lagi 25. þess mánaðar sem úthlutað er. Ef um styrk vegna styttra náms, verkefnis eða ráðstefnu er að ræða (ein önn eða styttra) er styrkurinn greiddur þegar verkefni er lokið og gögnum hefur verið skilað. Ef um er að ræða lengra nám er hægt að skila inn staðfestingu um að umsækjandi stundi námið og er þá styrkurinn greiddur út næsta útborgunardag. Greiðslutilkynning er send í tölvupósti.

e) Eftirágreiðsla. Greiðsla styrks er alltaf endurgreiðsla útlagðs kostnaðar – eftir á. Styrkur er aldrei greiddur út fyrir fram.
f) Áskilinn sveigjanleiki. Sjóðurinn áskilur sér rétt til sveigjanleika í greiðslu styrksins. Leitast verður við að greiða styrki úr sjóðnum út eins fljótt og aðstæður leyfa hverju sinni.
g) Tvígreiðsla eða ofgreiðsla styrks. Ef mistök verða í afgreiðslu styrkumsóknar eða greiðslu styrks munu starfsmenn sjóðsins leitast við að leiðrétta mistök eins fljótt og hægt er. Ef sjóðfélagi hefur fengið tvígreiddan styrk eða ofgreidda styrkupphæð þarf hann að tilkynna sjóðnum mistökin og endurgreiða þegar í stað þá upphæð, sem munar, til sjóðsins aftur.
h) Í byrjun hvers árs eru sendar upplýsingar til skattayfirvalda þar sem gerð er grein fyrir styrkþegum og styrkupphæðum síðastliðins árs.

12. Skráning og meðferð umsókna hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
a) Samþykktar umsóknir ásamt frumriti reikninga og afriti launaseðla eru geymdar í 7 ár.
b) Umsóknir, sem hefur verið hafnað eða vísað frá, eru ekki geymdar lengur en í eitt ár.
c) Fylgigögn: Öllum öðrum gögnum en fram koma í 12. a) er eytt eftir greiðslu styrks.
d) Skráning í félagatal: Upphæð, dagsetning umsóknar og greiðsla styrkja er skráð í félagatal sjóðsins.

13. Málskotsréttur
Ef sjóðfélagi er ósáttur við afgreiðslu starfsmanna sjóðsins á styrkumsókn sinni og fylgigögnum á hann ávallt rétt á að vísa erindi sínu til stjórnar sjóðsins. Verður afgreiðslan þá tekin upp á næsta fundi stjórnar.

14. Gildistaka og önnur ákvæði
Reglur þessar eru samþykktar í stjórn sjóðsins 19. janúar 2012 og taka gildi 25. janúar 2012.
Við gildistökuna falla úr gildi eldri starfsreglur og aðrar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við reglur þessar.
Reglurnar eru birtar svo breyttar í Tímariti hjúkrunarfræðinga og jafnframt á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, www.hjukrun.is.
Samþykki stjórn sjóðsins breytingar á reglum þessum verða þær kynntar á viðeigandi vettvangi og uppfærðar á heimasíðu.

Upplýsingar um starfsemi sjóðsins birtast í Tímariti hjúkrunarfræðinga og öðrum miðlum eftir því sem tilefni þykir til.

Gert í Reykjavík 25. janúar 2012,
stjórn starfsmenntunarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Dagbjört H. Kristinsdóttir

Christer Magnusson

Lárus Ögmundsson

Birgir Björn Sigurjónsson