Aðildarreglur og umsókn//

Úr lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Kafli II – Aðild

  1. gr. Full aðild, fagaðild og aukaaðild
    Rétt til fullrar aðildar að félaginu eiga þeir sem á grundvelli hjúkrunarlaga, nr. 8/1974, hafa leyfi til þess að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarfræðing. Jafnframt þiggja þeir laun skv. kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd og/eða greiða félagsgjöld af dagvinnulaunum og atvinnuveitandi greiði tilskilin gjöld í sjóði félagsins f.h. starfsmannsins.

    Rétt til fagaðildar að félaginu eiga þeir sem á grundvelli hjúkrunarlaga, nr. 8/1974, hafa leyfi til þess að stunda hjúkrun hér á landi og kalla sig hjúkrunarfræðing en þiggja ekki laun samkvæmt kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd. Rétt til aukaaðildar að félaginu eiga nemendur í hjúkrunarfræði sem lokið hafa fyrsta námsári í greininni við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri eða annan viðurkenndan háskóla. Nemendur í hjúkrunarfræði sem þiggja laun skv. kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd hafa rétt á að greiða atkvæði um viðkomandi kjarasamning.

  1. gr. Umsókn um aðild
    Umsókn um aðild að félaginu skal vera skrifleg og skal lögð fyrir næsta fund stjórnar. Með umsókn skulu fylgja gögn sem sanna að skilyrðum til inngöngu sé fullnægt. Samþykki stjórn umsóknina miðast aðild við dagsetningu móttöku umsóknarinnar.

 

Umsókn hjúkrunarfræðings um aðild

Umsókn hjúkrunarfræðinema um aðild

 

Landlæknisembættið - Upplýsingar um starfsréttindi heilbrigðisstétta

 

 

Umsjón með umsóknum

Guðrún Andrea Guðmundsdóttir
Guðrún Andrea Guðmundsdóttir
Fulltrúi
Sími: 540 6400