Svæðisdeildir//
Svæðisdeildir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Félagið skiptist í eftirfarandi svæðisdeildir: Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands, Austurlands, Suðurlands og Suðurnesja.
Staðsetning vinnustaðar félagsmanns ákvarðar hvaða svæðisdeild hann tilheyrir. Ef félagsmaður er ekki í vinnuréttarlegu sambandi miðast aðild hans að tiltekinni svæðisdeild við lögheimili hans.
Hlutverk svæðisdeilda er fyrst og fremst að vinna að kjara- og réttindamálum í umdæmi sínu og styðja við störf trúnaðarmanna. Svæðisdeildir eru jafnframt vettvangur fræðslu í samstarfi við fagdeildir félagsins og félagsstarfs félagsmanna á hverju svæði.

