Enn skorið niður//
Nú hefur fjármálaráðherra lagt fram frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012. Þar er lagt til að enn verði skorið niður í heilbrigðisþjónustunni, fjórða árið í röð. Landspítala (LSH) er gert að skera niður um 1,5% til viðbótar við 23% niðurskurð frá árinu 2007. Enn skal skorið niður þrátt fyrir að skurðaðgerðum hafi fjölgað um 4% frá í fyrra og að daglega liggi 41 sjúklingi fleira á spítalanum en á sama tíma í fyrra (skv. föstudagspistli forstjóra 16. september 2011).
Þegar rætt er um niðurskurð á LSH er eðlilega fyrsta spurningin hvort öryggi sjúklinga sé ógnað. Hingað til hefur landlæknir og stjórnendur spítalans svarað þeirri spurningu neitandi. Sjaldnar er spurt um öryggi starfsmanna. Ég tel að nú sé svo langt gengið í niðurskurði að velferð og öryggi hjúkrunarfræðinga gæti verið ógnað. Samkvæmt könnun á LSH, sem kynnt var á ráðstefnunni Hjúkrun 2011, segja 70% hjúkrunarfræðinga að álag sé mikið eða mjög mikið. Veikindi hjúkrunarfræðinga eru einnig tíðari en annarra stétta á spítalanum. Þessi breyting kemur skýrt fram í fyrirspurnum til félagsins. Meira er um ráðgjöf varðandi veikindarétt og fleiri hjúkrunarfræðingum en áður er bent á Virk, starfsendurhæfingarsjóð. Umsóknum um sjúkradagpeninga í styrktarsjóð hefur einnig fjölgað. Þetta eru allt skýrar vísbendingar um að hættuástand geti verið að skapast. Líðan hjúkrunarfræðinga og annarra starfsmanna hefur bein áhrif á líðan sjúklinganna og öryggi þjónustunnar. Hér þarf að grípa inn í ef spítalinn á ekki að veikjast innan frá. Styrkasta stoð heilbrigðisþjónustunnar er mannaflinn. Ef hann veikist hrynur kerfið fyrr en síðar.
Það er ekki bara á Landspítalanum sem skorið er niður. Á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni nemur niðurskurðurinn 8-9% og vandséð er hvernig halda á úti sjúkrahúsþjónustu t.d. á Húsavík og á Sauðárkróki þegar svo nærri rekstrargrundvelli stofnananna hefur verið gengið. Á Reykjalundi nemur niðurskurðurinn 18% frá hruni og enn á að skera niður um 2% á næsta ári. Á hjúkrunarheimilum er staðan orðin svo slæm að forstöðumenn eru í fullri alvöru farnir að tala um þjónustugjöld. Eins og gamla fólkið borgi ekki nóg nú þegar.
Það velkist enginn í vafa um að skera þarf niður í opinberri þjónustu í ljósi efnahagsástandsins. Hins vegar þarf að virða mat þeirra sem gerst þekkja á því hvenær komið er að bjargbrún. Að margra mati hefur verið gengið svo nærri heilbrigðiskerfinu, þessari mikilvægustu grunnstoð samfélagsins, að frekari niðurskurður mun valda óafturkræfum skaða. Það má ekki gerast.
Til baka
