Nám og starf utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)


Íslenskir hjúkrunarfræðingar sem hafa hug á að vinna eða fara í nám í landi utan Evrópska efnahagssvæðissins þurfa að hafa hjúkrunarleyfi í viðkomandi landi. Atvinnurekandi sér í flestum tilfellum um að sækja um sækja um atvinnu-og dvalarleyfi sem sem er veitt með því skilyrði að kunnáttumenn fáist ekki innanlands eða ef aðrar sérstakar ástæður mæli með leyfisveitingu.

Umsókn um hjúkrunarleyfi
Umsókn skal send heilbrigðisráðuneyti viðkomandi lands (eða fylkis í Bandaríkjunum) eða þeim sem það vísar til. 
       

Umsókninni fylgi:
Sönnun ríkisfangs á Íslandi (staðfest afrit af vegabréfi eða vottorð frá Þjóðskrá www.thjodskra.is ).
Staðfest afrit af prófskírteininu sem þýtt hefur verið yfir á ensku (Hjúkrunarfræðideild HÍ eða Heilbrigðisdeild HA).
Staðfest afrit af íslenska hjúkrunarleyfinu (Landlæknisembættið).
Ítarlegar upplýsingar um stundafjölda, bæði í bóklegu og verklegu námi.
Æviágrip í stuttu máli (curriculum vitae).
Ljósmynd.
Tungumálakunnátta, t.d. TOEFL prófið.
Í sumum löndum þurfa erlendir hjúkrunarfræðingar að taka hjúkrunarpróf til að fá atvinnuleyfi (sbr. Bandaríkin og Kanada).

Bandaríkin: Flest fylki í Bandaríkjunum krefjast þess að erlendir hjúkrunarfræðingar taki CGFNS prófið (the Commission on Graduates of Foreign Nursing Schools) sem er hjúkrunar-og enskupróf fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga sem hafa hug á að fara í nám eða að starfa í Bandaríkjunum. Hjúkrunarfræðingar verða að standast þetta próf til að fá að taka NCLEX-RN hjúkrunarprófið (the National Council of State Boards of Nursing) sem er samræmt próf sem allir bandarískir hjúkrunarfræðingar verða að taka til að fá hjúkrunarleyfi.

CGFNS prófið er hægt að taka víðs vegar í heiminum www.cgfns.org
Þeir hjúkrunarfræðingar sem ætla í framhaldsnám er bent á Ameríska sendiráðið varðandi upplýsingar um GRE og TOEFL prófin.