Starfsreglur fyrir Styrktarsjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
1. gr.
Heiti, varnarþing og heimili
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og er heiti hans skammstafað StFíh.
Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
Starfsstöð sjóðsins er á starfsstöð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hverju sinni.
2. gr.
Hlutverk
Sjóðnum skal varið til þess að styrkja sjóðsfélaga með fé og koma þannig m.a. til móts við
- tekjutap vegna ólaunaðrar fjarveru sjóðsfélaga frá vinnu vegna veikinda sjóðsfélaga eða nákominna eða annarra persónulegra aðstæðna;
- útgjöld vegna andláts sjóðsfélaga;
- útgjöld sjóðsfélaga vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu;
- óbætt áföll vegna óvæntra starfsloka eða annarra óvæntra áfalla sjóðsfélaga.
Einnig veitir sjóðurinn fæðingarstyrki
Hlutverki sínu hyggst sjóðurinn ná með því að hafa gagnsæjar og skýrar úthlutunarreglur þannig að gætt sé jafnræðis sjóðsfélaga og um leið skilvirkni og hagkvæmni í rekstri sjóðsins. Sjóðsstjórn er þó heimilt við sérstakar aðstæður að taka matskenndar ákvarðanir með hliðsjón af persónulegum aðstæðum sjóðsfélaga þótt slíkar ákvarðanir séu ekki í samræmi við úthlutunarreglur eða eigi beina stoð í þeim svo lengi sem slíkar ákvarðanir eru að öðru leyti í samræmi við hlutverk sjóðsins.
3. gr.
Form og aðild
1. Styrktarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er bundinn sjóður innan vébanda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Sjóðurinn stundar ekki atvinnurekstur og snýr rekstur sjóðsins eingöngu að hlutverki hans sem styrktarsjóðs hjúkrunarfræðinga. Eingöngu er heimilt að nýta fjármuni sjóðsins í samræmi við hlutverk hans samkvæmt 2. gr. reglna þessara og til rekstrar sjóðsins, sbr. 6. gr. reglnanna.
2. Sjóðsaðild öðlast hjúkrunarfræðingur á grundvelli
a) ákvæðis í kjarasamningi Fíh við ríki eða sveitarfélag, eða
b) ákvæðis í kjarasamningi Fíh við sjálfseignarstofnun sem starfar í almannaþágu samkvæmt lögum, er á fjárlögum eða nýtur fjárframlaga til launagreiðslna úr ríkissjóði af daggjöldum eða úr sveitarfélagssjóði, sbr. 2. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, eða
c) ráðningarsamnings við sjálfseignarstofnun skv. b-lið, eða
d) sérstakri ákvörðun sjóðsstjórnar varðandi starfsmenn annarra atvinnurekenda ef laun þeirra starfsmanna miðast við launakjör samkvæmt kjarasamningum Fíh en atvinnurekanda ber ekki að greiða 1% heildarlauna í Sjúkrasjóð Fíh skv. 7. gr. laga nr. 19/1979.
Auk þess sem einhver framangreindra liða þarf að vera uppfylltur til að hjúkrunarfræðingur öðlist aðild að sjóðnum er það og skilyrði sjóðsaðildar að greitt sé til sjóðsins kjarasamningsbundið eða ráðningarsamningsbundið sjóðsframlag 0,55% af heildarlaunum mánaðarlega, sbr. einnig 7. gr. reglnanna.
3. Réttur sjóðsfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag vegna sjóðsfélaga samtals í 6 mánuði og þar af samfellt í 3 mánuði áður en bótaatburður, sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum, átti sér stað. Þó öðlast sá rétt strax sem öðlast hefur rétt úr styrktar- eða sjúkrasjóði annarra stéttarfélaga sem veita fyrrum sjóðsfélögum úr StFíh sams konar rétt.
4. Launalaust leyfi í allt að 3 mánuði skerðir ekki rétt sjóðsfélaga, útborgun styrkja miðast þó við að sjóðsfélagi hafi hafið störf á ný.
5. Fyrrverandi sjóðsfélagar njóta ekki réttar til styrkja úr sjóðnum.
6. Sjóðsaðild og réttindi eru ekki bundin tilteknu starfshlutfalli en sjóðsstjórn getur miðað úthlutunarreglur eða matskenndar ákvarðanir, sbr. 2. og 5. gr., svo sem fjárhæð dagpeninga, við starfshlutfall sjóðsfélaga á þeim tíma þegar bótaatburður, sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum, átti sér stað.
4. gr.
Sjóðsstjórn
1. Sjóðsstjórn skipa fimm félagsmenn Fíh og tveir til vara. Starfstími stjórnar skal vera tvö ár í senn og skal stjórnarkjör fara fram á aðalfundi Fíh annað hvert ár. Formaður skal kjörinn sérstaklega.
2. Sjóðsstjórn skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti en því sem ákveðið er í 1. mgr. 4. gr. Embætti innan stjórnarinnar eru varaformaður, sem jafnframt er ritari, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur. Jafnframt skal ákveðið hver er 1. og hver er 2. varamaður og skulu þeir taka sæti í stjórn í þeirri röð láti einhver aðalmanna af stjórnarstörfum.
3. Enginn stjórnarmaður skal sitja lengur en 8 ár samfellt í stjórn sjóðsins. Komi til þess að stjórnarmenn láti af störfum og ekki eru til staðar varamenn til að taka sæti í stjórn skal stjórn Fíh skipa í stjórnina, þ.m.t. tvo varamenn.
4. Sjóðsstjórn annast alla umsjón með eignum sjóðsins og fer með daglegan rekstur hans í umboði stjórnar Fíh. Sjóðsstjórn ber að tryggja að fjármálum sjóðsins sé skipað með þeim hætti sem segir í 6. gr. reglna þessara. Sjóðsstjórn skal leggja fyrir aðalfund Fíh skýrslu um starfsemi og reikninga sjóðsins. Allar meiri háttar ákvarðanir varðandi fjárfestingar, fjárfestingarstefnu og aðrar skuldbindingar skulu háðar samþykki stjórnar Fíh.
5. gr.
Úthlutunarreglur
1. Sjóðsstjórn setur almennar, gagnsæjar og skýrar úthlutunarreglur, sbr. 2. gr. starfsreglna þessara, sem bornar skulu undir stjórn Fíh sem skal aðeins heimilt að samþykkja eða synja tillögu sjóðsstjórnar í heild sinni. Sjóðsstjórn úthlutar styrkjum á grundvelli slíkra úthlutunarreglna.
2. Úthlutunarreglur skulu vera aðgengilegar félagsmönnum á heimasíðu félagsins og á skrifstofu þess.
3. Sjóðsstjórn er þó við sérstakar aðstæður heimilt að taka matskenndar ákvarðanir með hliðsjón af persónulegum aðstæðum sjóðsfélaga þótt slíkar ákvarðanir séu ekki í samræmi við úthlutunarreglur eða eigi ekki beina stoð í þeim svo lengi sem slíkar ákvarðanir eru að öðru leyti í samræmi við hlutverk sjóðsins, sbr. 2. gr. reglna þessara.
4. Sjóðsstjórn skal taka úthlutunarreglur til endurskoðunar eigi sjaldnar en árlega. Við slíka endurskoðun skal m.a. metið hvort matskenndar ákvarðanir sjóðsstjórnar gefi tilefni til breytinga á úthlutunarreglunum sjóðsins. Tillögur sjóðsstjórnar til breytinga á úthlutunarreglum skulu bornar undir stjórn Fíh áður en þær öðlast gildi, sbr. 1. mgr. þessarar greinar. Breyttar reglur skulu birtar á heimasíðu félagsins og í öðrum miðlum þess eins fljótt og verða má. Breytingar taka ekki gildi fyrr en þær hafa verið birtar á heimasíðu félagsins. Umsókn sem berst sjóðnum áður en nýjar reglur hafa verið birtar skal fara með samkvæmt eldri reglum.
5. Stjórn vinnur úr umsóknum og kynnir niðurstöður bréflega. Stjórn er heimilt að leita aðstoðar starfsmanns Fíh við slíka úrvinnslu. Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar skal rökstudd með vísan í reglur eða mat stjórnar.
6. gr.
Fjármál
1. Stofnfé er kr. 1.000.000,- (einmilljón 00/100 íslenskra króna).
2. Sjóðurinn skal færa sjálfstætt bókhald og ávaxtaður sérstaklega. Fjármunum sjóðsins skal haldið aðgreindum frá öðrum fjármunum Fíh. Reikningsárið er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af kjörnum og löggiltum endurskoðendum Fíh og lagðir fram til afgreiðslu á aðalfundi Fíh. Við gerð og frágang reikninga félagsins, sbr. framangreint skal viðhöfð góð reikningsskilavenja.
3. Tryggja ber að rekstur sjóðsins standi undir sér. Sjóðurinn greiðir allan kostnað af starfsemi sinni, þ.m.t. framlag í félagssjóð Fíh vegna kostnaðarþátttöku í rekstri skrifstofu Fíh.
7. gr.
Úrsögn
Sjóðsfélagi telst hafa sagt sig úr StFíh ef kjarasamningsbundin eða umsamin styrktarsjóðsframlög hætta að berast sjóðnum. Fyrri sjóðsaðild nýtist eftir 3ja mánaða veru í sjóðnum að nýju taki sjóðsframlög að berast vegna sjóðsfélaga á ný. Framlög og árgjöld sem sjóðsfélagar inna af hendi eru óendurkræf og geta sjóðsfélagar því ekki við úrsögn gert kröfu um hlutdeild í eignum sjóðsins.
8. gr.
Breyting á starfsreglum þessum
Starfsreglum sjóðsins má aðeins breyta á aðalfundi Fíh. Tillögur til breytinga verða aðeins teknar fyrir á aðalfundi að fengnu samþykki stjórnar Fíh. Tillögur til breytinga á reglum sjóðsins skulu hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi Fíh, til þess að ná fram að ganga.
9. gr.
Slit eða sameining
1. Ákvörðun um slit eða sameiningu sjóðsins má aðeins taka á aðalfundi Fíh. Slíkar tillögur verða aðeins teknar fyrir á aðalfundi að fengnu samþykki stjórnar Fíh. Tillaga um að leggja niður StFíh eða sameina hann öðrum sjóði með sambærilegt hlutverk skal hljóta samþykki ¾ hluta greiddra atkvæða aðalfundar Fíh.
2. Samþykki aðalfundur að leggja sjóðinn niður skal jafnframt tekið fyrir á sama aðalfundi hvernig skuli fara með eignir sjóðsins. Eignum sjóðsins skal ráðstafað í samræmi við ákvörðun stjórnar Fíh og aðalfundar Fíh sem skulu leggja markmið og hlutverk sjóðsins til grundvallar slíkri ákvörðun.
10. gr.
Lokaákvæði
Starfsreglur þessar eru samþykktar á stjórnarfundi Fíh 9. mars 2010 og gilda þar til aðalfundur Fíh 2010 hefur samþykkt aðrar starfsreglur.
Ákvæði til bráðabirgða
1. Um tilurð sjóðsins
Til StFíh er stofnað í kjölfar úrsagnar Fíh úr BHM. Í kjölfar úrsagnarinnar kom upp ágreiningur milli Fíh og BHM sem varðar Sjúkrasjóð BHM og Styrktarsjóð BHM. Fíh telur að annað tveggja sé fyrir hendi, réttur til hlutdeildar í eignamyndun sjóðanna eða til áframhaldandi aðildar að sjóðunum en því hefur verið hafnað. Því hefur stjórn Fíh fengið fyrirgreiðslu hjá Vinnudeilusjóði til þess að koma á fót og fjármagna StFíh. Hlutverk sjóðsins er að tryggja hjúkrunarfræðingum sambærileg réttindi og Styrktarsjóður BHM veitir á meðan leyst er úr áðurnefndum ágreiningi. Starfsemi sjóðsins til framtíðar ræðst af niðurstöðu ágreinings Fíh og BHM.
2. Verði lyktir ágreiningsins þær að áframhaldandi réttur er til aðildar að Styrktarsjóði BHM og Sjúkrasjóði BHM skal stjórn Fíh leggja StFíh niður í samræmi við grein þessa. Ef sjóðurinn í heild er lagður niður skal ráðstafa eignum hans, þ.m.t. því fé sem sjóðurinn á rétt á frá framangreindum sjóðum BHM vegna framsals frá styrkþegum, til endurgreiðslu lána sem tekin hafa verið vegna starfseminnar og að öðru leyti í samræmi við almenna hagsmuni Fíh. Hrökkvi eignir sjóðsins ekki til endurgreiðslu lána ber Fíh ábyrgð á slíkri endurgreiðslu.
Verði lyktir ágreinings þær að ekki komi til áframhaldandi aðildar að Styrktarsjóði BHM og/eða Sjúkrasjóði BHM skal StFíh starfa áfram. Um slit hans fer þá samkvæmt 9. gr. reglna þessara.
3. Fyrsta stjórn StFíh skal skipuð af stjórn Fíh og skal sitja fram að aðalfundi Fíh 2010 þar sem kjörin verður ný stjórn í samræmi við 4. gr. reglna þessara.
4. Fyrstu úthlutunarreglur StFíh, sem sjóðsstjórn setur skv. 2 mgr. 5. gr., skulu birtar opinberlega innan 30 daga frá því að stjórn Fí samþykkir þær, á viðeigandi vettvangi, svo sem í miðlum Fíh.
