Svört vinna – tap okkar allra//

 

Tíu milljarðar eru miklir peningar. Fyrir 10 milljarða er t.d. hægt að reka Landspítalann í nærri fjóra mánuði. Talið er að á ársgrundvelli verði ríkissjóður af 10 milljarða króna tekjum vegna svartrar atvinnustarfsemi. Við skoðun ríkisskattstjóra, ASÍ og SA kom í ljós að 12% þeirra starfsmanna sem skoðaðir voru reyndust vinna svart!

Þó maður skilji að einhverju leyti freistinguna að vinna svart og fá þannig meira í eigin vasa núna, er svört vinna svartur blettur á samfélaginu. Þeir sem vinna svart skila ekki því sem þeim ber í sameiginlega sjóði okkar allra, þ.e. í ríkiskassann og til sveitarfélaganna. Hinir sömu krefjast þó eflaust þjónustu t.d. leikskóla og grunnskóla og örugglega heilbrigðisþjónustu. Og hver stendur þá undir þeim kostnaði? Jú, einhverjir aðrir, einhverjir sem greiða sína skatta og skyldur.

Heildarkrafan um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu árið 2010 var þrír milljarðar, sem síðan var lækkuð niður í 1,3 milljarða. Eins og allir vita á enn að skera niður í heilbrigðiskerfinu því ekki er til nægilegt fé í ríkiskassanum. Það sverfur svo að heilbrigðisstofnunum að loka á sérhæfðri líknardeild fyrir aldraða og spara með því 50 milljónir á ársgrundvelli! Sú fjárhæð er aðeins 0,5% af því sem stolið er undan skatti með svartri atvinnustarfsemi. Er þetta nú í lagi? Verður ekki hver og einn að horfa í eigin barm og taka ábyrgð á sér og sínum? Getum við bara haft réttindi en ekki borið skyldur?

 

 


Til baka