11.
febrúar 2019
Stjórn Vísindasjóðs auglýsir eftir umsóknum úr B-hluta sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2019. Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2018.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Vísindasjóðs.