Að þræla sér út í Noregi !!//
Í Morgunblaðinu 2. ágúst sl. var fjallað um vinnu íslenskra hjúkrunarfræðinga í Noregi undir fyrirsögninni „Þræla sér út í Noregi“, sem vel að merkja var ákveðin af blaðamanninum. Í greininni var meðal annars vitnað í hjúkrunarfræðing sem sagði að hægt væri að þéna um hálfa milljón á sjö til tíu dögum. Það leikur enginn vafi á því að gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri norsku gerir það að verkum að laun sem greidd eru í norskum krónum margfaldast þegar komið er með þau hingað til lands. Það er hins vegar mikilvægt í þessu eins og öðru að bera saman sambærilega hluti.
Ástæður þess að íslenskir hjúkrunarfræðingar sækja til Noregs eru margar. Launin eru betri í Noregi, þó ekki muni miklu ef viðkomandi er t.d. fastráðinn á bráðamóttöku á sjúkrahúsi í Osló annars vegar eða á LSH hins vegar og vinnur sambærilegar vaktir. Vikuleg vinnuskylda í Noregi er styttri en á Íslandi og þó dýrara sé að lifa í Noregi ber þó flestum saman um að einhvern veginn verði meira úr laununum þar en hér á landi. Það kann að helgast af ólíku lífsmynstri eins og notkun á bíl og almenningsfarartækjum. Mesti munurinn fyrir þá íslensku hjúkrunarfræðinga sem fastráða sig í Noregi virðist þó vera að þar er mun minna vinnuálag og í mörgum tilvikum mun betri starfsaðstæður.
Þeir íslensku hjúkrunarfræðingar sem fara til Noregs í vinnutúra geta hins vegar fengið góð laun þegar hægt er að margfalda þau við heimkomuna með 21,3 eins og seðlagengið er þegar þessi pistill er skrifaður. Ef síðan farið er til starfa t.d. á hjúkrunarheimilum í norður Noregi er hægt að fá mikla vinnu, langar vaktir og fjölda aukavakta. Þá er hægt að fá há laun á stuttum tíma reiknuð í íslenskum krónum.
Það er skiljanlegt að hjúkrunarfræðingar grípi tækifæri sem gefast í þessum efnum. Íslenskir hjúkrunarfræðingar eru vel menntaðir og eftirsóttir. Hætta er á því að landflóttinn eigi bara eftir að aukast ef ekki fer að rofa til hér á landi. Laun hjúkrunarfræðinga verða að hækka ef vilji er til að standast samkeppnina um þekkingu þeirra og færni. Það verður líka að auka mönnun hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum og öðrum heilbrigðisstofnunum til að minnka álagið og tryggja gæði þjónustunnar. Aðeins með sambærilegum launum og sambærilegri mönnun og gerist í samkeppnislöndunum, er hægt að tryggja að hér á landi verði áfram veitt sú hágæða hjúkrunarþjónusta sem byggst hefur upp og landsmenn hafa notið.
Til baka
