Af stað eftir annasamt hlé!//

 Allt of langt er liðið síðan ég skrifaði síðasta pistil hér á vaktinni. Þetta hlé kom ekki til af efnisskorti, síður en svo. Í raun var það kannski hið gagnstæða því þegar allt er á fullu er það, sem ekki þarf nauðsynlega að klára í dag, sett á bið til morguns. Og þannig líða dagar, vikur og jafnvel mánuðir án þess að nokkuð birtist hér á vaktinni. Það er sannarlega ekki nógu gott og ekki það sem lagt var upp með. Formaður lofar bót og betrun.

Meðal þess sem hefur verið á efnislistanum hjá mér er áframhaldandi niðurskurður í heilbrigðisþjónustunni, breytingar hjá leiðtogum í hjúkrun, stóra brjóstapúðamálið og ýmislegt því tengt, og margt fleira. Ég ætla að tæpa á tveimur fyrstu atriðunum hér í þessum fyrsta pistli ársins. Hitt kemur innan tíðar.

Breytingar í heilbrigðiskerfinu samfara samþykkt fjárlaga fyrir árið 2012 hafa ekki farið hátt. Þó er áfram klipin af ein og ein staða eða samið við hjúkrunarfræðinga um að minnka starfshlutfall. Víða er svo komið að fjöldi hjúkrunarfræðinga er kominn í lágmark, þ.e. komið er niður í lágmarksfjölda til að hægt sé að manna þrískiptar vaktir. Stjórnendur heilbrigðisstofnana hafa nýlega skilað af sér svo kölluðum undanþágulistum í verkfalli þar sem kveðið er á um lágmarksfjölda hjúkrunarfræðinga sem hafa leyfi til starfa ef til verkfalls kæmi. Fíh hefur haft þessa lista til skoðunar og framundan er samanburður á þessu tvennu, mönnun í dag og undanþágulistanum. Mér býður í grun að á einhverjum stöðum sé gert ráð fyrir meiri mönnun hjúkrunarfræðinga í verkfalli en í venjulegum rekstri!

Sú merkilega staða er uppi að þrír framkvæmdastjórar hjúkrunar eru að láta af störfum á sama tíma, Anna Stefánsdóttir á Landspítala (LSH), Ólína Torfadóttir á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og Steinunn Sigurðardóttir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVe). Samtals fjórtán hjúkrunarfræðingar sóttu um þessar stöður, fimm á LSH, tveir á FSA og sjö á HVe. Þegar hefur verið ráðið í stöðuna á Akureyri en hinar tvær eru í umsagnarferli. Á næstu árum munu margar stöður framkvæmdastjóra hjúkrunar losna þegar þeir sem þær skipa nú fara á lífeyri. Mikil tækifæri eru því framundan fyrir unga hjúkrunarfræðinga til að hasla sér völl sem leiðtogar í hjúkrun. Verkefnin næstu árin eru líka næg. Vonandi fer að hilla undir það að uppbyggingarstarf hefjist að nýju eftir niðurskurðartímabil síðustu ára. Framþróun í hjúkrunarfræði er hröð og miklar breytingar þarf og er hægt að gera á hjúkrunarþjónustunni. Má þar meðal annars nefna tækifæri í heilsugæslunni, í öldrunarhjúkrun, á dag- og göngudeildum sjúkrahúsa og í einkarekstri. Sem sagt – fullt af tækifærum fyrir framsækið fólk.

 

 

 

 

 

 


Til baka