
Vísindasjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Frá 1. janúar 1994 hafa vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga, sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningi félagsins, greitt sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh). Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A og B hluta. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn í Fíh og voru starfandi samkvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 31. desember árið fyrir úthlutun. Kallast þeir hér sjóðsfélagar.
Vísindasjóði er annars vegar ætlað að styrkja endur- og símenntun sjóðsfélaga (A-hluti) og hins vegar að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðaskrif sjóðsfélaga (B-hluti).
