Lög FÍH//

 

 

Kafli I – Nafn félagsins og tilgangur

 

  1. gr. Nafn, heimili og varnarþing

Félagið heitir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, skammstafað Fíh. Starfssvæði þess er allt landið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

 

  1. gr. Tilgangur

Félagið er fag- og stéttarfélag hjúkrunarfræðinga. Tilgangur þess er:

1.    Að vera málsvari hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga og gæta hagsmuna þeirra.

2.    Að standa vörð um ímynd og sjálfstæði fags og stéttar, auka samstarf hjúkrunarfræðinga og efla fag- og stéttarvitund.

3.    Að semja við vinnuveitendur um kaup og kjör fyrir félagsmenn og um önnur atriði sem samningsumboð félagsins nær til á hverjum tíma.

4.    Að stuðla að þróun hjúkrunar sem fræðigreinar.

5.    Að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi hjúkrunarfræðinga til hagsbóta stéttinni.

6.    Að taka þátt í stefnumótun í heilbrigðismálum.

 

Kafli II – Aðild

 

  1. gr. Full aðild, fagaðild og aukaaðild

Rétt til fullrar aðildar að félaginu eiga þeir sem á grundvelli hjúkrunarlaga, nr. 8/1974, hafa leyfi til þess að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarfræðing.  Jafnframt þiggja þeir laun skv. kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd og/eða greiða  félagsgjöld af dagvinnulaunum og atvinnuveitandi greiði tilskilin gjöld í sjóði félagsins f.h. starfsmannsins. 

Rétt til fagaðildar að félaginu eiga þeir sem á grundvelli hjúkrunarlaga, nr. 8/1974, hafa leyfi til þess að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarfræðing en þiggja ekki laun samkvæmt kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd.

 

Rétt til aukaaðildar að félaginu eiga nemendur í hjúkrunarfræði sem lokið hafa fyrsta námsári í greininni við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri eða annan viðurkenndan háskóla. Nemendur í hjúkrunarfræði sem þiggja laun skv. kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd hafa rétt á að greiða atkvæði um viðkomandi kjarasamning.

 

  1. gr. Umsókn um aðild

Umsókn um aðild að félaginu skal vera skrifleg og skal lögð fyrir næsta fund stjórnar. Með umsókn skulu fylgja gögn sem sanna að skilyrðum til inngöngu sé fullnægt. Samþykki stjórn umsóknina miðast aðild við dagsetningu móttöku umsóknarinnar.

 

  1. gr. Úrsögn

Úrsögn úr félaginu skal fara fram með skriflegri tilkynningu til stjórnar og öðlast hún gildi þegar liðnir eru 3 mánuðir frá því að tilkynningin barst.

 

Úrsögn öðlast þó ekki gildi eftir að lögmæt ákvörðun um verkfall hefur verið tekin og á meðan á verkfalli stendur, heldur frestast gildistaka hennar þar til verkfalli er lokið.

 

  1. gr. Brottvikning

Stjórn félagsins getur vikið félagsmanni úr félaginu ef hann hefur að mati stjórnar brotið gegn lögum félagsins, siðareglum, öðrum reglum, samþykktum eða ákvörðunum. Viðkomandi félagsmanni skal veittur hæfilegur frestur til að skýra mál sitt skriflega og munnlega fyrir stjórn áður en ákvörðun um brottvikningu er tekin og er honum heimilt að koma með talsmann með sér á fund stjórnar óski hann þess. Ákvörðun stjórnar skal tilkynnt félagsmanni skriflega.

 

Félagsmaður getur, innan fjögurra vikna frá dagsetningu tilkynningar um ákvörðun stjórnar um brottvikningu, skotið ákvörðuninni til næsta félagsfundar. Skal þar greiða atkvæði um ákvörðun stjórnarinnar. Gefa skal félagsmanni kost á að skýra mál sitt á fundinum ef hann æskir þess. Verði ákvörðun stjórnar felld með einföldum meirihluta skal líta svo á að engin brottvísun hafi átt sér stað.

 

Sæki fyrrverandi félagsmaður um aðild að félaginu skv. 4. gr. laga þessara, eftir að honum hefur verið vikið brott skv. grein þessari, þarf samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra félagsmanna á félagsfundi til að veita honum aðild á ný.

 

  1. gr. Heiðursfélagar

Stjórn félagsins getur tilnefnt þann sem félagið vill sýna sérstaka virðingu heiðursfélaga og gert um það tillögu til aðalfundar. Tillagan telst samþykkt fái hún atkvæði meiri hluta atkvæðisbærra fundarmanna á fundinum. Félagsmenn geta komið með tillögu að tilnefningu til stjórnar.

 

Kafli III – Skipulag félagsins

 

  1. gr. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í maímánuði ár hvert. Tímasetningu aðalfundar skal auglýsa með minnst 8 vikna fyrirvara.

 

Stjórn félagsins skipuleggur og ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd aðalfundar.

 

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild skal boða til aðalfundar með bréfi eða auglýsingu í Tímariti hjúkrunarfræðinga, með minnst tveggja vikna fyrirvara. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins og skal frestur til skráningar þátttöku á fundinn koma þar fram, ásamt tilvísun í vefsvæði félagsins varðandi upplýsingar um þær tillögur til lagabreytinga sem lagðar hafa verið fram. Aðalfundur er lögmætur ef réttilega er til hans boðað.

 

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn með minnst viku fyrirvara hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.

 

Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins minnst 4 vikum fyrir aðalfund. Hið sama gildir um önnur mál sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á aðalfundi. Mál, sem ekki er tilgreint á útsendri dagskrá aðalfundar verður því aðeins tekið þar fyrir að meiri hluti atkvæðisbærra fundarmanna á fundinum samþykki það. Lagabreytingar verða ekki teknar fyrir nema þær fylgi fundarboði. Formlegar athugasemdir og tillögur til breytinga á fyrirliggjandi lagabreytingatillögum sem fram koma á aðalfundi verða bornar undir fundinn.

 

Viku fyrir aðalfund hið skemmsta skulu fundargögn vera aðgengileg félagsmönnum á rafrænu formi á vefsvæði félagsins, þ.m.t. skýrsla stjórnar, reikningar félagsins og sjóða á vegum þess, skýrslur endurskoðanda og skoðunarmanna, áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár og framboð til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa eftir því sem við á.

 

Þau mál sem taka skal fyrir á aðalfundi eru:

                                          i.    Kosning fundarstjóra og ritara, eftir tilnefningu stjórnar.

                                         ii.    Skýrsla stjórnar.

                                        iii.    Reikningar félagsins og sjóða á vegum þess.

                                       iv.    Ákvörðun um félagsgjöld.

                                        v.    Áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár lagðar fram.

                                       vi.    Tillögur til lagabreytinga.

                                      vii.    Starfsreglur fyrir sjóði og nefndir félagsins, svæðisdeildir og fagdeildir eða breytingar á þeim.

                                     viii.    Formannskjöri lýst.

                                       ix.    Kjöri fulltrúa svæðisdeilda lýst.

                                        x.    Kosning annarra stjórnarmanna.

                                       xi.    Kosning skoðunarmanna.

                                      xii.    Kosning í nefndir félagsins.

                                     xiii.    Önnur mál.

 

Halda skal gerðarbók um það sem fjallað er um á aðalfundi. Bóka skal sérstaklega allar samþykktir og ákvarðanir fundarins. Fundaritarar ganga frá fundargerð að loknum aðalfundi. Fundarstjórar og fundarritarar undirrita fundargerð.

 

Fundargerð aðalfundar skal birt á vefsvæði félagsins ekki seinna en viku eftir fundinn og veittur tveggja vikna frestur til athugasemda. Að þeim fresti liðnum telst fundargerð samþykkt og skal hún ásamt athugasemdum birt á vefsvæði félagsins.

 

  1. gr. Félagsfundur

Félagsfund skal halda hvenær sem stjórn félagsins eða formaður þess álítur það nauðsynlegt, svo og ef 50 eða fleiri félagsmenn æskja þess skriflega.

 

Félagsfund skal boða með almennri auglýsingu í að lágmarki einu dagblaði, sem hefur almenna útbreiðslu, með ekki skemmri en viku fyrirvara. Ef nauðsyn krefur má þó boða félagsfund með 24 klukkustunda fyrirvara og skal hann þá boðaður með ekki færri en þremur auglýsingum í ríkisútvarpi. Halda skal gerðarbók um það sem fjallað er um á félagsfundum. Bóka skal sérstaklega allar samþykktir og ákvarðanir fundarins.

 

Heimilt er að halda félagsfundi með notkun fjarfundabúnaðar og er fulltrúi svæðisdeildar í stjórn, eða formaður svæðisdeildar, þá ábyrgur fyrir framkvæmd fundarins á hverjum stað. Stjórn er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd slíkra funda.

 

  1. gr. Hjúkrunarþing

Á hjúkrunarþingi skal fjallað um fagleg og stefnumótandi viðfangsefni í hjúkrunar- og heilbrigðismálum. Skal slíkt þing haldið að jafnaði annað hvert ár.

 

  1. gr. Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skal skipuð 18 félagsmönnum: Formanni félagsins, fulltrúum hinna sjö svæðisdeilda, sjö fulltrúum fagdeilda og þremur félagsmönnum öðrum. Fulltrúar fagdeilda skulu kosnir beinni kosningu á aðalfundi. Fulltrúar svæðisdeilda eru kjörnir á vettvangi svæðisdeilda í aðdraganda aðalfundar og eru sjálfkjörnir í stjórnina. Þeir þrír félagsmenn sem ekki eru fulltrúar fag- eða svæðisdeilda eru kosnir á aðalfundi. Formaður er kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu, sbr. 13. gr. laga þessara.

 

Á hverju ári skal kjósa hluta stjórnar þannig að annað árið, þegar oddatala er, er kjörinn formaður og fulltrúar svæðisdeilda. Hitt árið eru kjörnir fulltrúar fagdeilda og þeir þrír félagsmenn sem kjörnir eru beinni kosningu á aðalfundi Aðeins getur einn fulltrúi sömu fagdeildar setið í stjórn sem fulltrúi fagdeildar.

 

Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár. Hámarks seta í stjórn félagsins er fjögur kjörtímabil samfellt.

Nýskipuð stjórn skiptir með sér verkum og kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera stjórnar. Ritari heldur gerðarbók stjórnar.

 

Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Hlutverk stjórnar er að móta stefnu og megináherslur félagsins í samræmi við stefnumörkun og ákvarðanir aðalfundar. Stjórn ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins og starfseminni gagnvart aðalfundi.

 

Stjórn félagsins skal funda eftir því sem ástæða þykir til en þó eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Boða skal til stjórnarfundar með minnst viku fyrirvara. Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi er þó heimilt að boða stjórnarfund með skemmri fyrirvara. Formanni er skylt að boða til stjórnarfundar innan viku ef fimm eða fleiri stjórnarmenn æskja þess. Sinni formaður ekki slíkri beiðni innan hins tilgreinda frests er stjórnarmönnum þeim sem óskuðu eftir stjórnarfundi heimilt að boða til fundarins með eins sólarhrings fyrirvara. Stjórnarfundir eru lögmætir ef mættur er meiri hluti stjórnarmanna.

 

Afl atkvæða ræður úrslitum í stjórn en falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.Stjórn félagsins getur efnt til allsherjaratkvæðagreiðslu um mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir aðalfund.

 

  1. gr. Formaður félagsins

Formaður ber ábyrgð á daglegri stjórn félagsins í samræmi við stefnu aðalfundar og stjórnar. Formaður félagsins er jafnframt formaður stjórnar. Hann er talsmaður félagsins og stjórnar þess.

 

Formaður kallar saman stjórn félagsins og stjórnar fundum hennar.

 

Kjörtímabil formanns er sama hið sama og kjörtímabil annarra stjórnarmanna. Sami einstaklingur getur að hámarki gegnt starfi formanns félagsins fimm kjörtímabil samfellt.

 

Formaður skal vera í fullu starfi hjá félaginu.

 

  1. gr. Formannskjör

Formaður félagsins er kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu.

 

Kjörnefnd skal auglýsa eftir frambjóðendum til formannskjörs eigi síðar en í janúarlok. Auglýsing skal birt í Tímariti hjúkrunarfræðinga og á vefsvæði félagsins. Framboðsfrestur skal eigi vera skemmri en 30 dagar. Einungis félagsmenn með fulla aðild og fagaðild eru kjörgengir í embætti formanns.

 

Láti formaður af embætti innan sex mánaða áður en kjörtímabili lýkur skal varaformaður taka við embætti formanns. Láti formaður af embætti þegar meira en sex mánuðir eru eftir af kjörtímabili hans skal kjörnefnd efna til formannskjörs í samræmi við 2. mgr. Formannskjöri skal vera lokið innan fjögurra mánaða frá því sitjandi formaður lét af embætti. Kjörtímabil hins nýja formanns skal vera hið sama og fráfarandi formanns.

 

 

  1. gr. Skipulag starfsemi félagsins

Starfsemi félagsins skiptist í kjara- og réttindasvið annars vegar og fagsvið hins vegar. Stjórn félagsins ræður sviðsstjóra á hvort svið fyrir sig.  

 

Kjara- og réttindasvið ber ábyrgð á því sem viðkemur kjara- og réttindamálum félagsmanna og skal vera stjórn og félagsmönnum til upplýsinga og ráðgjafar. Undir kjara- og réttindasvið falla m.a. vinnuverndarmál.

 

Fagsvið ber ábyrgð á framkvæmd stefnu félagsins í faglegum málum þess. Undir sviðið falla m.a. gæðamál og siða- og sáttamál.

 

Stjórn félagsins skal setja sviðum félagsins nánari starfsreglur sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

Félagið rekur skrifstofu og er stjórn heimilt að ráða til starfa aðila sem ábyrgur er fyrir daglegum rekstri skrifstofunnar. Stjórn félagsins ræður aðra starfsmenn skrifstofunnar eftir tillögum formanns.

 

  1. gr. Svæðisdeildir

Félagið skiptist í eftirfarandi svæðisdeildir:

i)              Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins

ii)             Svæðisdeild Vesturlands

iii)            Svæðisdeild Vestfjarða

iv)           Svæðisdeild Norðurlands

v)            Svæðisdeild Austurlands

vi)           Svæðisdeild Suðurlands

vii)          Svæðisdeild Suðurnesja

 

Staðsetning vinnustaðar félagsmanns ákvarðar hvaða svæðisdeild hann tilheyrir. Ef félagsmaður er ekki í vinnuréttarlegu sambandi miðast aðild hans að tiltekinni svæðisdeild við lögheimili hans. Eigi félagsmaður lögheimili í annarri svæðisdeild en vinnustaður ákvarðar er honum einnig heimil aðild að þeirri svæðisdeild. Við útreikning fjárveitinga til svæðisdeildanna skal þó miða við hið vinnuréttarlega samband.

 

Svæðisdeildir skulu starfa í samræmi við starfsreglur sem stjórn félagsins setur og aðalfundur samþykkt. Hlutverk svæðisdeilda er fyrst og fremst að vinna að kjara- og réttindamálum í umdæmi sínu í samvinnu við kjara- og réttindasvið félagsins. Hver svæðisdeild ber ábyrgð á innra skipulagi sínu. Meðal verkefna svæðisdeilda er að styðja við starf trúnaðarmanna í sínu heilbrigðisumdæmi. Stjórn svæðisdeilda skal skila skýrslu um starfsemina til stjórnar félagsins fyrir lok marsmánaðar ár hvert.

 

  1. gr. Fagdeildir

Félagsmönnum, þó að lágmarki 25 saman, er heimilt að stofna sérstakar fagdeildir á fagsviði sínu og skulu þær starfa á landsvísu.

 

Fagdeildir skulu starfa í samræmi við starfsreglur sem stjórn félagsins setur og aðalfundur hefur samþykkt.

 

Fagdeildir vinna að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sviði í samvinnu við fagsvið félagsins og skulu m.a. vera stjórn félagsins og nefndum til ráðgjafar. Stofnun fagdeildar skal borin upp til samþykktar á aðalfundi félagsins. Fagdeild er skylt að skila skýrslu um starfsemina til stjórnar félagsins fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Skili fagdeild ekki slíkri skýrslu tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins ákveðið að leggja hana niður.

 

  1. gr. Öldungadeild

Heimilt er að starfrækja deild öldunga innan félagsins.

 

Kafli IV –Félagsmenn

 

  1. gr. Réttindi og skyldur

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild hafa málfrelsi, tillögurétt og rétt til að greiða atkvæði á aðalfundi, félagsfundum og í allsherjaratkvæðagreiðslum ef lög þessi eða landslög kveða ekki á um aðra skipan. Réttur til að greiða atkvæði á aðalfundi er háður því að félagsmaður hafi skráð sig til þátttöku með þeim fyrirvara sem mælt er fyrir um í lögum þessum.

 

Félagsmenn með fulla aðild og fagaðild eru kjörgengir í stjórnir og nefndir á vegum félagsins ef lög þessi eða landslög kveða ekki á um aðra skipan.

 

Félagsmenn með fulla aðild en þiggja ekki laun skv. kjarasamningi Fíh hafa ekki ákvörðunarvald um kjaramál.

Félagsmenn með fagaðild hafa ekki ákvörðunarvald um kjaramál. Lífeyrisþegar teljast til fagaðila.

 

Félagsmenn með aukaaðild hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum í félaginu en hafa ekki atkvæðisrétt og eru ekki kjörgengir.

 

Um rétt félagsmanna til að sækja um styrki úr sjóðum félagsins og sjóðum sem félagið hefur umsjón með fer samkvæmt þeim reglum sem gilda um viðkomandi sjóði, sbr. VI. kafla laga þessara.

 

Öllum félagsmönnum ber að virða lög og reglur félagsins, samþykktir og ákvarðanir funda þess og stjórnar og siðareglur félagsins.

 

  1. gr. Félagsgjöld

Félagsmönnum er skylt að greiða það félagsgjald sem ákveðið er á aðalfundi en stjórn félagsins gerir tillögu um félagsgjald vegna fullrar aðildar, fagaðildar og aukaaðildar til aðalfundar.

 

Stjórn félagsins er þó heimilt að undanþiggja einstaka félagsmenn skyldu til greiðslu félagsgjalda að fullu ef gildar ástæður mæla með því.

 

Lífeyrisþegar greiða fagaðildargjald.

 

Heiðursfélagar greiða ekki félagsgjöld en njóta allra þeirra réttinda sem lög þessi og landslög leyfa.

 

Nýir félagsmenn skulu greiða félagsgjöld í hlutfalli við þann tíma af árinu sem þeir eru félagar. Félagsmaður, sem ekki greiðir félagsgjöld í 2 ár, missir öll réttindi í félaginu þar til skuldin er að fullu greidd.

 

Kafli V – Nefndir

 

  1. gr. Kjörnefnd

Starfandi skal vera kjörnefnd skipuð þremur fulltrúum og einum til vara sem kosnir eru á aðalfundi þegar ártal er oddatala.

 

Kjörnefnd skal annast undirbúning og framkvæmd formannskjörs og kosninga til stjórnar félagsins, í nefndir þess og önnur þau störf sem kosið er um. Nefndin veitir framboðum viðtöku og tryggir að unnt sé að manna embætti á vegum félagsins. Nefndin útbýr lista yfir frambjóðendur og önnur kjörgögn eftir því sem þörf er á. Framboð til stjórnar og annarra embætta sem kosið er í á aðalfundi skulu birt á vefsvæði félagsins minnst viku fyrir aðalfund.

 

Kjörnefnd annast jafnframt aðrar atkvæðagreiðslur á vegum félagsins sem stjórn felur henni. Kjörnefnd annast talningu atkvæða og sker úr vafamálum.

 

Skal nefndin skila greinargerð um störf hvers árs til stjórnar félagsins fyrir lok marsmánaðar næsta árs.

 

  1. gr. Samninganefnd

Starfandi skal vera samninganefnd skipuð af stjórn félagsins. Starfstími samninganefndar hverju sinni skal ákveðinn af stjórn.

 

Samninganefnd annast gerð kjarasamninga við viðsemjendur félagsins og skal starfa með kjara- og réttindasviði og trúnaðarmönnum í hverju umdæmi.

 

Stjórn félagsins skal setja samninganefnd reglur sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

  1. gr. Sérskipaðar nefndir

Heimilt er stjórn að skipa sérstakar nefndir um einstök málefni eða málaflokka. Skal þá jafnframt setja nefndarmönnum skipunarbréf þar sem hlutverk þeirra, starfsskyldur, skipunartími og umboð er skilgreint.

 

Kafli VI – Stjórnir sjóða

 

  1. gr. Vísindasjóður

Til Vísindasjóðs renna framlög vinnuveitenda á grundvelli kjarasamninga.

 

Í stjórn Vísindasjóðs sitja gjaldkeri stjórnar, sviðsstjóri fagsviðs og tveir fulltrúar skipaðir af stjórn félagsins.

 

Stjórn Vísindasjóðs skal skipuð til tveggja ára í senn.

 

Stjórn félagsins skal setja starfsreglur um sjóðinn sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

  1. gr. Orlofssjóður

Til Orlofssjóðs renna framlög vinnuveitenda á grundvelli kjarasamninga.

 

Stjórn orlofssjóðs skal skipuð fimm fulltrúum sem kjörnir eru á aðalfundi úr hópi þeirra félagsmanna sem rétt eiga, samkvæmt starfsreglum, til úthlutunar úr sjóðnum.

 

Stjórn Orlofssjóðs skal skipuð til tveggja ára í senn þegar ártal er oddatala.

 

Stjórn félagsins skal setja starfsreglur um sjóðinn sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

  1. gr. Starfsmenntunarsjóður

Til Starfsmenntunarsjóðs renna framlög vinnuveitanda á grundvelli kjarasamninga.

 

Í stjórn Starfsmenntunarsjóðs sitja fjórir fulltrúar, þar af tveir fulltrúar skipaðir af stjórn félagsins úr hópi félagsmanna sem við skipun eiga rétt, samkvæmt starfsreglum, til úthlutunar úr sjóðnum.

 

Stjórnarmenn f.h. félagsins eru skipaðir til fjögurra ára í senn.

 

Stjórn sjóðsins skal setja starfsreglur um sjóðinn sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

  1. gr.Vinnudeilusjóður

Starfrækja skal Vinnudeilusjóð innan félagsins.

 

Stjórn félagsins skipar þrjá félagsmenn og tvo til vara í stjórn sjóðsins.

 

Stjórn félagsins setur Vinnudeilusjóði starfsreglur sem lagðar skulu fyrir aðalfund til samþykktar.

 

Kafli VII – Útgáfustarfsemi

 

  1. gr. Almennt

Allt efni sem birtist á prenti, í rafrænum miðlum, ljósvakamiðlum, á ráðstefnum o.fl. auk minjagripa telst vera útgáfa félagsins.

 

Stjórn félagsins setur reglur um útgáfumál.

 

  1. gr. Tímarit hjúkrunarfræðinga, ritnefnd og ritstjóri

Félagið gefur út tímarit sem nefnist Tímarit hjúkrunarfræðinga.

 

Ritnefnd skal skipuð sjö félagsmönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Á hverju ári skal kjósa hluta ritnefndar þannig að annað árið þegar oddatala er, eru kjörnir 4 fulltrúar og þegar jöfn tala er eru kjörnir 3 fulltrúar.  Kjörtímabil ritnefndarfulltrúa er 2 ár.  Hámarksseta í ritnefnd er 4 kjörtímabil samfellt. Ritnefnd markar ásamt ritstjóra stefnu tímaritsins og annast umsjón með útgáfu þess. Ritnefnd velur sér formann og skiptir með sér verkum að öðru leyti. Ritnefnd gerir fjárhagsáætlun fyrir hvert útgáfuár.

 

Ritstjóri skal ráðinn af stjórn félagsins. Hann markar ásamt ritnefnd stefnu tímaritsins og annast útgáfu þess.

           

  1. gr. Önnur útgáfa

Skrifstofa félagsins sér um og ber ábyrgð á annarri útgáfu félagsins, svo sem útgáfu fréttabréfs, handbókar og dagbókar og hefur umsjón með og ber ábyrgð á vefsíðu félagsins.

 

Kafli VIII – Trúnaðarmenn

 

  1. gr. Trúnaðarmenn

Stjórn félagsins skal sjá um að félagsmenn kjósi trúnaðarmenn á vinnustöðum samkvæmt því sem heimilað er í lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, eða því sem samið kann að vera um í kjarasamningum. Trúnaðarmenn skulu starfa í samstarfi við kjara- og réttindasvið félagsins og viðkomandi svæðisdeild.

 

Kafli IX – Verkföll

 

  1. gr. Ákvörðun um verkfall

Stjórn eða samninganefnd félagsins getur lagt fram tillögu um verkfall þeirra félagsmanna sem rétt hafa til þátttöku í því. Skal ákvörðun um verkfall tekin með þeim hætti sem mælt er fyrir um í lögum um stéttarfélög og vinnudeildur, nr. 80/1938, og lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986.

 

Kafli X – Lagabreytingar

 

  1. gr. Lagabreytingar

Lögum þessum verður ekki breytt nema á aðalfundi félagsins, enda hafi tillögur til lagabreytinga verið kynntar í fundarboði. Heimilt er þó á aðalfundi að ákveða að vísa tillögum til lagabreytinga, sem mikla þýðingu hafa, til samþykktar eða synjunar félagsmanna í allsherjaratkvæðagreiðslu.

 

Til þess að lagabreytingar öðlist gildi þarf að samþykkja þær með 2/3 hlutum greiddra atkvæða hvort sem er á aðalfundi eða í allsherjaratkvæðagreiðslu.

 

Ákvæði laga þessara um slit félagsins verður ekki breytt nema með samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða tveggja aðalfunda í röð.

 

Kafli XI Slit félagsins

 

  1. gr. Slit félagsins

Félaginu verður ekki slitið nema það sé samþykkt með 3/4 hlutum greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu. Við slit félagsins skulu eignir þess renna til arftaka félagsins eða þess lögaðila sem næst kemst því að gegna slíku hlutverki.

 

Kafli XII – Önnur ákvæði

 

  1. gr. Ákvörðunartaka og kosningar

Einfaldur meiri hluti atkvæða ræður úrslitum á fundum nema lög þessi kveði á um annað. Kosningar fara fram með handauppréttingu nema lög þessi kveði á um annað eða fundur ákveði að kosning verði leynileg.

 

  1. gr. Allsherjaratkvæðagreiðsla

Allsherjaratkvæðagreiðsla er leynileg og skulu kjörgögn send öllum félagsmönnum. Kjörskrá við allsherjaratkvæðagreiðslu skal miða við félagatal í þeim mánuði sem allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram. Auglýsa skal frest til að skila atkvæði. Við allsherjaratkvæðagreiðslu kjarasamninga hafa þeir einir atkvæðisrétt sem eru í starfi hjá viðkomandi vinnuveitanda.

 

  1. gr. Reikningar og endurskoðun

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar félagsins, nefnda þess og sjóða skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og tveimur skoðunarmönnum sem aðalfundur kýs úr röðum félagsmanna til eins árs í senn.

 

  1. gr. Skuldbinding í nafni félagsins

Stjórn félagsins og formaður geta skuldbundið félagið. Jafnframt geta aðrir skuldbundið félagið sem til þess hafa formlegt og afmarkað umboð stjórnar eða formanns.

 

Kafli XIII – Gildistaka

 

  1. gr. Gildistaka og lagaskil

Lög þessi öðlast gildi á aðalfundi félagsins 24. maí 2012