9. mars 2010.

INNGANGUR:

Um rétt sjóðsfélaga og skipulag sjóðsins gilda starfsreglur Sjúkrasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, samþykktar til á stjórnarfundi Fíh 9. mars 2010. Samkvæmt 5. gr. þeirra setur sjóðsstjórn nánari úthlutunarreglur og tekur við sérstakar aðstæður matskennda ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum.

1. SJÓÐSAÐILD:

Almenn réttindi. Réttur sjóðsfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið sjúkrasjóðsframlag vegna sjóðsfélaga samtals í 6 mánuði og þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað. Þó öðlast sá rétt strax sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr styrktarsjóði Fíh er hann verður sjóðfélagi í sjúkrasjóði Fíh. Sama gildir um þá sem öðlast hafa rétt úr styrktar- og sjúkrasjóðum annarra stéttarfélaga sem veita fyrrum sjóðfélögum úr sjúkrasjóði Fíh sams konar rétt.

Sjá þó grein 4 e. vegna dagpeningagreiðslna sjálfstætt starfandi.

Sjá ennfremur grein 4. b. vegna upphæðar dagpeninga ef greiðslur í sjóðinn hafa ekki náð 12 mánuðum.

a. Í fæðingarorlofi. Sjóðsfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða stéttarfélagsgjald meðan á því stendur halda fullum réttindum.

b. Í veikindum. Sjóðfélagi sem hefur fullnýtt rétt sinn til dagpeninga nýtur áfram annarra réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár stofni hann ekki til réttinda annars staðar.

c. Atvinnulausir. Atvinnulausir halda réttindum í sjóðnum í eitt ár í beinu framhaldi af fullri sjóðsaðild. Þetta gildir ef bótatímabil hefst eða útgjöld eigi sér stað innan árs frá upphafi atvinnuleysis, svo fremi að greitt sé félagsgjald til viðkomandi stéttarfélags. Sjá ennfremur grein 4.b. vegna upphæðar dagpeninga ef greiðslur í sjóðinn hafa ekki náð 12 mánuðum.

d. Aðild í launalausu leyfi. Sjóðsfélagar halda réttindum í launalausu leyfi í allt að sex mánuði. Styrkréttur miðast þó við að viðkomandi hafi hafið störf að nýju. Ekki eru greiddir sjúkradagpeningar vegna veikinda í launalausu leyfi.

2. UMSÓKNIR OG REGLUR:

a. Umsóknir. Sækja þarf um styrk til sjóðsins á sérstöku umsóknareyðublaði. Styrkumsóknir eru afgreiddar einu sinni í hverjum mánuði. Umsóknum skal skilað inn fyrir 10. hvers mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Lokadagur til að sækja um og skila gögnum vegna umsókna sem miðast við almanaksár er 9. des.

b. Afgreiðsla umsókna. Starfsmenn sjóðsins afgreiða umsóknir samkvæmt úthlutunarreglum þessum nema sérstaklega sé tekið fram í einstökum ákvæðum að sjóðsstjórn taki matskennda ákvörðun. Ef sjóðfélagi sættir sig ekki við ákvörðun starfsmanna sjóðsins, á hann ávallt rétt á að vísa máli sínu til stjórnar sjúkrasjóðs Fíh.

c. Gögn. Nauðsynleg gögn verða að liggja fyrir til að sjóðfélagi geti fengið greitt úr sjóðnum. Þessi gögn eru: Frumrit sundurliðaðra reikninga sem sannanlega eru greiddir, með nafni umsækjanda. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess er gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn, starfsheiti, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. Fjöldi skipta og dagsetningar meðferða eða kaupa á vöru eða þjónustu skal koma fram á reikningi.

d. Framhaldsumsókn um dagpeninga. Þegar sótt er um framhaldsgreiðslu dagpeninga úr sjúkrasjóði Fíh þarf sjóðfélagi að skila inn tilkynningu um óvinnufærni í hverjum mánuði. Skila þarf inn vottorði heilbrigðisstarfsmanns fyrir þann tíma sem sótt er um.

e. Upphæð styrks. Ekki eru greiddir hærri styrkir en sem nemur framlögðum reikningum. Staðgreiðsla skatta er tekin af öllum styrkfjárhæðum að frátöldum útfararstyrk sbr. gr 8 a og b.

f. Aðild við eftirlaun. Sjóðsfélagar halda réttindum í 12 mánuði eftir að þeir láta af störfum og fara á eftirlaun.

g. Fyrning umsókna. Réttur til greiðslna úr sjóðnum fyrnist sé ekki sótt um þær innan 12 mánaða frá því að til útgjalda var stofnað eða tekjutap varð. Réttur til greiðslu samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar eða starfsmanns sjóðsins fyrnist ef hennar hefur ekki verið vitjað innan 9 mánaða frá því að tilkynning um úthlutunarrétt var send til viðkomandi.

h. Villandi- eða rangar upplýsingar. Sá sem gefur rangar eða villandi upplýsingar eða lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar, missir rétt til bóta í allt að tvö ár. Í tilvikum þar sem ofgreiðslu er að ræða vegna rangra upplýsinga er sjóðsstjórn heimilt að endurkrefja bótaþega um alla bótafjárhæðina auk dráttarvaxta.

3. DAGPENINGAR:

Réttur til dagpeninga vegna sannanlegs tímabundins tekjutaps sjóðsfélaga sökum óvinnufærni vegna veikinda eða slysa, þ.m.t. veikinda á meðgöngu er sem hér segir:

a. Sjúkra- og slysadagpeningar greiðast í allt að 12 mánuði enda séu launagreiðslur í veikinda- eða slysaforföllum hættar eða skertar.

b. Upphæð dagpeninga skal nema 80% af grunni inngreiðslna sjóðsfélaga í sjóðinn síðustu 12 mánuði áður en launagreiðslur féllu niður þó að hámarki 520.000 kr. á mánuði (launatekjur 650.000 kr.). Ávinnsluréttur dagpeningsmánaðar er miðaður við fjölda inngreiðslna sl. 12 mánuði. Hafi sjóðfélagi greitt í færri en 12 mánuði fær hann greitt hlutfallslega. Þannig hefur sjóðfélagi sem greitt hefur til sjóðsins í sex mánuði einungis áunnið sér rétt til dagpeninga í sex mánuði.

Allar skattskyldar greiðslur frá öðrum aðilum, svo sem Tryggingastofnun ríkisins eða lífeyrissjóði, umfram 20% af grunni inngreiðslna síðustu 12 mánuði, koma að fullu til frádráttar dagpeningum frá sjóðnum.

c. Veikindi barns sjóðsfélaga. Hægt er að sækja um styrk til sjóðsstjórnar í kjölfar veikinda barns. Sjóðsstjórn metur hvert einstakt tilvik fyrir sig með hliðsjón af öllum aðstæðum, þ.m.t. annarra styrkja.

d. Veikindi maka sjóðsfélaga. Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að 2 mánuði vegna fjarveru frá vinnu vegna alvarlegra langtímaveikinda maka eða sambúðarmaka. Þó er ekki greitt fyrir fyrstu 10 dagana í veikindum.

e. Sjálfstætt starfandi. Greiðslur til sjálfstætt starfandi félagsmanna eru inntar af hendi sem um launþega væri að ræða. Biðtími til bótaréttar vegna sjálfstætt starfandi félagsmanna skal vera 3 mánuðir.

f. Tæming réttar. Réttur til nýs dagpeningatímabils stofnast aftur þegar greitt hefur verið vegna sjóðsfélaga í 6 mánuði eftir að síðasta dagpeningatímabili lauk. Hámarksfjöldi mánaða sem greiddir eru hverjum sjóðsfélaga eru 2 tímabil eða 24 mánuðir á hverju 10 ára tímabili.

g. Sjóðsaðild og réttindi eru ekki bundin tilteknu starfshlutfalli en fjárhæð dagpeninga er háð inngreiðslum í sjóðinn.

Heimildarákvæði:

h. Sjóðsstjórn er heimilt að veita rétt til dagpeninga í lengri tíma í sérstökum tilvikum.

i Sjóðsstjórn er heimilt að veita rétt til dagpeninga vegna aðgerða sjóðsfélaga til að losna úr vímuefnavanda.

4. GLERAUGU OG HEYRNARTÆKI:

a. Gleraugu, linsur. Veittir eru styrkir til kaupa á gleraugum eða linsum einu sinni á hverjum 36 mánuðum að hámarki kr. 30.000.

b. Laser. Veittur er staðlaður styrkur að fjárhæð kr. 50.000 vegna “laser aðgerða” á öðru auga eða kr. 100.000 á báðum augum.

c. Heyrnartæki. Veittir eru styrkir til kaupa á heyrnartækjum einu sinni á hverjum 36 mánuðum að hámarki kr. 150.000.

5. FERÐASTYRKUR:

Ættleiðing. - Greidd er föst upphæð kr. 150.000 vegna útgjalda við utanför til að sækja barn til ættleiðingar.

6. TÆKNIFRJÓVGUN:

Greitt er 30% af reikningi vegna smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf ekki innifalin). Hámarksstyrkur er 120.000 kr. á almanaksári.

7. DÁNARBÆTUR:

a. Staðlaður útfararstyrkur kr. 300.000 til þess sem stendur straum af kostnaði við útför sjóðsfélaga.

b. Fyrrverandi sjóðfélagi. Staðlaður útfararstyrkur kr. 300.000 vegna andláts fyrrverandi sjóðsfélaga allt að tveimur árum eftir að hann hættir störfum.

c. Tímabundið framfærslutap maka/sambúðarmaka. Til að bæta tímabundið framfærslutap maka/sambúðarmaka eru greidd að jafngildi ein mánaðarlaun hins látna m.v. meðalinnborgun síðustu 12 mánaða. Enn fremur er greitt vegna barna 18 ára og yngri hálf mánaðarlaun látins sjóðsfélaga.

FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR:

8. HEILSURÆKT:

Veittir eru styrkir vegna íþróttaiðkana að hámarki kr. 25.000 á ári hverju.

9. HJARTAVERND:

Sjóðurinn endurgreiðir að fullu kostnað vegna áhættumats hjá Rannsóknastöð Hjartaverndar.

10. KRABBAMEINSLEIT:

Sjóðurinn endurgreiðir að fullu kostnað vegna reglubundinnar leitar á brjósta- og leghálskrabbameini. Þurfi sjóðfélagi að fara í framhaldsrannsókn greiðir sjóðurinn þann kostnað einnig, að hámarki kr. 10.000. Ennfremur er greitt vegna krabbameinsskoðunar í ristli að hámarki kr. 10.000, sama gildir um skoðun á blöðruhálskirtli.

11. STYRKIR VEGNA MEÐFERÐA Á LÍKAMA OG SÁL:

a. Endurgreitt er að hámarki kr. 40.000 á ári fyrir meðferð hjá sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, sjúkranuddara, sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa kiropraktor eða sambærilegum faglega viðkenndum meðferðaraðila.

b. Göngumæling/Innlegg. Greiddur er 75% kostnaðar, þó að hámarki kr. 15.000 á ári vegna göngumælinga og innleggja.

12. DVÖL Á DVALAR- EÐA HEILSUSTOFNUN NLFÍ AÐ LÆKNISRÁÐI:

Greiddur er styrkur til dvalar á dvalar- og heilsustofnun NLFÍ að læknisráði að hámarki kr. 50.000 á ári.

14. NÁMSKEIÐ TIL AÐ HÆTTA AÐ REYKJA:

Endurgreiddur er kostnaður vegna námskeiða til að hætta að reykja að hámarki kr. 30.000 á tveimur árum. Ekki er greitt vegna annarra námskeiða.

15. HEIMILDARÁKVÆÐI VEGNA ANNARS HEILBRIGÐISKOSTNAÐAR:

Sjóðsstjórn er heimilt að styrkja sérstaklega sjóðsfélaga vegna annars heilbrigðiskostnaðar í tengslum við áföll, slys eða sjúkdóma á sama hátt og í liðum hér að framan að hámarki kr. 100.000 á hverjum tveimur árum. Að jafnaði er ekki greitt vegna lyfja- og annars heilbrigðiskostnaðar sem gildir uppí afsláttarkort hjá TR.

16. TANNVIÐGERÐIR:

Greidd eru 30% af útlögðum kostnaði vegna tannviðgerða (hreinar fegrunaraðgerðir undanskildar) ef kostnaður er umfram kr. 75.000 (fyrir hverja umsókn). Hámarksstyrkur er þó kr. 200.000 á ársgrundvelli.

17. HEIMILDARÁKVÆÐI:

Sjóðsstjórn er heimilt: að veita sjóðsfélaga sérstakan styrk samkvæmt mati ef hann hefur orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna slyss eða sjúkdóms hans, maka eða barna eða fráfalls nákomins.

18. GILDISTAKA:

Úthlutunarreglur þessar voru samþykktar í stjórn Fíh 9. mars 2010 og gilda þar til sjóðsstjórn hefur breytt reglum, stjórn Fíh samþykkt þær og þær verið birtar.

19. BIRTING:

Úthlutunarreglur þessar, breytingar á þeim og nýjar úthlutunarreglur - skal birta opinberlega á vettvangi Fíh, t.d. í á heimasíðu félagsins.