Aðrar ritrýndar greinar//

Aðrar ritrýndar greinar

Ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga hvetur höfunda einnig til að senda inn til ritrýni umræðugreinar, þar með taldar álitsgreinar og greinar sem byggjast á gagnrýnni umræðu um einhvern þátt er tengist hjúkrun jafnvel þótt þær byggi ekki á rannsóknargögnum eða noti kerfisbundna heimildarannsóknaraðferð. Þessar greinar skulu settar þannig upp:
Tilgangur: Bakgrunnur (viðfangsefnis): Aðferð (tekið fram að um umræðugrein sé að ræða eða álitsgrein t.d.); Niðurstöður; Umræður og ályktanir. Í mörgum tilvikum fer vel á því að setja niðurstöður, umræður og ályktanir saman í einn kafla með yfirskriftinni Niðurstöður og ályktanir.