Saga hjúkrunar//
Þann 18. nóvember 2009 voru 91 ár liðin frá því að hjúkrunarfræðingar stofnuðu fyrsta félag hjúkrunarfræðinga hér á landi, Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Þeim tímamótum var fagnað með útkomu bókar um sögu hjúkrunar hér á landi á síðustu öld. Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur hefur unnið að sögurituninni undanfarin ár og ritaði söguna. Bókin, er einstök heimild um þróun hjúkrunar hér á landi, um menntunarmál og félagsstörf hjúkrunarfræðinga, auk þess að bregða upp áhugaverðum og persónulegum myndum af lífi hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema fyrr á tímum.
