Nú hillir undir stefnu í heilbrigðismálum//
Velferðarráðherra kynnti fyrir stuttu niðurstöður ráðgjafahóps um skipulag heilbrigðisþjónustu og ráðstöfun fjármuna. Sú vinna sem liggur að baki þessari skýrslu var sannarlega löngu tímabær og mikið fagnaðarefni að nú liggi fyrir greining á og fyrstu tillögur um hvernig auka megi gæði heilbrigðisþjónustunnar og nýta á sama tíma fjármunina betur.
Flest það sem ráðgjafahópurinn bendir á að bæta þurfi í skipulagi og veitingu heilbrigðisþjónustunnar hefur reyndar komið fram áður í tillögum og athugasemdum nefnda og faghópa sem láta sig heilbrigðismál varða. Styrkur hinnar ný útkomnu skýrslu er hins vegar sá að þar er þessum tillögum og athugasemdum safnað saman og þær tengdar þáttum eins og aldurssamsetningu þjóðarinnar, búsetudreifingu, samgöngum og síðast en ekki síst fjármögnun heilbrigðiskerfisins og fjárveitingum til einstakra hluta þjónustunnar. Tillögur hópsins eru því raunhæfari og markvissari en margar þeirra tillagna sem áður hafa verið settar fram.
Ráðgjafahópurinn leggur fram ýmsar mikilsverðar tillögur til að auka gæði heilbrigðisþjónustunnar og fara betur með fé. Gerðar eru athugasemdir við innri skipulagsmál heilsugæslunnar, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Bent er á að auka þurfi teymisvinnu hjúkrunarfræðinga og lækna. Þessi athugasemd verður ekki skilin á annan veg en þann að efla beri þverfaglegt starf þannig að heilsugæslan standi undir nafni og verði annað og meira en bara læknamóttaka. Þá er bent á að vinna þurfi sérstaklega í skipulagi sérgreina- og öldrunarþjónustu, að þjónusta sérgreinalækna sé ofnotuð vegna skorts á þjónustustýringu, að lækka þurfi lyfjaverð, að bæta þurfi áætlanagerð- og árangursstjórnun og margt fleira. En þessi skýrsla ráðgjafahópsins er aðeins fyrsta skrefið. Nú er búið að greina vandann og benda á þá þætti sem þarf að skoða sérstaklega. Hópurinn leggur enda til að strax verði hafist handa, viðeigandi sérfræðingar og hagsmunaaðilar kallaðir til og að heildstæð framkvæmdaáætlun verði sett fram. Nú reynir á að menn hafi kjark og þor til að horfa fram í tímann og ákveða hver geri hvað, hvar hvað er gert og síðast en ekki síst hver greiði hvað.
Til baka
