Styrktar- og Sjúkrasjóður//
Kynntu þér í hvorum sjóðinum þú átt rétt á að sækja um styrk áður en þú fyllir út umsókn.
Styrktarsjóður Fíh
Styrktarsjóður Fíh- er fyrir starfsmenn ríkisins, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana. Réttur sjóðfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag vegna umsækjenda í samtals 6 mánuði, þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað (sjá reglur sjóðsins) Markmið sjóðsins, samkvæmt skipulagsskrá er að styrkja sjóðfélaga með fé og koma þannig til móts við tekjutap vegna ólaunaðrar fjarveru vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæðna. Einnig er markmiðið að bæta útgjöld vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu og óvæntra áfalla sjóðfélaga.
Sjúkrasjóður Fíh
Sjúkrasjóður Fíh er aðeins opinn félagsmönnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa á almennum vinnumarkaði, því enn sem komið er greiða aðeins einkafyrirtæki fyrir starfsmenn sína í sjóðinn. Samkvæmt lögum nr. 19/1979 ber einkafyrirtækjum að greiða 1% af heildarlaunum starfsmanna sinna í sjúkrasjóð.
Greiðslur úr Sjúkrasjóði: Sjúkrasjóður Fíh greiðir m.a. dagpeninga vegna sannanlegs tímabundins tekjutaps sjóðsfélaga vegna veikinda og slysa. Greiddur er útfararstyrkur og tímabundið framfærslutap vegna andláts sjóðfélaga. Þetta á þó aðeins við ef atvinnurekandi eða tryggingarfélag greiða ekki bætur af sama tilefni. Sjóðurinn getur greitt sjúkradagpeninga vegna veikinda á meðgöngutíma sjóðfélaga og vegna vímuefnameðferðar
Stjórn þessara bráðabirgða styrktar- og sjúkrasjóða var skipuð af stjórn Fíh 7. maí 2012
Stjórn
Guðbjörg Pálsdóttir
Formaður
Gunnar Helgason
Ritari
Fríða Björg Leifsdóttir
Fjóla Ingimundardóttir
Stella S. Hrafnkelsdóttir
