Fara á efnissvæði

Deild hjúkrunarfræðinga í Vestmannaeyjum

Hjúkrunarfræðingar sem eru félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og búa eða starfa í Vestmannaeyjum geta orðið félagsmenn í deildinni.

Um deildina

Hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og búa eða starfa í Vestmannaeyjum geta orðið félagsmenn í deildinni. Sækja þarf um aðild að deildinni.

Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar í Vestmannaeyjum. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).

Tilgangi sínum hyggst deildin ná m.a. með því að:

  • auka möguleika hjúkrunarfræðinga til endur-og viðbótarmenntunar
  • efla fræðilega þekkingu meðal hjúkrunarfræðinga í heimabyggð með námskeiðum og fræðslu
  • miðla reynsluþekkingu meðal hjúkrunarfræðinga
  • efla og hafa markvissara forvarnastarf í samfélaginu
  • efla fræðslu til bæjarbúa
  • auka þekkingu almennings á störfum hjúkrunarfræðinga
  • viðhalda og efla fræðslu í skólum og foreldrafræðslu
  • hvetja til bættrar hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða á stofnunum og í heimahúsum
  • sinna góðu félagsstarfi og styðja við hjúkrunarfræðinga deildarinnar

Stjórn

Formaður

Hildur Vattnes Kristjánsdóttir

Gjaldkeri

Ásta Gústafsdóttir

Ritari

Guðrún María Þorsteinsdóttir

Meðstjórnandi

Ásta Gústafsdóttir

Meðstjórnandi

Iðunn Dísa Jóhannesdóttir

Meðstjórnandi

Herdís Gunnarsdóttir

Starfsreglur

1.gr. Nafn

Nafn landsvæðisdeildarinnar er Deild hjúkrunarfræðinga í Vestmannaeyjum. Deildin starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er Vestmannaeyjar. Um þau atriði sem ekki koma fram í þessum samþykktum gilda lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh).

2.gr. Tilgangur

Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar í Vestmannaeyjum. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).

3.gr. Stefna

Tilgangi sínum hyggst fagdeildin ná m.a. með því að:

  • auka möguleika hjúkrunarfræðinga til endur-og viðbótarmenntunar
  • efla fræðilega þekkingu meðal hjúkrunarfræðinga í heimabyggð með námskeiðum og fræðslu
  • miðla reynsluþekkingu meðal hjúkrunarfræðinga
  • efla og hafa markvissara forvarnastarf í samfélaginu
  • efla fræðslu til bæjarbúa
  • auka þekkingu almennings á störfum hjúkrunarfræðinga
  • viðhalda og efla fræðslu í skólum og foreldrafræðslu
  • hvetja til bættrar hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða á stofnunum og í heimahúsum
  • sinna góðu félagsstarfi og styðja við hjúkrunarfræðinga deildarinnar

4.gr. Félagsaðild

Rétt til aðildar að deildinni eiga hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa og/eða búa í Vestmannaeyjum.

Umsókn um aðild að deildinni skal berast til stjórnar deildar. Úrsögn úr deildinni er hægt að skila skriflega til stjórnar. Einnig getur stjórn litið á það sem úrsögn ef félagsmaður hefur ekki greitt árgjald deildarinnar tvö ár í röð.

5.gr. Starfstímabil

Starfstímabil deildarinnar er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

6.gr. Aðalfundur

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar. Aðalfund skal halda að vori ár hvert og skal boða til hans með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannarlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Fundarboði skal fylgja dagskrá og tillögur sem fyrir honum liggja. Tillögur að breytingu á lögum skal berast stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  8. Önnur mál

7.gr. Stjórn

Stjórn deildarinnar skal skipuð fimm félagsmönnum, kjörnum á aðalfundi, til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn. Meirihluti aðalfundar ræður kjöri. Kjöri skal þannig háttað að aldrei gangi fleiri en þrír kjörnir stjórnendur auk annars varamanns úr stjórn hverju sinni. Stjórnin skiptir með sér verkum, gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda. Kosning skal vera skrifleg og leynileg og fara fram eftir venjulegum reglum meirihluta atkvæða.

Stjórn deildarinnar fer með málefni hennar milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.

8.gr. Félagsgjald

Ákvörðun um félagsgjöld skal tekin á aðalfundi og endurskoðuð árlega. Félagsgjöld skal innheimta árlega.

9.gr. Rekstur

Reikningstímabil deildar miðast við aðalfund ár hvert. Skoðunarmenn reikninga sem kjörnir eru á aðalfundi úr röðum félagsmanna, skulu yfirfara reikninga fagdeildarinnar fyrir aðalfund. Rekstarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang fagdeildarinnar. Stjórn deildarinnar ber ábyrgð á fjárreiðum deildarinnar.

10. gr. Ársskýrsla

Deildin skal skila inn skýrslu um starfsemi sína til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert (sbr. 12. gr. laga Fíh).

11.gr. Slit

Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar (sbr. 12. gr. laga Fíh).

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi Deildar hjúkrunarfræðinga í Vestmannaeyjum 02.05.2018