Starfsreglur B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir B-hluti Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar hann með því skipulagi og markmiðum sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga.
Aðild
Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Fíh og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu fyrir úthlutun. Kallast þeir sjóðsfélagar.
Stjórn sjóðsins og hlutverk hennar
Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum fulltrúum til tveggja ára í senn. Í stjórn sitja einn úr stjórn Fíh, sviðstjóri fagsviðs Fíh og tveir fulltrúar skipaðir af stjórn félagsins. Sjóðsstjórn setur almennar, gagnsæjar og skýrar úthlutunarreglur, sem bornar skulu undir stjórn Fíh sem skal aðeins heimilt að samþykkja eða synja tillögu sjóðsstjórnar í heild sinni. Sjóðsstjórn ákveður styrkhafa og úthlutar styrkjum á grundvelli úthlutunarreglna sjóðsins. Stjórn sjóðsins skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.
Tekjur sjóðsins
Tekjur B-hluta Vísindasjóðs eru 3% af tekjum Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og vaxtatekjur hans. Vinnuveitendur greiða í Vísindasjóð sem nemur 1.5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga.
Hlutverk sjóðsins
Hlutverk sjóðsins er að styrkja sjóðsfélaga sem vinna að rannsóknum, klínískum verkefnum og fræðiskrifum sem gildi hafa fyrir hjúkrun. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja klínískar rannsóknir í hjúkrun. Sjóðsfélagar sem eru í námi geta sótt um styrk til að vinna rannsóknarverkefni til meistaragráðu (30 einingar ECTS hið minnsta) eða doktorsgráðu.
Umsóknir
Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn á þar til gerðu eyðublaði með þeim upplýsingum sem stjórn sjóðsins telur nauðsynlegar.
Umsókn og fylgiskjöl skulu berast rafrænt á netfangið visindasjodur@hjukrun.is fyrir miðnætti þann 15. mars ár hvert.
Leiðbeiningar fyrir umsókn er að finna hér á vefsvæði Fíh.
Umsækjendum er bent á að vönduð umsókn eykur líkur á styrkveitingu.
Upphæð styrkja
Um er að ræða samkeppnissjóð. Upphæð styrkja ræðst af fjármagni sjóðsins hverju sinni, fjölda umsókna og gæðum og fjárhagsáætlun rannsóknar.
Afhending styrkja
Rannsóknarstyrkjum er úthlutað einu sinni á ári, að vori. Styrkurinn er greiddur út í tveimur áföngum. Við afhendingu styrksins er greiddur út fyrri helmingur hans og seinni helmingur við skil á þeim hluta sem styrkurinn náði til. Til að fá seinni helminginn greiddan þarf styrkhafi að senda til sjóðstjórnar umsókn um greiðslu seinni hluta styrksins á þar til gert eyðublað sem er að finna á vefsvæði Fíh svo og tilskilin gögn sem geta verið lokaskýrsla, kynning á niðurstöðum og úrvinnslu eða handrit að grein í ritrýnt tímarit. Stjórn sjóðsins getur krafist bókhaldsumsjónar styrkja sem fara yfir ákveðna upphæð.
Sviðstjóri fagsviðs Fíh hefur umsjón með styrkgreiðslum.
Endurgreiðsla
Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum innan þess tíma er gert var ráð fyrir skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins.
Ef seinni hluti styrks hefur ekki verið sóttur 2 árum eftir áætluð verkefnalok og stjórn sjóðsins ekki verið gerð grein fyrir ástæðunni fellur styrkurinn niður og leggst við úthlutunarfé B-hluta Vísindasjóðs að ári.
Samþykktar á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. maí 2011.
Stjórn sjóðsins 2011-2012
Auðna Ágústdóttir formaður stjórnar Vísindasjóðs
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir sviðstjóri fagsviða Fíh
Guðbjörg Guðmundsdóttir sérfræðingur í hjúkrun á LSH
Þórunn Sævarsdóttir sérfræðingur í hjúkrun á LSH
Uppfært 05.01.2012
