Starfsfólki hrósað//

 

Hrós er eitt af jákvæðu öflunum í lífinu. Öll viljum við að okkur sé hrósað fyrir vel unnin störf. Hrós stjórnenda hefur til dæmis mikil áhrif á starfsánægju undirmanna. Hrós er samt vandmeðfarið og missir marks ef það er ofnotað. Því hefur meira að segja verið haldið fram að hér á landi séu að alast upp hrósfíklar, þ.e. að mörgum börnum hafi verið hrósað allt of mikið og fyrir ómerkilega eða venjulega hluti. Segja má að hrós sé auðlind sem beri að nýta af skynsemi og virðingu.

Mér hefur fundist áhugavert að hlusta á stjórnendur heilbrigðisstofnana undanfarið, þegar þeir ræða niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Menn lýsa allt að 20% niðurskurði eða meira og hrósa starfsfólkinu sérstaklega fyrir það hvernig til hefur tekist. Það er engum blöðum um það að fletta að heilbrigðisstarfsfólk á heiður skilinn fyrir störf sín á undanförnum misserum þegar starfsfólki hefur fækkað og launin jafnvel lækkað, á sama tíma og álag hefur aukist. Það er samt eitthvað öfugsnúið við það að hrósa fólki fyrir að lækka laun sín og auka álagið sem það býr við í vinnunni! Það er hins vegar full ástæða til að þakka fólki æðruleysið og framlag þess til þess að rétta þjóðarbúið við, á sama tíma og það reynir að veita hágæða þjónustu þar sem þarfir skjólstæðinganna og öryggi er í öndvegi.

 

 


Til baka