Vesturlandsdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Hlutverk og starfsreglur
1.grein
Heiti:
Nafn deildarinnar er Vesturlandsdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (VFíh).
2.grein
Félagar:
Umdæmi deildarinnar samsvarar heilbrigðisumdæmi Vesturlands (samanb. reglugerð heilbrigðisráðuneytisins nr 785/2007). Staðsetning vinnustaðar félagsmanna ákvaðar hvaða svæðisdeild hann tilheyrir. Ef félagsmaður er ekki í vinnuréttarlegu sambandi miðast aðild hans að tiltekinni svæðisdeild við lögheimili hans.
3. grein
Hlutverk:
Hlutverk deildarinnar er fyrst og fremst að vinna að kjara- og réttindamálum í umdæmi sínu og styðja við störf trúnaðarmanna. Svæðisdeildir eru jafnframt vettvangur fræðslu í samstarfi við fagdeildir félagsins og félagsstarfs félagsmanna á svæðinu.
4. grein
Stjórn:
Í stjórn svæðisdeildar sitja þrír aðalmenn og tveir til vara, tvö ár í senn. Stjórn svæðisdeildar er kjörin á aðalfundi deildarinnar. Á oddatöluári er kosinn formaður og einn aðalmaður en á sléttu ártali er kosinn einn aðalmaður og tveir varamenn. Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum gjaldkera og ritara. Endurkjör stjórnar, að hluta eða allrar, er heimil einnig tilfærsla varamann yfir í að vera aðalmenn í stjórn. Fulltrúi svæðisdeildar situr í stjórn Fíh.
5.grein
Helstu verkefni stjórnar:
1. Félagsfundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir. Halda skal gerðarbók um það sem fjallað er um á félagsfundum.
2. Stjórnin skal halda fundi svo oft sem þurfa þykir. Halda skal gerðarbók á stjórnarfundum.
3. Stjórnin skal skila ársskýrslu um starfsemi deildarinnar sem samþykkt hefur verið á aðalfundi, til stjórnar Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Skýrslan skal einnig send til sviðstjóra kjara- og réttindasviðs Fíh.
4. Stjórnin setur fram starfsemis- og fjárhagsáætlun fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Ákvarðanir um viðburði og staðsetningu einstakra viðburða í störfum deildarinnar svo og fjárveitingar vegna þeirra eru teknar af stjórn deildarinnar, í samræmi við fjárveitingar til deildarinnar. Æskilegt er að stjórnin standi fyrir að lágmarki tveimur viðburðum á hverju starfsári.
5. Stjórn deildarinnar skal kappkosta að sitja aðalfund Fíh ár hvert.
6. Stjórn deildarinnar skal styðja við störf trúnaðarmanna í umdæminu eftir þörfum hverju sinni.
7. Aðalfundur: sjá grein 6.
6.grein
Aðalfundur:
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar Aðalfund skal halda ár hvert fyrir lok marsmánaðar. Boða skal til hans með minnst fjagra vikna fyrirvara og telst hann löglegur sé löglega til hans boðað. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og tilögur sem leggja á fyrir fundinn.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla formanns fyrir liðið starfsár.
2. Skýrsla fulltrúa deildar í stjórn Fíh.
3. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram til samþykkis.
4. Fundargerðir félagsfunda lesnar upp og lagðar fram til samþykkis.
5. Breytingar á starfsreglum.
6. Kjör formanns.
7. Kjör stjórnar.
8. Kjör tveggja skoðunarmanna.
9. Önnur mál.
7.grein
Breyting á starfsreglum:
Breytingar á starfsreglum fara fram á aðlfundi og þarf til þess einfaldan meirihluta greiddra atkvæða. Löglega boðaður aðalfundur hefur óskorðað vald til afgreiðslu mála án tillit til þess hversu margir fundarmenn eru mættir. Breytingartillögur þurfa að berast skriflega til stjórnar með minnst viku fyrirvara.
8.grein
Reikningar:
Reikningsár deildarinnar er almanaksárið. Kjörnir endurskoðendur skulu yfirfara reikninga deildarinnar fyrir aðalfund og gera athugasemdir ef þurfa þykir.
9. grein
Gildi starfsreglna:
Um annað en kemur fram í starfsreglum þessum gilda lög Fíh. Starfsreglur þessar eru samþykktar á aðalfundi VFíh 24. mars 2011 og öðlast þegar gildi.
