9. mars 2010.

1. INNGANGUR

Um rétt sjóðsfélaga og skipulag sjóðsins gilda starfsreglur Styrktarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (StFíh), samþykktar til á stjórnarfundi Fíh 9. mars 2010. Samkvæmt 5. gr. þeirra setur sjóðsstjórn nánari úthlutunarreglur og tekur við sérstakar aðstæður matskennda ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum.

2. SJÓÐSAÐILD

Almenn réttindi: Réttur til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag vegna sjóðsfélaga samtals í 6 mánuði og þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap varð eða til útgjalda, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, var stofnað. Þó öðlast sá rétt strax sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr sjúkrasjóð Fíh er hann verður sjóðsfélagi í styrktarsjóð Fíh. Sama gildir um þá sem öðlast hafa rétt úr styrktar-og sjúkrasjóðum annarra stéttarfélaga sem veita fyrrum sjóðfélögum úr StFíh sams konar rétt. Nýr réttur stofnast ekki vegna lausnarlauna.

a. Í fæðingarorlofi: Sjóðsfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða stéttarfélagsgjald meðan á því stendur halda fullum réttindum.

b. Í veikindum: Sjóðsfélagi sem hefur fullnýtt rétt sinn til dagpeninga nýtur áfram annarra réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár stofni hann ekki til réttinda annars staðar.

c. Atvinnulausir: Einstaklingar með full réttindi við upphaf atvinnuleysis halda réttindum sínum í eitt ár, enda hefjist bótatímabil eða til útgjalda sé stofnað innan árs frá upphafi atvinnuleysis. Skilyrði er að greitt sé félagsgjald til viðkomandi stéttarfélags.

d. Aðild í launalausu leyfi: Sjóðsfélagar halda réttindum í launalausu leyfi í allt að þrjá mánuði. Styrkréttur miðast þó við að viðkomandi hafi hafið störf að nýju. Ekki eru greiddir sjúkradagpeningar vegna veikinda í launalausu leyfi.

e. Aðild við starfslok: Sjóðsfélagar halda réttindum í 12 mánuði eftir að þeir láta af störfum og fara á lífeyri. Sjúkradagpeningar eru þó ekki greiddir lengur en í þrjá mánuði.

3. UMSÓKNIR OG GÖGN

a. Umsóknir: Sækja þarf um styrk til sjóðsins á sérstöku umsóknareyðublaði. Styrkumsóknir eru afgreiddar einu sinni í hverjum mánuði. Umsóknum skal skilað inn fyrir 10. hvers mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Lokadagur til að sækja um og skila gögnum vegna umsókna sem miðast við almanaksár er 9. des.

b. Afgreiðsla umsókna: Starfsmenn sjóðsins afgreiða umsóknir samkvæmt úthlutunarreglum þessum nema sérstaklega sé tekið fram í einstökum ákvæðum að sjóðstjórn taki matskennda ákvörðun. Ef sjóðsfélagi sættir sig ekki við ákvörðun starfsmanna sjóðsins, á hann ávallt rétt á að vísa máli sínu til stjórnar StFíh.

c. Gögn: Nauðsynleg gögn verða að liggja fyrir til að sjóðsfélagi geti fengið greitt úr sjóðnum. Þessi gögn eru: Frumrit sundurliðaðra reikninga sem sannanlega eru greiddir, með nafni umsækjanda. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess sem gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn, starfsheiti, kennitölu og heimilisfang eða símanúmer. Fjöldi skipta og dagsetningar meðferða eða kaupa á vöru eða þjónustu skal koma fram á reikningnum.

d. Framhaldsumsókn um dagpeninga: Þegar sótt er um framhaldsgreiðslu dagpeninga úr styrktarsjóði Fíh þarf sjóðsfélagi að skila inn tilkynningu um óvinnufærni í hverjum mánuði. Skila þarf inn vottorði heilbrigðisstarfsmanns fyrir þann tíma sem sótt er um.

e. Upphæð styrks: Ekki eru greiddir hærri styrkir en sem nemur framlögðum reikningum. Staðgreiðsla skatta er tekin af styrkfjárhæðum.

f. Fyrning umsókna: Réttur til greiðslna úr sjóðnum fyrnist sé ekki sótt um þær innan 12 mánaða frá því að til útgjalda var stofnað eða tekjutap varð. Réttur til greiðslu samkvæmt ákvörðun sjóðstjórnar eða starfsmanns sjóðsins fyrnist ef hennar hefur ekki verið vitjað innan 9 mánaða frá því að tilkynning um úthlutunarrétt var send til viðkomandi.

g. Skilgreiningar:

i. Með barni í reglum þessum er auk kynbarns, kjörbarns og fósturbarns átt við stjúpbarn og barnabarn sem býr á heimili sjóðsfélaga eða þarfnast greinilega umönnunar sjóðsfélaga.

ii. Með langtímaveikindum er átt við veikindi sem vara samfellt lengur en í 30 almanaksdaga.

4. DAGPENINGAR VEGNA ÓLAUNAÐRAR FJARVERU FRÁ VINNU

Mánaðargreiðsla miðast við starfshlutfall við upphaf veikinda. Full mánaðargreiðsla er kr. 216.700 reiknuð sem er kr. 10.000 fyrir hvern virkan dag eða 21,67 daga. Dagpeningar eru greiddir til viðbótar sjúkradagpeningum og/eða örorkulífeyri frá TR, lífeyrissjóði eða öðrum greiðslum sem rekja má til fjarveru frá vinnu. Sjá þó grein 4 d vegna atvinnulausra.

Samanlagðar greiðslur sjóðsins og ofangreindra aðila skulu þó aldrei nema hærri fjárhæð en tekjutap sem hefur orðið.

a. Veikindi eða slys sjóðsfélaga: Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að eitt ár samanlagt vegna veikinda eða slysa sjóðsfélaga, þegar veikindarétti samkvæmt kjarasamningum sleppir. Sjóðsfélagi öðlast rétt til dagpeninga að nýju eftir 6 mánaða iðgjaldagreiðslu eftir að fyrra bótatímabili lýkur.

b. Veikindi barns sjóðsfélaga: Hægt er að sækja um styrk til sjóðstjórnar í kjölfar veikinda barns. Sjóðstjórn metur hvert einstakt tilvik fyrir sig með hliðsjón af öllum aðstæðum, þ.m.t. annarra styrkja.

c. Veikindi maka sjóðsfélaga: Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að 2 mánuði vegna fjarveru frá vinnu vegna alvarlegra langtímaveikinda maka eða sambúðarmaka. Þó er ekki greitt fyrir fyrstu 10 dagana í veikindum.

d. Atvinnulausir: Sjúkradagpeningar geta aldrei numið hærri upphæð en atvinnuleysisbætur sem fallið hafa niður.

e. Fráfall nákominna: Við fráfall maka, sambúðarmaka eða barns greiðir sjóðurinn dagpeninga í allt að 2 vinnuvikur ef starfsmanni er ekki heimiluð fjarvera án skerðingar á launum. Sama gildir um fráfall annarra nákominna.

f. Annað: Greiddir eru dagpeningar vegna læknisrannsókna sem undanfari frekari aðgerða, líffæragjafar, aðgerða sem taldar eru nauðsynlegar að mati læknis, glasa- og tæknifrjóvgunar og áfengis- og fíkniefnameðferðar í allt að 45 daga.

5. ANDLÁT SJÓÐSFÉLAGA

Útfararstyrkur: Greiddur er útfararstyrkur vegna andláts greiðandi sjóðsfélaga

kr. 250.000 til þess aðila er útförina annast. Sama gildir um sjóðsfélaga sem látið hefur af störfum vegna aldurs og andast innan árs frá því að hann lætur af störfum.



6. ÚTLAGÐUR KOSTNAÐUR VEGNA MEÐFERÐAR Á LÍKAMA OG SÁL

Endurgreitt er samtals fyrir liði a) til c) að hámarki kr. 30.000 á hverju almanaksári.

Greiddir eru eftirfarandi liðir:

a. Áhættumat hjá Hjartavernd, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, sjúkranudd, meðferð hjá kírópraktor eða sambærileg meðferð hjá löggiltum heilbrigðisstarfsmanni.

b. Sálfræðiþjónusta, hjúkrunarmeðferð, félagsráðgjöf, næringarráðgjöf eða sambærileg meðferð hjá löggiltum heilbrigðisstarfsmanni.

Vegna liða a) og b): Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.

c. Kostnaður vegna námskeiða til að hætta að reykja.

Ath. Önnur námskeið eru almennt ekki styrkt.

7. DVÖL TIL ENDURHÆFINGAR Á HEILSUSTOFNUN NLFÍ AÐ LÆKNISRÁÐI

Greitt er 30% af reikningi. Hámarksstyrkur er kr. 50.000 á tveggja ára fresti.



8. LÍKAMSRÆKTARSTYRKUR

Veittur er líkamsræktarstyrkur að hámarki kr. 20.000 á hverju almanaksári. Einungis er greitt fyrir líkamsrækt sem sjóðsfélagi einn getur nýtt sér.

9. GLERAUGU OG AUGNAÐGERÐIR

a. Greiddur er staðlaður styrkur að fjárhæð kr. 50.000 vegna “laser”- aðgerða á öðru auga eða kr. 100.000 á báðum augum.

b. Greidd eru að hámarki kr. 25.000 af gleraugnaverði (glerjum og umgjörð) á þriggja ára fresti. Nýta má styrkréttinn til linsukaupa í stað gleraugna.

10. HEYRNARTÆKI

Greiddur er styrkur til kaupa á heyrnartækjum, allt að 30% af upphæð reiknings að frádregnum styrk Tryggingastofnunar. Styrkur er veittur á þriggja ára fresti. Hámarksstyrkur er kr. 100.000.

11. TANNVIÐGERÐIR

Greidd eru 30% af útlögðum tannlæknakostnaði ef hann fer umfram kr. 75.000 (fyrir hverja umsókn). Hámarksstyrkur á hverju almanaksári er 200.000 kr.

Hreinar fegrunaraðgerðir eru undanskildar. Reikningar mega vera allt að 12 mán. gamlir miðað við umsóknardag.

12. GLASA- EÐA TÆKNIFRJÓVGUN

Greitt er 30% af reikningi vegna tækni-, smásjár- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf ekki innifalin). Hámarksstyrkur er 120.000 kr. á almanaksári.

13. KRABBAMEINSLEIT

Reglubundin krabbameinsleit (kembileit) er styrkt að fullu. Þurfi sjóðsfélagi að fara í framhaldsrannsókn greiðir sjóðurinn þann kostnað einnig, að hámarki kr. 10.000. Ennfremur er greitt vegna krabbameinsskoðunar í ristli að hámarki kr. 10.000, sama gildir um skoðun á blöðruhálskirtli.

14. FERÐASTYRKUR

Hægt er að sækja um styrk til utanfarar í lækningaskyni vegna alvarlegra veikinda sjóðsfélaga, maka eða barna hans ef almannatryggingar taka ekki þátt í kostnaði.

15. HJÁLP VEGNA STARFSTENGDRA ÁFALLA EÐA ÓVÆNTRA STARFSLOKA

Sjóðurinn styrkir meðferð, allt að átta skipti, hjá fagmanni til að vinna úr áfalli í starfi eða í kjölfar óvæntra starfsloka samkvæmt beiðni trúnaðarmanns/stéttarfélags.

16. HEILBRIGÐISKOSTNAÐUR

Að jafnaði er ekki greitt vegna lyfjakostnaðar eða annars heilbrigðiskostnaðar sem gildir upp í afsláttarkort hjá TR. Við sérstakar aðstæður, s.s. óvænt mikil útgjöld og/eða fjárhagslega erfiðleika af þessum sökum, er þó hægt að sækja um styrk til sjóðsstjórnar. Að jafnaði er ekki greitt vegna lægri fjárhæðar en kr. 100.000. Ekki er greiddur kostnaður vegna fegrunaraðgerða.

17. FÆÐINGARSTYRKUR

a.  Báðir foreldrar eiga rétt séu þeir aðilar að sjóðnum og uppfylla skilyrði um sjóðsaðild.

Börn fædd 2010 og 2011 Sækja þarf um innan árs frá fæðingu barns. Fæðingarstyrkur er
veittur til foreldris gegn framvísun fæðingarvottorðs og afriti af nýjum launaseðli (með réttu
starfshlutfali).

Styrkurinn er kr. 200.000 til foreldris vegna hvers barns í hlutfalli við starfshlutfall.

Börn fædd 2009 Sækja þarf um styrkinn fyrir 18 mánaða aldur barns/barna.
Fæðingarstyrkur er veittur til foreldris gegn framvísun fæðingarvottorðs og afriti af nýjum
launaseðli (með réttu starfshlutfalli).
Styrkurinn er kr. 170.000 til foreldris vegna hvers barns í hlutfalli við starfshlutfall.

b. Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.

18. VILLANDI- EÐA RANGAR UPPLÝSINGAR:

Sá sem gefur rangar eða villandi upplýsingar eða lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar, missir rétt til bóta í allt að tvö ár samkvæmt ákvörðun stjórnar. Í slíkum tilfellum er sjóðsstjórn heimilt að endurkrefja bótaþega um alla bótafjárhæðina auk dráttarvaxta.

19. GILDISTAKA

Úthlutunarreglur þessar voru samþykktar í stjórn Fíh 9. mars 2010 og gilda þar til sjóðsstjórn hefur breytt reglum, stjórn Fíh samþykkt þær og þær verið birtar.

20. BIRTING

Úthlutunarreglur þessar, breytingar á þeim og nýjar úthlutunarreglur - skal birta opinberlega á vettvangi Fíh t.d. á heimasíðu félagsins.