Reglur um ferða- og dvalarkostnað//

Reglur um ferða- og dvalarkostnað

Reglur um ferða- og dvalarkostnað

Reglur um ferða- og dvalarkostnað félagsmanna í ferðum á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, innanlands sem utan:

1. Fargjöld

a. Flugfargjöld

Félagsmaður bókar og greiðir hagkvæmasta flugfargjald hverju sinni. Kostnaður vegna flugs er greiddur gegn framvísun kvittana.

b. Akstur

Akstur á eigin bifreið skal greiddur sem nemur km.-gjaldi skv. reglum ferðakostnaðarnefndar ríkisins.
Kostnaður vegna leigubifreiða milli komustaðar og dvalar-/fundarstaðar skal greiddur gegn framvísun kvittunar.

2. Dagpeningar

Um greiðslu dagpeninga skal fara eftir gildandi reglum ferðakostnaðarnefndar vegna greiðslu dagpeninga til ríkisstarfsmanna á ferðalögum.  Nýjasta tilkynning ferðakostnaðarnefndar

a. Dagpeningar innanlands

Innanlands eru greiddir fæðispeningar í samræmi við fjölda fundadaga. Sé fæði í boði félagsins á fundartíma eru greiddir hálfir fæðispeningar. Greiddir eru hálfir fæðispeningar fyrir ferðadaga ef ekki reynist mögulegt að fá far sama dag og fundur er haldinn.
Gisting vegna stjórnarfunda og nefndafunda sem haldnir eru utan heimabyggða þátttakenda er greidd gegn framvísun kvittana. Skrifstofa félagsins leitar hagstæðustu kjara við gistingu.
Tilkynna þarf með einnar viku fyrirvara ef félagsmaður gistir á vegum félagsins.
Gisti félagsmaður ekki á vegum félagsins hefur hann ekki rétt á sérstökum greiðslum fyrir gistikostnað.

b. Dagpeningar erlendis

Í ferðum erlendis á vegum félagsins skal greiða dagpeninga fyrir þá dvalardaga sem fundur stendur auk tveggja ferðadaga til viðbótar séu ferðadagarnir aðrir en fundardagar. Dagpeningar skulu greiddir fyrir brottför skv. „Skýrsla um utanlandsferð“.
Dagpeningar eru ætlaðir til greiðslu alls ferðakostnaðar þ.e. fyrir gistingu, fæði og annan kostnað s.s. vegna leigubíla og annars ferðakostnaðar. Sé gisting eða fæði greidd sérstaklega af félaginu eða þeim sem fundinn heldur, skerðast dagpeningarnir sem því nemur. Þó skal að lágmarki greiða hálfa fæðispeninga.  Sækja skýrslu um utanlandsferð

Samþykkt af stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 8. desember 2009